Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 15
jarðfræðirannsóknir
(geoteknik)
Með jarðfræðirannsóknum er
átt við rannsóknir, sem miða að
því að ákvarða styrkleika, burðar-
getu og vatnsþéttleika jarðvegs.
Hefur stofnuin aflað sér full-
komins tækjakosts á þessu sviði og
getur nú tekið að sér öll almenn
verkefni er lúta að ákvörðun á
jarðtæknilegum hönnunarforsend-
um við mannvirkjagerð.
Til þessa hefur Jijónusta af Itessu
tagi einkum verið vegna jarðstíflu-,
hafna- og vegagerðar.
Þjónusta á þessu sviði, sem bein-
ist meir að einstaklingum myndi
vera fólgin í Jrví að ákvarða eigin-
fyllingarefna, hvort efnin séu auð-
þjöpjtuð, hvort þau séu frostnæm,
hvort þau gefi fullnægjandi burð
fyrir undirstöður, ennfremur að
mæla burðarþol og þjöppun fyll-
'nga á byggingarstað.
Að rannsóknum sem þessum
starfa að jafnaði 2—3 rannsóknar-
menn.
húsbygginga-
tæknilegar
Rannsóknir
Leitast hefur verið við að auka
rannsóknir á þessu sviði. Unnt er
að mæla styrkleika flestra bygging-
arefna t.d. togjjol steypustyrktar-
járns, styrkleika bita, naglahald o.
s- frv.
Með tilkomu slagregnsskáps opn-
uðust möguleikar á að mæla þétt-
leika samskeyta af ýmsu tagi.
Nafnið gefur nokkuð til kynna
Itvers konar tæki hér er urn að ræða,
Þ- e. a.s. tæki sem getur framkall-
að slagveður. Skápurinn er þann-
tg gerður, að í honum er komið
fyrir blásara og regnúðunarsækj-
um.
Blásarinn blæs vatnsdropum
gegnum 16 útblástursop á vegginn
sem prófa skal. Með vélbúnaði eru
utblástursstútarnir og vatnskran-
urnir hreyfðir upp og niður fyrir
framan vegginn. Með annarri vél
er jöfnum blæstri blásarans breytt
í vindhviður. Yfirjrrýsting skáps-
ins má stilla með lokum, en blást-
urshviður eru 8 á hverri mínútu.
Skápurinn er einkum notaður við
eftirtalin verkefni:
1. Til að gera samanburðarpróf-
anir á Jréttleika mismunandi
samskeyta.
2. Til að gera prófanir á glugg-
um, Joéttleika opnanlegra
glugga með og án Jiéttilista og
ísetningu glers.
3. Sem hjálpartæki við liönnun
ýmissa samskeyta og val hag-
kvæmra lausna.
Meðfylgjandi teikning sýnir lá-
rétt og lóðrétt snið af skápnum.
Gerð hefur verið skrá yfir allar
kíttistegundir sem eru hér á mark-
aðnum og Jtær flokkaðar eftir eig-
inleikum. Niðurstöður þessara
rannsókna hafa verið gefnar út í
Rb-lausblöðum.
Mikið er um ýmiss konar próf-
anir á byggingarefnum og er jafn-
framt unnið að markaðskönnun á
ákveðnum sviðum byggingarefna
með útgáfu í huga.
Mikið er um það að leitað sé
til Rannsóknastofnunar bygginga-
iðnaðarins Jregar um byggingar-
galla er að ræða og eru raka- og
lekavandamál þar mest áberandi.
ÚTGÁFUSTARSEMI
Reynt hefur verið að koma
tæknilegum upplýsingum innan
byggingariðnaðarins á frantfæri á
tvennan hátt, Jj.e.a.s. með útgáfu
sérrita annars vegar og tæknilegra
lausblaða liins vegar. í sérritum
j)á er ákveðnum málaflokkum gerð
ýtarleg skil en lausblöðin gefa
möguleika á að taka fyrir ákveðna
afmarkaða Jiætti og koma upplýs-
ingum varðandi |)á á framfæri. í
þeim tilgangi gefur stofnunin út
svokölluð Rb-blöð, sem safnað er
saman í þar til gerðar möppur.
Það er einkum með útgáfu laus-
Itlaða, sem unnt er að auka upp-
lýsingastreymi til iðnaðar- og tækni
manna í byggingariðnaði, og því
er af hálfu Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins lögð aukin á-
hersla á Jrennan Jrátt starfseminn-
ar. Er áætlað að gefa út á Jiessu
ári 10—12 lausblöð og reynt verð-
ur að halda þeim útgáfuliraða á
næstu árum. Á tveggja ára fresti
gefur stofnunin einnig út ársskýrsl-
ur með yfirlit yfir helstu verkefni
og starfsemi stofnunarinnar. Öll rit
eru sekl á skrifstofu stofnunarinn-
ar og hjá Byggingaþjónustu AÍ á
Grensásvegi 11.
Hdkon Ólafsson,
yfirverkfrœ ð i ngur.
HREYFILL
BLASARI
LOKI
BLASTURSSTÚTUR
VATNSÚÐARI
KEÐJUDRIF
PRDFVEGGUR
LDÐRÉTT SNIÐ
Slagregttssliápur. TœkiÖ er notaö til þéttleikaprófunar á vegg- og gluggaeiningum.
15