Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Síða 9

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Síða 9
(IIHEF MÁTT TIL MEB AB VEBA HÁBHÍKUH segir Sveinbjörn Jónsson í Ofnasmiðjunni í viðtali við Hermann Sveinbjörnsson Á árinu 1976 varð Sveinbjörn Jónsson, bygginga- meistari, og jyrrverandi fdrstjóri Ofnasmiðjunnar 80 ára. Á þessu sama ári voru liðin 40 ár frá því að Sveinbjörn stofnaði Ofnasmiðjuna ásamt fleirum. 1 tilefni þessara tímamóta fékk Timarit iðnaðar- manna Hermann Sveinbjörnsson, lögfrœðing, til að rœða við Sveinbjörn um ýmislegt, sem á dagana hefur drifið á hinum viðburðarika œfiferli hans. Það kom og í ljós, við frekari viðkynningu á verkurn hans og honum sjálfum, að hann hefur tekið virkan þátt í mótun þessa þjóðfélags. Fæstir munu þó meta verk Sveinbjarnar þannig, að þau hafi leitt til einhvers ófremdarástands. Fíitt mun sannara reynast, að útsjónarsemi hans og óbilgirni hafi orðið til góðs fyrir þjóðfélagið. Er skemmst að minnast hraunhitaveitunnar í Vestmannaeyjum, sem Sveinbjörn átti hugmyndina að. Sveinbjörn Jónsson er fæddur 11. febrúar 1896 að Syðra-Holti í Svarfaðardal, af Hnúksætt, eins og hann segir sjálfur frá. í Hlíð í Skíðadal ólst hann upp til 7 ára aldurs, er liann flutti með foreldrum „Ástandið í þjóðfélaginu er ekkert sþaug, en við hinir eldri megum vara okkur á því, að skella allri skuldmni á þá yngri, því að þetta þjóðfélag er fyrsi og fremst okkar verk“. liitthvað á þessa leið komst Sveinbjörn Jóns- son, oft kenndur við Ofnasmiðjuna, að orði í uþþhafi viðtals við hann fyrir nokkru. sínum að Þóroddsstöðum í Ólafsfirði. Faðir hans var sjómaður og bóndi, auk þess að vera lærður smiður, og hjá Jionum lærði Sveinbjörn fyrst til verka, sem húsasmiður. Árið 1916 fór ltann til Noregs til náms. Var slíkt ferðalag mikið fyrirtæki á þeim tíma, þegar heims- styrjöldin fyrri var í algleymingi. Fór hann með síldarbát, sem háseti og var fárveikur af sjóveiki alla leiðina. Er þetta eina sjómennskustarf Svein- bjarnar. Þegar til Noregs kom vann hann sem smiður, en gekk jafnframt í kvöldskóla og eins árs tækniskóla. Svo starfaði hann þar sem aðstoðarmaður bygginga- 9

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.