Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 02.11.2009, Qupperneq 18
„Þetta eru sex til átta hlutir, ætl- aðir bæði til skrauts og nota og kokkteilhristarar eru þeir fyrstu á markað. Aðrir koma úr fram- leiðslu á næstu vikum, en verða þó bara gerðir í takmörkuðu upp- lagi,“ segir Hendrikka Waage um nýja gjafavöru úr hennar smiðju, þá fyrstu sinnar tegundar. Hún segir frumkvæðið hafa komið frá Einari Bárðarsyni hjá Víkinga- heimum á Suðurnesjum. Hann hafi óskað eftir að hún smíðaði eitthvað fyrir þá sem bæði væri þjóðlegt og nútímalegt. Hendrikka kveðst frá unga aldri hafa haft áhuga á víkingum og því hafi henni þótt heiður að því að hanna gjafavöru sem endurspegli þá einstöku menningu sem teng- ist þeim og sagnaarfinum. „Línan heitir „Designing my culture“ og ég var búin að skoða margar bækur áður en ég byrjaði að forma gripina,“ segir hún. Hendrikka býr og starfar í London en ferðast mikið og þegar haft var samband við hana vegna þessa viðtals var hún stödd í New York. Nýlega voru hanastélshring- ar hennar útnefndir meðal sex bestu hringja heims af tímaritinu Times og hönnun hennar hefur birst á síðum Vogue, Elle, Hello og fleiri þekktra tímarita. Hún hefur einnig tekið að sér að hanna dýra muni fyrir einstaklinga og samtök. Flestir hlutirnir úr hinni nýju gjafavörulínu eru úr silfri og ker- amiki en kokkteilpinnarnir eru úr silfri og tré. Þeir eru 20 cm langir og henta vel í djúp glös. Þeir fást í Víkingaheimum en Hendrikka kveðst vonast til að þeir verði til á fleiri stöðum. gun@frettabladid.is Sótti form í sagnaarfinn Íslenskar fornbókmenntir veittu Hendrikku Waage skartgripahönnuði innblástur er hún hannaði nútímalegar gjafavörur úr silfri, leir og tré. Fyrstir til að nema land eru kokkteilpinnar með víkingum á skafti. Kokkteilpinnarnir eru það fyrsta sem kemur á markað. Hendrikka bregður fyrir sig alls konar stíl í sinni smíði. Nú leikur hún sér með forn- sögurnar í nýlegri hönnun. LJÓSMYNDABÆKUR eru nýjung hjá Hans Petersen. Hægt er að búa til persónulega ljósmyndabók á einfaldan hátt með því að skrá sig inn á www.ljosmyndabok.is og bæta inn myndum. Einnig er hægt að fá dagatöl og tækifæriskort. Belgískur arkitekt hefur hannað fellihýsi í formi óperuhússins í Sydney. Opera heitir fellihýsið sem belgíski arkitektinn Axel Enthoven hannaði og hafði að fyrirmynd óperuhúsið fræga í Sydney í Ástralíu. Húsið opnast líkt og tjaldvagn og í því eru tvö rúm, klósett, heitt og kalt vatn og LED-lýsing. Lúxus- inn er ekki fjarri þar sem vínkæl- ir, espresso-kaffivél og innbyggð verönd mynda fallega umgjörð utan um sumarfríið. Opera verður frumsýnd í fyrsta sinn á hönnunarsýningu í Kortrijk í Belgíu í desember. Verið er að leggja lokahönd á fyrsta óperufellihýsið, sem búið er til í höndunum í Geldrop í Hol- landi. Húsið er handgert og búið til úr harðviði, ryðfríu stáli og leðri. Mjög takmarkað magn af óperu- fellihýsunum mun koma á markað árið 2010. Sumarfrí í óperu Arkitektinn belgíski hafði óperuhúsið í Sydney sem fyrirmynd þegar hann hannaði fellihýsið. www.elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419 Rope Yoga Námskeið hefjast 2. og 3. nóvember Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 2. nóvember Miðvikudagur 4. nóvember Fimmtudagur 5. nóvember Qi – Gong - Æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng- um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.00 -14.00. Skiptifatamarkaður - Útiföt barna - Komdu og skiptu útifötum barnanna í aðrar stærðir og gerðir. Tími: 13.30 -17.00. Táknmál fornaldar, kristin og gyðingleg talna- speki og Týnda táknið– Sr. Þórhallur Heimisson fjallar um talnaspeki, forn tákn, frímúrara og nýjustu bók Dans Brown. Tími: 13.30-14.30. Baujan sjálfstyrking - Byggð á slökunaröndun og tilfinningavinnu til sjálfshjálpar. Fullt! Tími: 15.00 -16.30. Samsöngur - Hefur þú gaman af því að syngja? Við léttum lundina með söng og gítarspili. Tími: 15.00 -16.00. Uppeldi sem virkar - Fyrsti hluti af fjórum sjálfstæðum fyrirlestrum. Uppeldi og foreldrafærni. Tmi: 12.30-13.30. Opnar umræður - Tilgangur lífsins. Tími: 12.30-13.30. Föndur, skrapp-myndaalbúm og jólakort - Gott er að hafa skæri meðferðis. Tími: 13.00-15.00. Saumasmiðjan - Gerðu nýjar flíkur á barnið úr gömlu fötunum þínum. Komdu með saumavél ef þú getur. Tími: 13.00-15.00. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Spænska og menning hins spænskumælandi heims - Fjórði hluti af fjórum. Framhald frá því í ágúst. Tími: 12.30-14.30. Íslenskuspilið – Glænýtt spil sem nýta má í íslensku- námi útlendinga. Komdu og spilaðu með! Tími: 13.00-15.00. Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 6. nóvember Tekist á við breytingar. 24 stundir - Kenndar verða aðferðir við að takast á við breytingar á jákvæðan hátt. Fyrri hluti. Lokað! Tími: 12.30-14.30. Prjónahópur - Vertu með! Tími: 13.00-15.00. Hraðskákmót - Tefldar verða nokkar umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma eftir Monradkerfi. Verðlaun veitt og Róbert Lagerman Fide meistari verður skákstjóri. Tími: 13.30-15.30. Af kynslóðabilunum og öðrum bilunum í sam- skiptum fólks - Þórhildur frá Þekkingarmiðlun fjallar um eldgamla liðið, ábyrgðalausu kynslóðina, skyndi- kynslóðina og þá ofdekruðu. Einnig um hve ótrúlegt sé að samskipti þeirra gangi upp! Tími: 15.00 -16.00. Allir velkomnir! Tekist á við breytingar. 24 stundir - Seinni hluti. Lokað! Tími: 12.30-14.30. Áhugasviðsgreining - Taktu áhugasviðskönnun og fáðu einkaráðgjöf í framhaldinu. Tími: 13.00-15.00. Tölvuaðstoð - Fáðu persónulega aðstoð og komdu með eigin tölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30. Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Nornin í Portobello eftir Paulo Coelho. Tími: 14.00-15.00. Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra atburða á andlega líðan fólks. Tími: 15.00-16.30. Var týndi sonurinn týndur? - Hefur þig alltaf langað að lesa Biblíuna en aldrei byrjað? Tími: 15.30-16.30. Þriðjudagur 3. nóvember Rauðakrosshúsið Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.