Iðnneminn - 01.10.1997, Blaðsíða 11
skólans einu sinni í mánuði. Fá eru hin ýmsu mál
er varða nemendafélagið rædd og ákvarðanir
teknar, auk þess sem boðið er upp á ýmis
skemmtiatriði.
Það er vonandi að þú lesandi góður sjáir af
framantöldu að félagslíf í FVA er mjög
íjölskrúðugt og flestir finna þar sitthvað við sitt
hæfi. Eins og allir vita er félagslífið mikilvægur
hluti af skólagöngunni ekki síður en námið. Því
man fólk hvað mest eftir er það rifjar upp skólaár
sín og þátttaka í félagslífi er eitthvað sem maður
býr að alla ævi.
Um síðustu áramót gekk í garð frjáls félagaaðild
að nemendafélögum. Fað þýðir að námsmenn eru
ekki lengur skyldaðir til að vera í
nemendafélögum. Stjórn NFFA var uggandi yfir
því að félagsmönnum myndi fækka verulega en
raunin varð önnur. Yfir 80% nemenda kaus að vera
í nemendafélaginu og hefur hið nýja fyrirkomulag
ekki komið niður á félagslífinu. Það kostar meiri
vinnu en áður fyrir stjórnarmenn því svona hátt
hlutfall næst ekki sjálfkrafa og nauðsynlegt er að
vera stöðugt á verði eigi það að haldast áfram.
Mikill hugur er í mönnum og ekki annað að sjá en
að NFFA geti verið öflugt félag nemenda um
ókomin ár.
Strákafög - stelpufög
Viðtal við Jónínu Margréti
Sigmundsdóttur rafvirkjanema
Skipting kynjanna í hin hefðbundnu stráka- og
stelpufög er ansi lífseig. I’að er því undantekning
ef stelpur sjást úti í verknámsdeild en ef vel er
leitað má stundum finna eina og eina. Jónína
Margrét Sigmundsdóttir er ein þeirra. Hún hefiir
lokið grunndeild rafiðna og stundar nám í
rafvirkjun.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í nám í
rafvirkjun?
Mig langaði til að prófa eitthvað nýtt, eitthvað
sem ég hef aldrei prófað áður. Mér fannst þetta
nám hljóma mjög spennandi. Fegar ég hugsa til
framtíðarinnar þá vil ég frekar vinna við eitthvað
verklegt en til dæmis skrifstofustörf eða álíka.
Hvernig viðbrögð hefur þú fengið?
Mjög góð. Vinir mínir voru fýrst mjög hissa en
jákvæðir. Mér var vel tekið hjá strákunum úti í
verknámi. Feir “bögga” mig samt stundum af því
ég er eina stelpan en það er bara stríðni. Við náum
mjög vel saman og hjálpumst að. Kennararnir
tóku mér mjög vel og hafa verið einstaklega
hjálplegir.
Hvers vegna velja svona fáar stelpur
iðngreinar?
Ég veit það ekki. Mér sjáltri fannst mjög skrítið
að byrja í þessu námi. Mér fannst þetta vera
strákaheimur og þeir einir ættu að þekkja þessa
hluti. Ég kunni ekki neitt og hafði ekki áhuga á
þessu áður en ég byrjaði í náminu. En ég kom
hingað til að læra og það gengur vel þótt stundum
finnist mér það taka lengri tíma hjá mér en hjá
strákunum. Margir þeirra hafa það sem áhugamál
að rífa í sundur hluti, t.d. er einn með skerta sjón
eftir að hafa fengið sýru úr rafgeymi framan í sig
sem hann var að rífa í sundur. Mér finnst stelpur
hafa jafnmikið a'ð gera í þetta fag og strákar jafnvel
þótt þær hafi ekki verið að rífa í sundur raftæki allt
sitt líf eða fengið sýru úr rafgeymi í andlitið.
Rifur þú í sundur raftæki í frístundum?
Nei, ég þori það ekki strax. Herbergið mitt hefur
því ekki að geyma sundurrifin tæki út um allt. Eina
tilraunin mín á þessu sviði var þegar ég var að
prófa fjölsviðsmælinn sem marnrna gaf mér í
jólagjöf. Ég stakk honum í innstunguna en þá
sprakk hann og eyðilagðist. Eiríkur kennari ætlar
að reyna að laga hann.
Hvernig heldurðu að þér gangi að fá
starfssamning að námi loknu?
Ég veit ekki hvernig það gengur fýrir sig en ég
hef enga ástæðu til annars en að vera bjartsýn.
Hver eru þín framtíðaráform?
Ég stefni á að klára sveinspróf í rafvirkjun. Mig
langar til að hanna lýsingar í byggingar og um
þessar mundir er ég að kanna hvernig ég eigi að
haga mínu námi í samræmi við það.
CAD/CAM forrit. Sá sem hannar hlut byrjar á því
að teikna hann í forritinu. Samfara býr það til
undirforrit fyrir hlutinn og tiltekna gerð af
tölvustýrðri iðnaðarvél. Aður þurfti að teikna
hann upp og síðan að búa til forritið fýrir vélina.
Fetta sparar mikinn tírna. I’eir sem þekkja til segja
þetta forrit eitt hið öflugasta fyrir tölvustýrðar
vélar í dag. Forritið sem skólinn fékk er eitt
aðalforrit en einnig fýlgir skólaútgáfa þar sem
möguleiki er að afrita það fyrir nemendur og geta
þeir þá unnið með það heinra. Nemendur sem eru
á fimmtu önn í vélsmíði læra á forritið en FVA er
í fararbroddi íslenskra verknámsskóla hvað varðar
kennslu og búnað fyrir tölvustýrðar iðnaðarvélar
og er eini framhaldsskólinn sem hefixr sérstakan
áfanga þar sem kennt er á tölvustýrðar vélar.
Nemendafélagið - NFFA
Innan FVA starfar Nemendafélag
Fjölbrautaskóla Vesturlands, NFFA. Fað sér urn
félags- og skemmtanalíf nemenda og stendur fyrir
ýmsum viðburðum.
Með æðstu völd NFFA fer aðalstjórn en hana
skipa forseti, gjaldkeri og ritari. Far að auki eru
fjölmörg önnur embætti, t.d. skemmtanastjóri,
viðburðarstjóri, formenn hinna ýmsu klúbba svo
eitthvað sé nefnt. NFFA á einnig sína fulltrúa í
skólaráði og skólanefnd.
Síðastliðinn vetur var starfið mjög blómlegt og
verður hér getið þess helsta sem fram fór. A
haustönn fór fram busavígsla, haustdagar NFFA,
leikhúsferð, skólaheimsókn í útibú FVA á
Snæfellsnesi, spútnikvika, tónlistarkeppnin
„Frumurokk“ sem síðan var gefin út á geisladiski,
tónleikar með Todmobile o.fl. A vorönn var
hápunkturinn leiksýningin „Fú ert í blóma lífsins,
fiflið þitt“, opnir dagar voru 25.2. til 1.3. og
enduðu þeir með árshátíð NFFA. Nemendur
söfnuðu fyrir skólauppbyggingu á Indlandi í
Islensku dagsverki, haldið var málþing um álverið
á Grundartanga o.fl. Hér hefur aðeins verið
stiklað á stóru því fjölmargt annað var gert.
Klúbbar NFFA eru alls 9 og starfa þeir hver á
sínu sviði, t.d. tónlistar-, kvikmynda-, lista-,
íþróttaklúbbur o.fl. Kaffihúsakv'öld hafa notið
mikilla vinsælda og þannig kvöld voru haldin með
jöfnu millibili og var þá mötunevtissalnum breytt
í kaffihús þar sem fjölbreytt dagskrá fór fram.
NFFA sendi fulltrúa sína í ræðukeppni Morfís og
spurningakeppni framhaldsskólanna og nemendur
fjölmenntu og studdu sína rnenn. Tvisvar s.l. vetur
rak NFFA úwarpsstöðina „Blómið“ tímabundið
þar sem nemendum gafst kostur á að vera með
þætti. Stjórn NFFA fundar með öllum nemendum
I ð n n e m i n n
n