Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 18

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 18
Verkefni 13: Tœkniaðstoð vegna skipaviðgerða Fyrra verkefnið liófst haustið 1974. Þrjár skipasmíðastöðvar hafa verið aðalþátttakendur. Aðstoðin hefur einkum beinst að hagræð- ingu við teikningar, stálvinnslu og vinnubrögð við skrokksmíði. Hef- ur árangur orðið mjög athyglis- verður. í beinu framhaldi af þessu verk- efni hefur athygli beinst að við- gerðarþörf og afkastagetu í skipa- viðgerðum hér á landi. Hefur á undanförnum mánuðum verið unnið að undirbúningi umfangs- mikillar áætlunar, sem miðar að alhliða endurbótum á skipavið- gerðaþjónustu og aðstöðu hennar. Verkefni 14: Endurvinnslu- iðnaður Unnið er að forkönnun á Iiag- nýtingarmöguleikum ýmis konar úrgangs, sem til fellur hér á landi, svo sem pappírs, málma, plasts, gúmmís, glers o. fl. Verkefni 15: Álsteypa Verkefni þetta beinist að því að athuga, hvaða álafurðir kæmi til greina að steypa hérlendis umfram það sem nú er gert. Á s.l. ári var þetta m.a. kannað varðandi álflot á veiðarfæri. Er þcssari athugun haldið áfram á þessu ári. Verkefni 16: Skilgreining á for- sendum nýiðnaðar Verkefni 17: Könnun smáiðnað- artœkifœra Verkefni 18: Könnun meðalstórra iðnaðartœliifœra Fyrsta verkefnið lýtur einkum að því að þróa vinnubrögð í sam- bandi við samanburð á iðnaðar- tækifærum. Þá er einnig ætlunin, að athuga innanlands og utan, Iivernig leysa má fjármögnun ný- iðnaðar. Verkefni 17 og 18 beinast að því að byggja upp á skipulegan hátt þekkingarbanka vegna iðnaðar- tækifæra. Að eðli til er þetta eitt og sama verkefnið en til hagræðis er hug- myndin að flokka iðnaðarverkefni eltir stofnkostnaði innan við 200 millj. kr. og yfir (allt að 2000 millj. kr.). Hugmyndir koma stöðugt fram um nýiðnað .Með skipulegri leit hugmynda, kerfisbundinni upplýs- ingaöflun og samanburði og mati er þess vænst, að framkvæmdaaðil- ar geti gert sér skýrari mynd af valkostum, en verið hefur. Verkefni 19: HluUifrarnleiðsla (komponentar) Alþekkt. er að víða erlendis sér- hæfa fyrirtæki sig í framleiðslu hluta, sem annað livort ganga inn í framleiðslu annarra iðnfyrirtækja (t.d. bifreiðaverksm.) eða eru seldir sem varahlutir. — Ætlunin er að afla vitneskju um starfsemi og við- skipti af þessu tagi og meta hvort ástæða og aðstaða sé til fyrir ís- lenska aðila að sinna framleiðslu- möguleikum og markaðstækifær- um á þessu sviði. Verkefni 20: Námskeið fyrir iðn- aðarmenn og iðn- verkafólk Með tilkomu væntanlegrar Tæknistofnunar verður stefnt að stóraukinni fræðslustarfsemi fyrir starfsfólk í iðnaði hvers konar. Með verkefni þessu er stefnt að því að hefja undirbúning að skipu- legu námskeiðahaldi. Hús eftir þínu höfði Við framleiðum staðlaðar einingar í steinhús og hönnum húsin samkvæmt óskum hvers kaupanda. Kynnið ykkur kostina. Hafið samband við sölumenn Húsasmiðjunnar. HÚSASMIÐJAN HF Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365. 18

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.