Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 7

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1927, Blaðsíða 7
tí'ímarit <3ðnaðarmanna Gefið út af stjórn Jðnaðarmannafjelagsins, Reykjavík. SFT hefir verið um það rætt innan Iðnaðarmannafjelagsins í Reykja- vík, hvílíka nauðsyn bæri til þess, að íslenskir iðnaðarmenn eignuðust tímarit, sem yrði málsvari þeirra. Um eitt skeið var málið komið í það horf, að ráðinn var rit- stjóri, Rögnvaldur heitinn Olafsson, hús- gerðarmeistari. Rögnvaldi entist ekki aldur til þess að koma út ritinu, því heilsan brást áður en varði. Framkvæmdir urðu svo eng- ar í málinu þangað til síðastliðið ár, að á- kveðið var að byrja á útgáfu tímarits á sex- tugsafmæli fjelagsins. Að líkindum verður fyrst í stað um ársfjórðungsrit að ræða og birtist hjer fyrsta eintakið sem einskonar af- mælisgjöf til iðnaðarmanna. En fjelagið ræðst í útgáfu ritsins eingöngu fyrir þá sök, að með ári hverju kemur betur í ljós sundur- þykkja iðnaðarmanna í þeim málum, sem varða hag þeirra og þjóðarinnar. Hjer og þar eru að vísu iðnaðarmenn sem hafa ó- skiftan samvinnuvilja, en þá vantar gagn- kvæman skilning stjettarbræðra sinna. Iðn- aðarstjettin íslenska er á uppvaxtarskeiði, og svipað má segja um atbeina Alþingis í iðnmálum. En iðnaðarmenn geta ekki ásak- að löggjafarvaldið fyrir aðgerðarleysi áður en þeir vita hvað þeir vilja. Ástandið er ósköp eðlilegt. Landið er strjálbygt og auk þess eru iðnaðarmenn ósamhentir þótt í kauptúni sje. Nú er tími til kominn að ræða um samvinnu og til þess ætti tíma- ritið að vera vel fallið. Óskift samvinna er fyrsta sporið í framfaraáttina. Hún eflir iðn- aðarstjettina út á við og inn á við. Sam- tökin eiga einkum að vera í því fólgin að efla bóklega og verklega mentun iðnað- armanna, svo að vandvirkni og hagsýni aukist í öllu er að iðnaði lýtur. Með slík- um hætti verður iðnaðarstjettin samkepnisfær, og samtök á þessum grundvelli á tímaritið að glæða. Það á líka að hafa vakandi auga á öllu er iðnaði vorum mætti að gagni koma, svo sem nýjungum og lagaákvæðum, er að einhverju leyti kynni að hafa áhrif á iðnað vorn. Ennfremur á ritið að útbreiða almenna þekkingu á iðnmálum og auka þannig skilning þjóðarinnar og löggjafar- valdsins á því, sem.eflt gæti íslenskan iðnað. Vitanlega kemur tímaritið því aðeins að tilætluðum notum, að iðnaðarmenn geri sjer glögglega grein fyrir því, að hjer sje um sameiginlegt málgagn að ræða. Að því leyti er gagnsemi ritsins undir því komin að iðn- aðarmenn og fjelög þeirra færi sjer það í nyt, og ræði í því mál þau, er nokkru varða iðnaðinn. Verkefnið er víðtækt og erfitt viðfangs, en því miklu fremur ættu iðnaðarmenn að sameinast um ritið og stuðla að því að það geti lagt til farsælan þátt í þjóðlíf vort. Með óskiftri viðleitni reynum vjer að hefja göngu tímarits iðnaðarmanna í þeirri von að því verði vel tekið, og að það geti orðið ljósberi íslenskra iðnmála. F. h. Stjórnar Iðnaðarmannafjelagsins. Gísli Guðmundsson, formaður. 1

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.