Fréttablaðið - 02.11.2009, Page 42
26 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
FÓTBOLTI Íslendingaliðið Gauta-
borg varð að bíta í það súra epli
að tapa sannkölluðum úrslitaleik
gegn AIK í sænsku úrvalsdeild-
inni í gær.
Leikurinn fór fram á heimavelli
Gautaborgar og endaði 1-2 fyrir
AIK en gestunum dugði jafntefli
til þess að vinna deildina. Gauta-
borg hefði aftur á móti með sigri
getað hirt titilinn af AIK.
Gautaborg byrjaði betur og
komst yfir í leiknum með marki
frá Thomas Olsson á 32. mínútu
og staðan var 1-0 heimamönn-
um í vil í hálfleik. Antonio Flá-
vio jafnaði hins vegar leikinn
fyrir AIK snemma í síðari hálf-
leik og Daniel Tjernström inn-
siglaði sigur AIK og gulltryggði
meistaratitilinn með sigurmarki á
86. mínútu leiksins. Íslendingarn-
ir þrír, Hjálmar Jónsson, Ragn-
ar Sigurðsson og Theodór Elmar
Bjarnason voru allir í byrjunarliði
Gautaborgar í leiknum en Theod-
óri Elmari var skipt af velli á 76.
mínútu.
Gautaborg fær hins vegar kjör-
ið tækifæri til þess að hefna fyrir
tapið um næstu helgi þegar liðin
mætast í úrslitaleik sænska bik-
arsins en Gautaborg hefur þar
titil að verja.
GAIS endaði tímabilið hins
vegar með góðum 1-3 sigri gegn
Halmstad í sænsku úrvalsdeild-
inni í dag. Hallgrímur Jónasson
og Eyjólfur Héðinsson léku allan
leikinn með GAIS og áttu góðan
leik en Hallgrímur skoraði þriðja
mark GAIS og Eyjólfur lagði upp
annað mark liðsins.
Jónas Guðni Sævarsson var
á sínum stað í liði Halmstad en
Guðjón Baldvinsson og Guðmund-
ur Reynir Gunnarsson voru ekki
í leikmannahópi GAIs að þessu
sinni.
Helgi Valur Daníelsson lék
allan leikinn í 1-0 sigri Elfsborg-
ar í öðrum Íslendingaslag gegn
Helsingborg en Ólafur Ingi Stígs-
son var á sínum stað í liði Helsing-
borgar. - óþ
Lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar fór fram í gær þar sem Íslendingaliðið Gautaborg missti af titlinum:
Gautaborg varð að sætta sig við silfrið
RAGNAR SIGURÐSSON Átti enn eitt
frábæra tímabilið með Gautaborg í
sænsku úrvalsdeildinni. MYND/TOMMY HOLL
FÓTBOLTI Real Madrid fékk upp-
reisn æru með 2-0 sigri gegn
Getafe í spænsku úrvalsdeild-
inni um helgina á meðan Bar-
celona missteig sig óvænt gegn
Osasuna.
Útlitið var ekki gott lengi fram-
an af fyrir Real Madrid á Santi-
ago Bernabeu-leikvanginum í
kvöld því eftir tæplega hálf-
tíma leik fékk Raul Albiol
að líta beint rautt spjald
fyrir gróft brot en staðan í
hálfleik var markalaus.
Í upphafi síðari hálfleiks
fóru hlutirnir hins vegar
að gerast og á 53. mín-
útu opnaði Higuain
marka reikninginn fyrir
heimamenn eftir góðan
undirbúning Marcelo.
Higuain var svo aftur
á ferðinni skömmu síðar þegar
hann skoraði eftir hraða sókn
Madridinga en hann fékk þá send-
ingu frá Karim Benzema.
Ljóst er að úrslitin verða til þess
að taka hitann að einhverju leyti
af knattspyrnustjóranum Manuel
Pellegrini eftir slakt gengi und-
anfarið. Higuian var sigur-
reifur í leikslok og vandaði
gagnrýnend-
um liðsins
ekki kveðj-
urnar.
„Þetta
var gríð-
arlega
þýð-
ingar-
mikill
sigur
eftir
erfiða viku
þar sem við þurftum
að hlusta á og lesa
algjört þvaður um
liðið í fjölmiðlum.
Við sýndum það og sönnuðum
með þessum sigri að við getum
unnið deildina. Við létum það
ekki á okkur fá þótt við spiluðum
manni færri í klukkutíma og við
sýndum að við erum með mann-
skapinn til þess að ná góðum
árangri,“ sagði Higuain í viðtali
við Marca í leikslok.
Flest benti til þess að mark
Seydou Keita á 73. mínútu myndi
duga Barcelona til sigurs gegn
Osasuna. Það reyndist hins vegar
ekki raunin því varnarmaðurinn
Gerrard Pique varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark í upp-
bótartíma og niðurstaðan því eins
og segir jafntefli.
Barcelona er því aðeins með
eins stigs forskot á Real Madrid
á toppi deildarinnar en bæði lið
eru búin að spila níu leiki.
Þá hélt Sevilla pressunni á topp-
liðin tvö með 0-2 sigri gegn Xerez
þar sem framherjarnir Alvaro
Negredo og Luis Fabiano voru á
skotskónum. - óþ
Real Madrid náði að minnka forskot Barcelona á toppi spænsku deildarinnar:
Higuain hetja Real Madrid
GONZALO HIGUAIN Stal
senunni á Santiago Bernabeu-
leikvanginum í fyrrakvöld.
NORDIC PHOTOS/AFP
KAPPAKSTUR Það var Sebasti-
an Vettel hjá Red Bull sem vann
á lokamóti tímabilsins í F1 en
keppnin fór fram á glænýrri
braut í Abu Dhabi í gær.
Vettel tók forystu eftir að
McLaren-bíllinn hjá Lewis Ham-
ilton bilaði og leit aldrei til baka
eftir það. Með sigrinum tryggði
Vettel sér annað sæti í stiga-
keppni ökuþóra en Jenson Butt-
on hjá Brawn var sem kunnugt
er þegar búinn að tryggja sér
heimsmeistaratitilinn.
Liðsfélagi Vettel hjá Red Bull,
Mark Webber, varð annar í gær
og Button varð þriðji. - óþ
Lokakappakstur tímabilsins:
Vettel fór með
sigur af hólmi
SEBASTIAN VETTEL Fagnaði vel eftir sigur
sinn í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
HANDBOLTI Arnór Atlason er nú
loksins laus við meiðsli eftir að
hafa glímt við hnémeiðsli alveg
frá því að Evrópumeistaramótinu í
Noregi lauk fyrir næstum tveimur
árum. Á þessum tíma hefur hann
þurft að fara í þrjár aðgerðir en
það var ekki fyrr en í mars síð-
astliðnum að hann fór loksins að
sjá fyrir endann á þessari þrauta-
göngu. Þá gekkst hann undir stóra
aðgerð hér á landi sem virðist hafa
borið góðan árangur.
„Ég er meiðslafrír og er búinn
að spila hvern einasta leik á tíma-
bilinu til þessa,“ segir Arnór, sem
er á mála hjá FC Kaupmanna-
höfn.
Hann spilaði í raun meiddur á
Ólympíuleikunum í Peking í fyrra-
sumar og þurfti að fara í aðgerð í
nóvember á síðasta ári. Hann náði
sér þó aldrei að fullu og ákvað því
að koma heim til að gangast undir
aðgerð vegna meiðsla á liðþófa og
brjóskskemmdum í hné.
„Hingað til hef ég verið ánægð-
ur með minn bata og ég er sífellt
að komast í betra og betra form.
En ég þarf þó alltaf að passa mig
og vera klókur. Þetta situr alltaf í
hausnum á manni,“ segir Arnór.
Hann segir þó að það hái ekki
sínum leik. „Ég er algjörlega far-
inn að sleppa fram af mér beisl-
inu. Ég gat ekki spilað mikið í
byrjun tímabilsins en hef spilað
sífellt meira upp á síðkastið og er
því óðum að nálgast fyrra form.“
FCK er sem stendur í fjórða
sæti dönsku úrvalsdeildarinnar
með tólf stig eftir átta leiki. Arnór
segir að liðið sé á réttri leið.
„Við höfum tapað tveimur leikj-
um í haust en báðir voru á mjög
erfiðum útivöllum – gegn Kold-
ing og Bjerringbro. Við erum þó
búnir að vinna góða sigra í Meist-
aradeildinni og stefnum óhikað á
sextán liða úrslitin í henni. Þar að
auki erum við komnir í undanúr-
slit í bikarnum.“
Úrslitin í dönsku úrvalsdeild-
inni ráðast í úrslitakeppni í vor og
því hefur Arnór ekki áhyggjur af
því þótt liðið misstígi sig örlítið í
deildinni nú. „Aðalmálið er að vera
í hópi efstu átta liða. Við misstum
einnig leikstjórnandann okkar,
Klavs Bruun Jörgensen, í sumar
og það tekur tíma að byggja upp
nýjan sóknarleik,“ sagði hann.
Arnór hefur tekið að sér að
leysa stöðu leikstjórnanda eftir að
Jörgensen fór og kann vel við það
hlutverk. „Mér líkar það vel. Það
virðist henta mér betur því í þeirri
stöðu get ég hlíft hnénu betur en
þegar ég spila í skyttustöðunni.
Hins vegar finnst mér mjög gott
að koma aftur í landsliðið og kom-
ast aftur í skyttuna.“
Þrátt fyrir baráttu sína við
meiðslin gegndi Arnór gríðarlegu
mikilvægu hlutverki í íslenska
landsliðinu þegar það vann til silf-
urverðlauna á Ólympíuleikunum.
Ljóst er að Arnór verður liðinu
einnig mikilvægur á EM í Aust-
urríki.
„Það miðast allt við að komast
til Austurríkis og ætla ég mér að
vera í toppformi þegar mótið fer
fram. Ég hlakka mikið til.“
eirikur@frettabladid.is
Farinn að sleppa fram af mér beislinu
Arnór Atlason er nú kominn á fullt skrið eftir að hafa glímt við erfið hnémeiðsli í um eitt og hálft ár. Hann
stefnir á að koma sér aftur í toppform fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram í Austurríki eftir áramót.
SILFURHAFINN ARNÓR Fagnar hér sigri á Spánverjum í undanúrslitum Ólympíuleikanna í Peking í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
20%
Afsláttur
til 7. nóv
körfuboltaskór
Adidas Speed Cut
Verð Kr. 19.990.-
Nú kr. 15.990.-
Adidas Pro Model
Verð Kr. 18.990.-
Nú kr. 15.190.-
Adidas Commander LT
Verð Kr. 24.990.-
Nú kr. 19.990.-
Adidas Attack Feather
Verð Kr. 16.990.-
Nú kr. 13.590.-
Adidas 3 series barna
Verð Kr. 10.990.-
Nú kr. 8.790.-
Ármúli 36, s. 588 1560
www.joiutherji.is