Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 6

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 6
SAMSTARFIDNADARMANNA OGIDNREKENDA (NOREGI FRÁ NORSKAIDNÞINGINUIÞRANDHEIMI Um mánaðamótin maí—júní 1976 var forseta og framkvæmdastjóra Landssambands iðnaðarmanna boðið að sitja aðalfund Norsku iðnaðarsamtakanna (Norges Handverks- og industribedrifters forbund), en þau eru eins og kunnugt er systursamtök Lands- sambandsins í Noregi. Fundur þessi var fyrir marga hluti merkilegur og ekki hvað síst vegna þess að þar var gerð samþykkt, sem marka mun tímamót í sögu Norsku iðnaðarsamtakanna. Fyrir fundinn liöfðu félagsleg samvinna og samskipti iðnrekenda og iðnaðarmanna í Noregi verið til umræðu í nefnd skipaðri af fulltrúum beggja þessara aðila. í stórum dráttum háttar til í Noregi eins og hér á landi, að iðnrekendur eru sameinaðir í einum heildarsam- tökum og iðnaðarmenn í öðrum. Hins vegar er all mikill fjöldi smá iðnfyrirtækja í verksmiðju- eða l'ramleiðsluiðnaði félagsbundinn í samtökum iðnað- armanna, þar sem þau eiga félagsaðild að blönduð- um félögum iðnmeistara og iðnrekenda, svonefndum iðnfélögum (Hándværks- og industriforeninger). Þótti mörgum sem ýmsir kostir myndu fylgja því að sameina heildarsamtökin í eina sterka heild, er sameiginlega gæti glírnt við stærri viðfangsefni en þau geta hvort í sínu lagi. Ennfremur mætti losna við ýmsa galla, sem eru samfara tvennum samtök- um, þótt auðvitað væri Ijóst að sameining þeirra yrði varla eingöngu dans á rósum. Niðurstaða þessara umræðna varð sú, að samstaða náðist um að leggja fyrir aðalfundi beggja samtak- anna drög að samningi um mjög náið samstarf þeirra í millum. Er þar gert ráð fyrir að samstarfs- samningurinn verði í gildi í þrjú ár, en að þeim tíma liðnum verði samtökin sameinuð algjörlega. Reynslutíminn verður notaður til að ákveða end- anlega með hvaða hætti það skuli gert. Var þetta mál síðan aðalmál fundarins og lagði stjórn samtakanna eindregið til að það yrði sam- þykkt. Lá þá fyrir að iðnrekendur liefðu þegar sam- þykkt samninginn fyrir sitt leyti. í inngangi samningsins er rætt um aðal röksemd samtakanna fyrir þessari þýðingarmiklu ákvörðun, en þar segir: „Tækniþróunin hefur liaft það í för með sér að framleiðsluaðferðir í verksmiðjuiðnaði og fjölda handiðngreina hafa orðið þær sömu. Einnig hafa verksmiðjuiðnaður og handiðnaður í aðalatriðum sömu hagsmuna að gæta. Það er þess vegna æski- legt og eðlilegt að samhæfa þau samtök, sem eiga að annast hagsmuni þessara tveggja atvinnugreina. Með slíkri samhæfingu nást einfaldari stjórnunar- Iiættir og starfskraftarnir nýtast betur. Einnig mun þessi ráðstöfun skapa sameiginlegan málsvara út á við og leiða til betri þjónustu og leiðbeiningarstarfs fyrir eigin meðlimi. Takmarkið hlýtur að vera algjör samruni (sameining) samtaka þessara tveggja at- vinnugreina." Samkvæmt samningnum munu Norsku iðnaðar- samtökin og iðnrekendasambandið tengjast skipu- lagslega þannig, að sett verður á fót sérstök samstarfs- nefnd skipuð fimm fulltrúum frá hvorum aðila. Á aðlögunartímanum munu samtökin starfa sjálfstætt og fjármálalega óháð hvort öðru. Á sama tíma munu Norsku iðnaðarsamtökin leiða starfsemi landssam- taka handiðnaðarins, en iðnrekendasambandið starf- semi iðngreinafélaga verksmiðj uiðnaðarins. Samtök verksmiðjuiðnaðarins og handiðnaðarins munu skipta með sér verkum á sem hagkvæmastan hátt og koma sameiginlega fram opinberlega og í opinber- um nefndum. Ennfremur munu skrifstofur sam- takanna samhæfðar með glöggri verkaskiptingu og reynt verður að koma á fót sameiginlegri ritstjórn tímarita samtakanna, með það í liuga að eftir ákveð- inn aðlögunartíma komi eitt sameiginlegt tímarit út. Á aðlögunartímanum munu fyrirtæki í verk- smiðjuiðnaði, sem verið liafa aðilar að Norska iðn- aðarsambandinu (samtökum handiðnaðarins) njóta allrar þeirrar þjónustu, sem iðnrekendasambandið liefur veitt og mun veita smáum og meðalstórum fyrirtækjum, án þess að um nokkra breytingu á að- ildargjöldum verði að ræða. Fyrirtæki þessi fá einnig rétt til að tilnefna tvo fulltrúa í stjórn þeirrar deild- ar iðnrekendasambandsins, sem hefur þessi mál á sinni könnu. Þá er og gert ráð fyrir því, að starfsemi 6

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.