Iðnneminn - 01.10.1993, Síða 103
BARIST ER FYRIR HAGSMUNUM IDNNEMA
Kjaramál iðnnema, sigur í baráttu
Iðnnemasambandið berst fyrir því að laun iðnnema verði
ákveðinn hundraðshluti af launum sveina, gera samtökin það
meðal annars í samstarfi við sveinafélögin. Samtökin beita
sér einnig fyrir ýmsum öðrum réttarbótum iðnnemum til
handa og hafa á því svið náð góðum árangri. Má þar til
dæmis nefna sá sigur er Iðnnemasambandið vann í
baráttunni um hvort að þjónanemar ættu rétt á að fá greitt
vaktaálag. Sigur Iðnnemasambandsins færði sumum
þjónanemum 20* 30% hærri laun en þeir voru vanir að fá.
Félagsheimili i&nnema
Iðnnemasamband íslands á Félagsheimili iðnnema, það er
að Skólavörðustíg 19. Félagsmenn eru velkomnir í heimsókn
og stendur þeim til boða afnot af félagsheimilinu til
félagsstarfa sinna.
Atvinnumiðlun i&nnema
Iðnnemasamband íslands rekur Atvinnumiðlun iðnnema,
AMIN. Með rekstri AMIN vill iðnnemasambandið auðvelda
iðnnemum að fá vinnu í því fagi sem þeir eru að læra og/eða
sumarvinnu. Ætlunin er að beita AMIN til að reyna að
útvega iðnnemum starfsþjálfunarpláss. Er meðal annars
stefnt að því ná samningum við fyrirtæki, stofnanir og
samtök meistara um að nemar verði ráðnir í gegnum AMIN
til starfa hjá þeim.
Félagsíbúðir iðnnema
Iðnnemasamband íslands og Skólafélag Iðnskólans í
Reykjavík standa sameiginlega að Félagsíbúðum iðnnema.
Félagsíbúðir iðnnema eiga og reka leiguhúsnæði fyrir
félagsmenn samtakanna. Þar er um að ræða íbúðir og
herbergi á Iðnnemasetrum..
Félagsíbúðir iðnnema leigja nú út þrjú parherbergi og
fjórtán einstaklings herbergi. Leiguverð á einstaklings
herbergjunum er ffá kr. 12.700,00 á mánuði upp í kr.
16.000,00 á mánuði. Hiti og leigugjald er innifalið í
leigugjaldinu. Parherbergin eru leigð á kr. 18.500,00 til kr.
21.000,00 á mánuði. Herbergin eru öll á sambýlum og þar er
meðal annars aðgangur að eldunaraðstöðu, snyrtingu,
þvottahúsi, setustofu svo eithvað sé nefnt.
Húsgögn em í öllum herbergjum. Herbergin er á
Vesturgötu 17 og Ránargötu 12. Á Bergþómgötu 23 eiga
Félagsíbúðir iðnnema átta íbúðir. Sjö em þegar komnar í
útleigu og ein bætist við haustið 1994. íbúðimar em tveggja
og þriggja herbergja. Leiguverð er frá tæpum 23.000,00 kr. á
mánuði upp í 32.000,00 kr. fyrir stærstu íbúðina. Næsta
haust er síðan stefnt að því að fjórtán íbúðir í Bjamaborginni
við Hverfisgötu verði teknar í notkun. I dag búa 36
einstaklingar í húsnæði á vegum FIN. Næsta haust gæti þeim
hæglega fjölgað um helming.
Útgáfustarf l&nnemasambandsins
Iðnnemasambandið stendur að öflugri útgáfustarfsemi.
Málgagn samtakanna er Iðnneminn. Allir félagsmenn fá
Iðnnemann sendan heim til sín. í Iðnnemanum er meðal
annars fjallað um hagsmunamál iðnnema auk fjölda annara
forvitnilegra mála.
Iðnneminn er opinn öllum félagsmönnum
Iðnnemasambandsins sem hafa hug á því að skrifa í hann.
Stefht er að því að Iðnneminn komi út annan hvem mánuð í
vetur. í dag eru liðin 60 ár frá því að Iðnneminn hóf göngu
sína. Litli Iðnneminn er einnig gefinn út og inniheldur hann
yfirleitt kaupskrá, kjarasamninga og upplýsingar um ýmis
réttindamál. Iðnnemasambandið ræður yfir góðum tækjum
til útgáfustarfssemi og geta iðnnemafélög og klúbbar sem
hyggjast gefa eithvað út fengið til þess aðstoð hjá
Iðnnemasambandinu.
Erindreki Iðnnemasambandsins
Fræðslustjóri Iðnnemasambandsins á framveigis að gegna
hlutverki erindreka hjá samtökunum. Hlutverk hans verður
meðal annars að halda sambandi við aðildarfélög
Sambandsins, aðstoða þau í starfi, koma upplýsingum um
starf þeirra á framfæri við stjóm Iðnnemasambandsins,
aðstoða félögin við skipulagningu formannafunda auk þess
að vera sérstakur fulltrúi landsbyggðafélaganna innan
sambands- og framkvæmdarstjómar.
Félagsmálaskóli l&nnemasambands íslands
Iðnnemasamband íslands rekur Félagsmálaskóla.
Markmiðið með félagsmálaskólanum er að þjálfa iðnnema í
félagsstörfum og gera þá hæfari til að taka þátt í öllu
félagsstarfi. Er það meðal annars gert með
félagsmálanámskeiðum þar sem farið er í fundarstörf,
verkaskiptingu innan félagastjóma, ræðumennsku og fleira.
Aðildarfélögum Iðnnemasambandsins stendur til boða að fá
til sín félagsmálanámskeið, fáist næg þáttaka.
Félagsmálaskólinn hefur einnig það hlutverk að fara inn í
kennslutíma hjá iðnnemum og fræða þá um réttindi og
skyldur ásamt öðm því sem að iðnnámi snýr. Á þar að vera
um að ræða fyrsti vísinn að kennslu í iðnfélagsfræði.
Alþjóðleg afslóttarskírteini
Iðnnemasamband íslands lætur félagsmönnum sínum í té
ISIC skrrteini. ISIC skírteinin em alþjóðleg afsláttar- og
námsmannaskýrteini og geta veitt handhöfum sínum
margháttaða afslætti bæði hérlendis sem erlendis. Er þar um
að ræða afslætti af farmiðum í ferðalögum bæði innanlands
sem utan, skemmtanir, sýningar og söfn erlendis og afslætti í
yfir þrjúhundmð fyrirtækjum hér á landi. Á afsláttarlistanum
sem gildir fyrir ísland er meðal annara hluta hægt að finna
hárgreiðslu- og rakarastofur, tískuvömverslanir, matsölu- og
veitingastaði, bamafataverslanir, byggingavömverslanir,
bókaverslanir, blóma- og gjafavömverslanir auk ýmisa
sérverslanna. Einnig er veittur afsláttur á búsáhöldum,
tölvum, tómstundum, dansi, heilsurækt, grænakortinu í
strætó og fleira. Iðnnemafélög og klúbbar geta safnað
fyrirtækjum og stofnunum á sínum heimastað inn í
afsláttarbæklinginn og þannig aukið gildi skírteinisins. ISIC
skírteinið geta allir félagsmenn Iðnnemasambandsins fengið.
Koma þarf með passamynd 36 x 30 mm.