Iðnneminn - 01.10.1997, Síða 17
nemendur í fjarnámi getí lokið námi á ýmsum
brautum hins almenna framhaldsskóla og þar
með stúdentsprófi.
Heilbrigðissvið
Heilbrigðissviði Verkmenntaskólans er skipt í
tvennt. I fýrsta lagi sjúkraliðabraut sem er
þriggja ára nám tíl sjúkraliðaprófs. Á tveim
fyrstu árunum er áhersla lögð á almennar
kjarnagreinar. Á þriðja ári er verklegt nám á
sjúkrastofnun og faggreinar. I öðru lagi nátt-
úrufræðibraut sem lýkur með stúdentsprófi.
Hússtjórnarsvið
Á hússtjórnarsviði eru tv'ær námsbrautir,
matvælabraut og mynd- og handmenntabraut.
Á matvælabraut er lögð áhersla á matreiðslu og
framreiðslu. Fyrsta hluta námsins lýkur með
grunnnámsprófi sem veitir nemendum rétt á
vinnu á hótelum og í mötuneytum. Öðrum
hluta námsins lýkur með réttindum matar-
tæknis og starfa þeir einkum í eldhúsum
heilbrigðisstofnana, hægt er að bæta við þetta
nám á náttúrufræðibraut og ljúka stúdents-
prófi. Á mynd og handmenntabraut er
megináherslan lögð á verk-og listgreinar,
lokapróf brautarinnar er stúdentspróf.
Tæknisvið
Á tæknisviði fer fram kennsla í löggiltum
iðngreinum og vélstjórn auk þess er boðið upp
á almennt bóknám, kennslu í meistaraskóla og
nám á tæknibraut til stúdentsprófs.
Nám í löggiltum iðngreinum skiptist í
bóklegt og verklegt nám og eru starfræktar við
skólann grunn- og framhaldsdeild í tréiðnum,
grunn- og framhaldsdeild í málmiðnum auk
grunndeildar í rafiðnum og eitt ár í
rafeindavirkjun. Nám í grunn- og
framhaldsdeildum tekur tvö ár og þarf í flestum
tilvikum hálft ár til viðbótar til að ljúka
skólaþætti iðnnámsins. ekki er hægt að bjóða
upp á kennslu í öllum faggreinum iðnnáms á
hverjum vetri og fer námsframboð eftir fjölda
nemenda í einstökum iðngreinum hverju sinni.
Nám í vélstjórn er þrepanám sem lýkur með
starfsréttindum eftir hvert þrep. 1. stig
vélstjórnar tekur hálft ár, 2. stíg eitt og hálft tíl
viðbótar, 3. stíg eitt og hálft ár til viðbótar og
4. stíg enn eitt og hálft ár til viðbótar, þannig
að fúll réttindi nást eftir fimm ára nám.
Nám til tæknistúdentsprófs tekur tvö ár að
loknu bóklegu námi iðnnáms, þetta nám
hentar vel til framhaldsnáms í raungreinum en
gefúr sama rétt og aðrar gerðir stúdentsprófs.
Uppeldissvið
Uppeldissvið skiptist í þrennt, félagsfræða-,
íþótta- og uppeldisbraut. Auk almennra
kjarnagreina er aðaláherslan lögð á
samfélagsgreinar svo sem félagsfræði, heim-
speki, sálarfræði, sögu og íþróttagreinar á
íþróttabraut.
Viðskiptasvið
Á viðskiptasviði Verkmenntaskóians eru tvær
námsbrautir. I fyrsta lagi viðskiptabraut sem er
tvö ár, henni lýkur með almennu verslunarprófi
sem veitir réttindi til verslunarleyfis að öðrum
skilyrðum uppfylltum. I öðru lagi hagfræði-
braut sem er fjögur ár og lýkur með stúdents-
prófi.
Útvegssvið á Dalvík
Á Dalvík gefst nemendum kostur á að stunda
nám í almennum greinum fyrsta árs
framhaldsskóla. Einnig er boðið upp á nám í
fyrsta og öðru stigi skipsstjórnar ásamt
fiskvinnslufræðum. Skipstjórnarnámið gefur
starfsréttindi til skipsstjórnar á fiskiskipum.
Fiskvinnslunámið gefúr möguleika á atvinnu á
fjölmörgum sviðum í undirstöðuatvinnugrein
þjóðarinnar.