Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 14

Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 14
14 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 U m þessar mundir eru 13 mánuðir frá hruninu og fátt hefur gerst á þeim tíma sem fyllt hefur þjóðina bjart- sýni. Mánuð eftir mánuð hefur hver hörmungarfréttin rekið aðra og hefur hrunið sífellt undið upp á sig – fátt jákvætt hefur verið í fréttum og þjóðin hefur sokkið dýpra í nöldri, neikvæðni og svartsýni. Síðasta vika var því mikið fagnaðarefni fyrir þá Íslendinga sem vilja horfa með jákvæðni og bjartsýni til framtíðar í þeirri vissu að þjóðin komist í gegnum þessa kreppu. Fyrir þá Íslendinga markaði síðasta vika þá von að botninum væri náð og endurreisnin hafin. Jákvæðar fréttir bárust um miðja vikuna þegar Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn endurskoðaði loks efnahagsáætlun Íslendinga og í framhaldi voru lánafyrirgreiðslur Norðurlandanna og Póllands í höfn. Vinnufriður á vinnumarkaði var á sama tíma tryggður. Á laugardaginn tilkynnti svo Seðlabankinn að hafin væri aflétting gjaldeyrishafta. Nýhafin vika gefur einnig tilefni til bjartsýni. Reikna má með því að Seðlabankinn lækki stýrivexti í vikunni. Óskandi er að aðil- um vinnumarkaðarins öðlist í samvinnu við ríkisstjórnina að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem eru í vegi fyrir því að hjól atvinnulífs- ins fari að snúast fyrir alvöru með framkvæmdum bæði erlendra og innlendra aðila. Ef þetta gengur eftir er langt síðan þjóðin hefur fengið jafnmargar jákvæðar fréttir á jafnstuttum tíma. En þrátt fyrir að loksins hafi birt til verða enn nógu margir til að draga kjark úr þjóðinni með neikvæðni og svartsýni. Sumir virðast telja það sjálfskipað hlutverk sitt að draga upp enn dekkri mynd af stöðunni en hún raunverulega er. Það er hins vegar verkefni þeirra sem telja að endurreisnin sé loks hafin að láta þessa aðila ekki hafa of mikil áhrif á sig. Því það er rangt að bjartsýni við þessar aðstæður sé það sama og óraunsæi. Það er rangt að til þess að þykjast skilja alvarleika stöðunnar þurfi að vera með hangandi haus og gagnrýna allt og alla. Og það er einnig rangt að einstaklingar sem vakna á morgn- ana fullir tilhlökkunar til að takast á við verkefni komandi dags átti sig ekki á alvarlegri stöðu þjóðarbúsins eða hafi minna til málanna að leggja en aðrir. Bjartsýni við þessar aðstæður er nefnilega nauðsynleg og veit- ir mikilvægan kraft til að takast á við erfið viðfangsefni. Bjart- sýni jafnt sem svartsýni smitar út frá sér og þjóðin þarf á fleiri einstaklingum að halda sem smita jákvæðni út í þjóðfélagið – af fýlupúkum er víst nóg. Fýlupúkarnir eru ekkert merkilegri en bjartsýna fólkið og hafa ekkert merkilegri boðskap fram að færa – þeir eru einfaldlega leiðinlegri. Bjartsýni – svartsýni: Er endurreisnin hafin? MARGRÉT KRISTMANNSDÓTTIR SKRIFAR Og það er einnig rangt að einstaklingar sem vakna á morgnana fullir tilhlökkunar til að takast á við verkefni komandi dags átti sig ekki á alvarlegri stöðu þjóðarbúsins. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Snemma í október var hald-in þjóðaratkvæðagreiðsla í Frakklandi og snerist hún um mjög svo umdeildar breytingar sem nú er í bígerð að gera á póst- þjónustunni. Reyndar var hún svo óvenjuleg í alla staði, að óvíst er að hægt sé að kalla hana þessu nafni. Fyrir nokkru var stjórn- arskránni að vísu breytt í þá veru að efna skyldi til þjóðarat- kvæðagreiðslu, ef ákveðinn hluti kjósenda krefðist þess, og þótti mörgum rétt að láta nú reyna á þessa nýbreytni og bera breyting- arnar á póstinum undir atkvæði almennings. En þá kom í ljós að enn vantaði lögin um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu, stjórn- arskrárparagrafinn um hana var ekki annað en dauður bókstafur að svo stöddu; því var þessi hug- mynd úr sögunni. En þeir sem vildu að almenn- ingur fengi að segja álit sitt á þessu máli voru ekki af baki dottnir, og því tóku einir sex- tíu aðilar sig saman, stéttarfé- lög, önnur samtök af margvíslegu tagi, ýmsir stjórnmálaflokkar svo sem sósíalistaflokkurinn og kommúnistaflokkurinn o.fl. og efndu til „þjóðaratkvæðagreiðslu“ um allt landið upp á eigin spýtur. Til að undirstrika að hér væri á ferðinni nokkuð sérstætt fyrir- bæri og nýlunda var ekki notað venjulega franska heitið yfir slíka atkvæðagreiðslu, heldur orðið „votation“ sem er sömu merking- ar en einungis notað í frönsku- mælandi Sviss, þar sem slíkar atkvæðagreiðslur eru algengur viðburður. Framkvæmdin var líka með óvenjulegum hætti, lík- ari undirskriftasöfnun en venju- legri atkvæðagreiðslu, og lágu listarnir fáeina daga frammi á margvíslegum stöðum, pósthús- um, markaðstorgum, háskólum, söfnum og þar fram eftir götun- um. Spurningin sem var borin undir atkvæði hljóðaði á þessa leið: „Ríkisstjórnin vill breyta fyrir- komulagi póstþjónustunnar með það fyrir augum að einkavæða hana. Eruð þér fylgjandi því?“ Mikill áróður var nú rekinn fyrir því, í vinstri sinnuðum fjölmiðl- um og mjög víða annars staðar, að menn segðu hljómmikið „nei“, en enginn áróður var rekinn fyrir „jái“. Þeir sem voru hlynntir þeim breytingum sem fyrirhugað er að gera vefengdu nefnilega spurn- inguna sjálfa. Það eitt er á dag- skrá, sögðu þeir, að breyta eilít- ið stöðu póstþjónustunnar, gera opinbera þjónustu að hlutafélagi, en það á alls ekki á neinn hátt að einkavæða hana, síður en svo, hún á eftir sem áður að vera í eigu ríkisins, ekki er um neitt annað að ræða en smávegis hagræðingu til að mæta nýjum tímum. „Ef ég ímyndaði mér að þetta leiddi til að póstþjónustan yrði einkavædd, væri ég á móti þessari breyt- ingu“, sagði einn leiðtogi stjórn- arsinna. En gallinn var sá að enginn tók þessa menn trúanlega, og alls staðar var spurt: til hvers í ósköp- unum á að breyta skipulaginu ef ekki er verið að stefna að einka- væðingu, að öðrum kosti er breyt- ingin út í hött? Og menn bentu á fordæmin: í hvert skipti sem opin- ber þjónusta hefur verið einka- vædd hefur það verið gert með sama hætti, fyrst er henni breytt í e.k. hlutafélag með háværum yfirlýsingum um að það yrði að sjálfsögðu alfarið í eigu ríkisins, og svo eftir smátíma hefur verið byrjað á hægfara einkavæðingu. Þannig fór með gasveituna og þannig fór með franska símann, sem mjög er nú fjallað um í fjöl- miðlum. Þrýstingurinn er mik- ill: erkiklerkar markaðsvæðing- arinnar beita nú öllum tiltækum ráðum til að einkavæða alla þjón- ustu, þeir hafa sterkan bakhjarl sem eru kommissarar í Brussel, og þaðan er tilskipunin um einka- væðingu póstþjónustunnar upp- haflega komin. En eins og skoðanakannanir hafa leitt í ljós er mikill meiri- hluti Frakka gersamlega andvíg- ur þessum breytingum á póstþjón- ustunni, sem leikur stórt hlutverk í þjóðlífinu, sennilega mun stærra en pósturinn á Íslandi, enda á hún rætur sínar að rekja allt til stjórnartíma Lúðvíks ellefta á 15. öld. Víða í smáþorpum úti á landi er pósthúsið mikilvæg miðstöð, það er líka útibú sparisjóðs o.fl. Við þetta bætist að reynslan af einkavæðingu þjónustustarfsemi að undanförnu er harla slæm, svo hóflega sé til orða tekið. Hún hefur æfinlega leitt til mun lakari þjónustu, verðhækkana sem oft eru faldar með alls kyns blekk- ingum, auglýsingaskrums sem dynur á mönnum, mikilla upp- sagna starfsfólks og ömurlegrar meðferðar á þeim starfsmönnum sem eru eftir. Tvær milljónir manna tóku þátt í „þjóðaratkvæðagreiðslunni“, mun fleiri en nokkur hafði búist við, og níutíu af hundraði svör- uðu „nei“. En ljóst er að stjórn- völd ætla að láta sér þetta sem vind um eyru þjóta; þau hafa farið hinum háðulegustu orðum um þetta fyrirtæki. Það verður haldið áfram að dansa eftir lúðurhljómn- um frá Brussel. „Voitation“ EINAR MÁR JÓNSSON Í DAG | Pósturinn UMRÆÐAN Björn Valur Gíslason skrifar um stóriðju Stóriðjufyrirtækin á Íslandi vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa íslensku samfélagi á miklum erfiðleikatímum. Þessu lýsir upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi yfir í grein í Fréttablað- inu sl. fimmtudag. Annað í grein- inni er til að réttlæta að þau þurfi ekki að leggja meira af mörkum en þau gera nú. Upplýsingafulltrúinn segir að árlegar tekkju- skattsgreiðslur fyrirtækisins séu 1,3 ma.kr. Hann getur þess einnig að í upphaflegum fjárfestinga- samningi fyrirtækisins við íslensk stjórnvöld hafi verið gert ráð fyrir að fyrirtækið greiddi 33% tekju- skatt en hann hefur nú lækkað niður í 15%. Án þess- arar lækkunar má því ætla að fyrirtækið greiddi tæpa 2,9 ma.kr. árlega í tekjuskatt eða 1,6 ma.kr. meira en það gerir nú. Upplýsingafulltrúinn rekur einnig hvernig áform- uð umhverfis-, orku- og auðlindagjöld muni leggj- ast á fyrirtæki sitt. Hann segir 30 aura orkugjald á hverja kílówattsstund af rafmagni kosta fyrirtækið 900 m.kr. og gjald upp á 14 evrur á hvert losað tonn af koltvíoxíði 700 m.kr. eða samtals 1,6 ma.kr. Þessi gjöld myndu líklega lækka tekjuskatta fyrirtækisins um 2-300 m.kr. svo hækkun skatta yrði minni en sú skattalækkun sem því féll í skaut á liðinni blómat- íð og skattaleg staða þess betri en þegar það ákvað fjárfestingar sínar. Upplýsingafulltrúinn segir það álver sem hann er talsmaður fyrir nota 18% af þeirri raforku sem seld er á Íslandi. Með einföldum reikn- ingi sést að öll raforkan dygði rúmlega 5 álverum. Samanlagt myndu þau greiða 6,5 milljarða króna í tekjuskatt. Það eru 0,4-0,5% af vergri landsfram- leiðslu. Þessar skattgreiðslur eru meginhluti þess arðs sem Ísland hefur af þeim orkuauðlindum sem notaðar eru til raforkuframleiðslu. Telur fyrirtækið, upplýsingafulltrúinn og aðrir talsmenn þessa kerfis að þessir 6,5 milljarðar séu hæfileg renta Íslendinga af þessum náttúruauðlind- um sínum? Telja þeir það réttláta skiptingu að í hlut alennings kom 6,5 milljarðar á móti 43 milljörðum í hagnað álfyrirtækjanna eftir skatta? Finnst almenn- ingi auðlindunum vel varið með þessum hætti? Höfundur er alþingismaður Vinstri grænna. Hverra er ávinningurinn? BJÖRN VALUR GÍSLASON Hræðist samanburðinn? Forsætisráðuneytið hafnaði ósk Fréttablaðsins um að birta lista yfir þá sem komið hafa á fund Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Til- efni fyrirspurnar blaðsins var ákvörð- un Obama Bandaríkjaforseta um að birta gestalista Hvíta hússins. Nú hefur sá fyrsti verið birtur. Bill Gates, Brad Pitt, George Clooney, Serena Williams, Denzel Washington og Paul Krug- man nóbelsverðlaunahafa er að finna á listanum. Kannski óttast Jóhanna einfaldlega saman- burðinn; því trauðla er listi hennar jafn spennandi. Vika eineltis Síðasta vika var vika eineltis og fórnarlömb eineltis og aðstandendur þeirra sögðu ýmsar skelfilegar sögur um þetta samfélagsmein. Ótrúlegt er að heyra hvernig líf sumra er gert hreint helvíti á jörð fyrir engar sakir. Einhverjar augabrúnir lyftust því þegar Jón Magnússon, fyrrum alþing- ismaður, sakaði Egil Helgason um að leggja son sinn í einelti. Sonurinn, Jónas Fr. Jónsson, var eitt sinn forstjóri Fjármála- eftirlitsins. Spurning hversu smekkleg samlíkingin var í ljósi sumra reynslusagnanna. Surtla hin síðari? Margir hafa orðið til að gráta smölun villifjárins í Tálkna. Líkt og löngum hefur verið landans siður hafa víða hrotið vísur af munnum fram, órækur vottur þess að ljóðið lifir þrátt fyrir hrakspár Fræbbblanna og fleiri. Einhverjir hafa orðið til að rifja upp frægustu kind Íslandssögunnar, sjálfa Herdísarvíkur-Surtlu. Hún forðaðist smala um miðja síðustu öld og var að lokum felld. Til þess þurfti ekki færri en þrjú riffilsskot. Nú er að sjá hvort í Tálkna finnist jafnoki hennar. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.