Fréttablaðið - 02.11.2009, Qupperneq 36
20 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jæja, hvað eigið
þið fleira
sameiginlegt?
Annað en að
það er vond lykt
af ykkur?
Hjónabands-
ráðgjafi
Í dag gerist það!
Í dag skapa ég
MEISTARAVERKIÐ!
Eða kannski
kemur það
bara seinna...
Pabbi, það var hringt í þig
og í þetta skiptið tók ég
niður skilaboð!
Ég náði ekki nafninu,
en ég skrifaði niður
hluta af númerinu.
Blekið kláraðist í
pennanum.
Spurðirðu hvað
málið snerist um?
Ókei, kannski eru
„skilaboð“ ekki
rétta orðið...
Rauðvín,
núna!
Eru þetta
ekki nýju
gallabuxurn-
ar þínar?
Jú.
Eins gott...
... ég þurfti
að nota alveg
hálfa rúllu af
límbandi.
Ég hélt að þær væru allt of stórar á
þig en þær virðast alveg
hanga uppi.
BAKÞANKAR
Þórhildar
Elínar
Elínardóttur
...ég sá það á visir.is
SKÓLALÍFIÐ
ER Á VISIR.IS
Skólalíf er fyrsti fréttavefur sinnar
tegundar á Íslandi þar sem framhalds-
skólanemar birta fréttir og myndir frá
félagslífi skólanna, auglýsa viðburði
og þú getur nálgast vefútgáfur
skólablaðanna.
Við viljum bjóða þinn skóla velkominn
á fréttavef framhaldskólanna á visir.is.
Sú frétt sem mestu uppnámi olli í síð-ustu viku var óumdeilanlega brott-
hvarf hins ameríska McDonald´s frá
Íslandi. Þúsundir landsmanna lögðu upp
í pílagrímsferð til að éta síðasta ham-
borgarann, skrifuðu tárvot blogg í stór-
um bunkum og stofnuðu stuðningssíður á
fésbókinni. Margir lögðu djúpan skilning
í þessa breytingu og litu á hana sem mik-
inn missi eða jafnvel byltingu eða þjóðar-
hreinsun. Verstu afleiðingar kreppunnar
eða þær bestu. Mikið frelsi eða einmitt
þvert á móti. Jafnvel virtust skoð-
anir fólks á þessum skyndibita
haldast í hendur við stjórnmála-
viðhorf og sívinsæl persóna rit-
stjóra Moggans flaut með á
furðulegan hátt.
FYRIR stuttu sýndu fjöl-
miðlar þeim fréttum áhuga
að umræddir hamborgarar
virðast hafa sömu eiginleika
og plastpokar, þ.e. þeir rotna
ekki. Þótt einhverjum kunni
að finnast dálítið ókræsilegt að
borða plastpoka láta aðdáendurn-
ir svona slúður ekki spilla fyrir
sér ánægjunni eitt augnablik.
Því ef til er örugg leið að hjarta
mannsins þá liggur hún svo
sannarlega í gegnum magann.
Við hér í velsældinni sem þurfum
fæst að hafa nokkrar áhyggjur af hung-
ursneyð höfum þess í stað komið okkur
upp alls kyns fræðingum sem fjalla um
það sama: Hvað skal éta og ekki éta.
NÚ er til dæmis enginn maður með
mönnum án þess að hafa farið í sérlega
afeitrun. Að baki því liggur sú fullyrð-
ing að við innbyrðum svo mikið eitur
sem líkaminn ráði ekki við, að í alls kyns
venjulegum mat séu svo rosalega mörg
aukaefni að hinum vesæla velsældarlík-
ama fallist hendur. Nauðsynleg endur-
hæfing felist í rándýrri innlögn á sérlegt
heilsuhæli og meðferð með föstu og stól-
pípum. Slíkt vinni á offitu, hjartasjúk-
dómum, þunglyndi, ofnotkun lyfja, húð-
sjúkdómum og gigt svo fátt eitt sé nefnt.
ÞÓTT líkaminn hafi marga undursam-
lega hæfileika er ekkert kerfi fullkomið
sé farið út fyrir ystu þolmörk. Sé fyllstu
sanngirni gætt er hægt að gera kröfu
um dálitla ábyrgð hvers og eins á eigin
heilsu. Ég fullyrði að slíkt er alveg hægt
að gera jafnt og þétt án þess að taka
hlé frá raunverulega lífinu og leggjast í
sjálfhverfa ristilskolun. Góð byrjun er til
dæmis að hætta að éta plastpoka. And-
virði meðferðarinnar væri svo tilvalið að
leggja inn á reikning ABC hjálparstarfs
sem bjargar litlum börnum sem eiga í
alvörunni bágt.
Má bjóða þér að éta plastpoka?