Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 35
um má nefna segulbönd, sýningarvélar í’yrir skugga-
myndir og kvikmyndir.
Ekki var Dansk Arbejdsgiverforening sérlega
ánægt með árangur af „Hvernig gengur fyrirtækið".
Var okkur sagt að sennilega sé nauðsynlegt að kenna
efnið með því að taka fyrir eitt fyrirtæki í einu,
sem auðvitað er mjög kostnaðarsöm aðferð. Dansk
Arbejdsgiverforening hefur látið gera könnun á
hvernig „Hvernig gengur fyrirtækið" hefur heppn-
ast, og fengum við eintak af niðurstöðum.
Þar sem árangur af útgáfustarfsemi þessari olli
vonbrigðum, mun Dansk Arbejdsgiverforening ekki
ætla sér útgáfu svokallaðra „mini version“ af efn-
inu, en þess má geta, að um þessar mundir er ný-
lokið þýðingu þess úr norsku á íslensku.
NÁMSKEIÐ Á GL. AVERNÆS
Námskeið þetta var haldið á vcgum Hándværks-
rádet fyrir ráðgjafa sérsambanda innan þess. Mark-
mið með námskeiðinu var, fyrir utan að kynna J)á
málaflokka, sem voru á dagskrá, að gera ráðgjöfun-
um kleift að nota umrædd efni til kennslu. Þeir
málaflokkar, sem voru á dagskrá, voru þessir:
Bókhald
Fjármögnun
Samvinna
Bókhald
Námskeiðið byrjaði með kynningu á sjónvarpsút-
sendingum, sem eiga að fjalla um bókfærslu og
reikningshald minni iðnfyrirtækja (Regnskapsföring
for hándværk og minde industri). Til grundvallar
þessum útsendingum liefur Danmarks Radio látið
gera bók um efnið, í samráði við Hándværksrádet
og fleiri stofnanir.
Útsendingar Jiessar koma í sjónvarpi og útvarpi
— sjö í sjónvarpi og sjö í útvarpi. Eftir hverja út-
sendingu geta þátttakendur hringt í Hándværks-
rádet og ráðgjafa liinna ýmsu sérsambanda og feng-
ið spurningum svarað.
Eftir að hafa kynnt okkur bókina, erum við sam-
mála um að hún henti mjög vel íslenskum smá-
fyrirtækjum, eftir að bókin hefur verið heimfærð á
íslenskar aðstæður. Hins vegar urðum við fyrir mikl-
um vonbrigðum með sjónvarpsútsendingarnar, sem
að okkar mati voru illa gerðar.
Fjármögnun
A öðrum degi var fjallað um fjármögnun. Hefur
Hándværksrádet gert bækling um fjármögnunar-
möguleika handverksfyrirtækja, sem auðvitað er
skrifaður út frá dönskum aðstæðum.
í fyrirlestrum tveggja bankamanna kom fram, að
bankar og aðrar lánastofnanir leggja mikla áherslu
á að J)ær upplýsingar, sem fyrirtækið þarf að láta í
té, séu unnar í fyrirtækinu. Að öðru leyti fór dag-
urinn í að ræða mál, sem eru staðbundin við Dan-
mörk.
Samvinna
Síðasta daginn var fjallað um samvinnu. Skiptust
J)ær umræður í þrjá málaflokka. í fyrsta lagi hvers
vegna samvinna og í hvaða formi, kostir og gallar.
1 öðru lagi hinir svokölluðu ERFA-liópar, sem eru
umræðuhópar, þar sem skipst er á skoðunum og
íeynslu. í J>riðja lagi var fjallað um samvinnu í út-
flutningi.
í framhaldi af fyrirlestrinum um ERFA-hópana,
var sýnd sjónvarpsmynd um þá, sem félag endur-
skoðenda hafði látið gera. Okkur fannst fyrirlestur-
inn og myndin mjög athyglisverð og teljum æski-
legt að þessi mál verði kynnt hér á landi. ERFA-
hópur er á dönsku ERFA-gruppe, og er stytt úr orð-
inu Erfaringsgruppe.
Á námskeiðinu á Gl. Avernæs gafst okkur einnig
tækifæri til að skiptast á skoðunum og fræðast af
starfsmönnum Hándværksrádet og ráðgjöfum hinna
þátttakenda í námskeiðinu. Meðal annars íæddum
við um starfsaðferðir J)essara manna, árangur starfs-
ins, samvinnu innbyiðis og margt fleira. Þessar um-
ræður voru að okkar mati mjög J)ýðingarmikill þátt-
ur námskeiðsins.
HELGARNÁMSKEIÐ l VIBORG
Markmið okkar með J)ví að sækja námskeiðið var
að kynnast ])ví hvernig námskeið innan sérsambanda
Hándværksrádets fara fram. Á dagskrá voru J)cssir
málaflokkar:
Laugardagur: Kynslóðaskipti í fyrirtæki
V erðlagslöggj öf i n
Sunnudagur: Vandamál í sambandi við iðn-
nema.
Námskeiðið fór fram á hefðbunclinn hátt og
fannst okkur ekkert markvert koma fram í því hvern-
ig námskeiðshald fer fram. Þá tókum við eftir einu
atriði, sem okkur Jjótti til fyrirmyndar, en J>að var að
eiginkonur iðnmeistaranna tóku J)átt í námskeið-
inu. Þeir málaflokkar, sem voru til umræðu, eru
staðbundnir Danmörku, og teljum við ekki ástæðu
til að rekja það nánar.
Þess má geta að lokum, að Hándværksrádet bauð
Sigurði Guðmundssyni að slást í för með fram-
kvæmdastjóra Hándværksrádets til Genf á fund Al-
Jjjóðasamtaka smáfyrirtækja (Internationale Gen-
werbeunin), sem bæði Landssambands iðnaðar-
manna og Hándværksrádet eru aðilar að. Urðu ])eir
fyrir miklum vonbrigðum með fundinn og ákváðu
að mæla eindregið með j>ví hvor um sig að Hánd-
værksrádet og Landssamband iðnaðarmanna segðu
sig úr samtökum þessum.
35