Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 31

Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 31
MÁNUDAGUR 2. nóvember 2009 3 Gaffall er ekki aðeins tól til að færa mat af diski og í munn. Fæstir velta fyrir sér hönnuninni að baki hag- nýtu fyrirbæri á borð við hnífapör en þó er stór iðnaður sem snýst einmitt um að búa þau í sem bestan búning til að laða að fagurkera. Enda skiptir það marga máli að geta boðið upp á fallegan borðbúnað í veislum og fjölskyldu- boðum. Royal VKB fékk nýlega fjóra alþjóðlega hönnuði til að hanna hnífapör fyrir fyrirtæk- ið. Þetta voru Bow-Wow, Gijs Bakker, Ineke Hans og Richard Hutten. Bow-Wow hönnunarteymið vísaði í hönn- un sinni til frumstæðari tíma þegar maður- inn uppgötvaði að hægt væri að nota grein- ar sem verkfæri. Richard Hutten hugsaði um gleðina við það að borða mat og vildi að hnífapör sín væru skemmtileg og auð- veld í notkun. Gijs Bakker hafði vatns- dropa í huga auk þess sem hann hafði tindana á göfflunum sérstaklega langa. Hnífapör Ineke Hans eru gróf og líta út fyrir að vera ósköp einföld í fyrstu. Þegar nánar er að gáð er önnur hlið þeirra fallega útflúruð. Nánar má skoða þessa hönnun á www.roy- alvkb.com. - sg Þar stendur hnífurinn í kúnni Danska hönnunarfyrir-tækið GamFratesi hefur hannað frumgerð að skemmtilegu skrifborði með þili sem helst minnir á helli. Þannig vildu hönnuðirnir mynda gott vinnuum- hverfi þar sem auðvelt væri að einbeita sér. Skrifborðið kallast Re write, eða Endur- skrift, og var kynnt á dögunum í lista- og hönnunarsafni Dan- merkur. Skrifborðið er hugsað sem nokkurs konar vinnukúla sem getur staðið ein og sér hvar sem er og veitt vinnufrið þeim sem á þarf að halda. Vinnufriður við skrifborðið SKRIFBORÐIÐ REWRITE GERIR FÓLKI AUÐVELT AÐ EINBEITA SÉR VIÐ VINNU SÍNA. Hollenski hönnunarneminn Erik De Nijs kynnti stórfurðulega hönnun á hönnunarviku í Eindhoven á dögunum. Hann hafði hannað fjórar ferðatöskur sem raða mátti saman þannig að úr yrði sófi. Verkið kallaði hann „Suited Case“ og markmiðið var að hanna eitt- hvað sem myndi minna ferðamenn á heimili sitt þegar þeir væru á ferðalagi. Ferðatöskurnar eru fóðraðar og bólstraðar með efni sem margir upplifa sem sófaáklæði. Hvort þægilegt er að ferðast með slíka hlunka er önnur saga, en vissulega myndi það gera ferðamönnum auðveldara fyrir að finna töskur sínar í ferðatöskuhafi flugvalla. Furðulegur ferðatöskusófi GOTT ER AÐ HVÍLA SIG Á FERÐALAGI EF MAÐUR Á FERÐATÖSKUR SEM BREYTAST Í SÓFA.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.