Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 13

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 13
ðl ÁIVKTDNUM ABALHINOAR MEISTARASAMBANDS BVCCINCAMANNA SEM HAUIIN VAAIREVKJAIRK 7. OC 8. MAI fl7i Á fundinum voru gerðar margar merkar ályktanir og má meðal annars nefna-.Ályktun um atvinnumál. I ályktuninni var eindregið varað við þeim stór- fellda samdrætti sem skapast hefur í byggingariðn- aði, vegna skorts á fjármagni til byggingarfram- kvæmda og vöntun á lóðum. Fundurinn bendir á að enn einu sinni er verið að koma í veg fyrir að byggingariðnaðurinn geti starfað á eðlilegum grundvelli. Slíkar lægðir sem nú stefnir að, hafa alltaf orðið til þess að til stórfellds íbúða- skorts hefur komið. Þegar síðan á að vinna upp slíkan íbúðaskort kemur fyrr eða síðar upp slík spenna á vinnumark- aðinum að vart verður við hana ráðið, eins og M.B. hefur margsinnis áður bent á. Fundurinn leggur áhershi á að jafnvægi og festa skapist á þessn sviði og telur að með skipulagningu * framkvæmdum ríkis — og bæja- og sveitarfélaga rnegi ná mun meiri jöfnuðí í atvinnulífinu en nú er. ÁLYKTUN UM FRÆÐSLUMÁL í ályktuninni um fræðslumál lagði fundurinn aherslu á eftirfarandi. 1. Fylgt verði þeirri stefnu að létta kennsluskyld- unni af iðnmeisturunum, að eins miklu leyti og mögulegt er, og flytja sjálft iðnnámið inn í skólana að því marki, sem unnt reynist og hagkvæmt þykir. 2. Lögð verði sérstög áhersla á að verkfræðslan sé í sem mestu samræmi við jiarfir atvinnu- lífsins. 3. Aukin verði verulega starfskynning og starfs- fræðsla í grunnskóla, í samvinnu við aðila atvinnulífsins. 4. Lögð verði áhersla á að hraðað verði upp- byggingu iðnfræðslu- og verknámsskóla sam- kvæmt lögum um iðnfræðslu. 5. Iðnaðarmönnum verði gefinn kostur á við- auka- og endurmenntun. Aðalfundurinn ítrekar auk þess fyrri samþykktir um aukna iðnfræðslu. og telur enn sem fyrr, að meistararéttindi eigi ekki að veita fyrr en að afloknu prófi í meistaraskóla. ENDURSKOÐUN HÚSNÆÐISMÁLALÖGGJAFAR Aðalfundurinn leggur til að Húsnæðismálastjórn verði lögð niður í sinni mynd. í stað hennar komi stjórn húsnæðismála frá ráðuneyti. Veðdeild Lands- banka Islands annist úthlutun og afgreiðslu lána til íbúðabygginga. Úti á landi annist bankar og sparisjóðir í umboði Landsbankans gagnasöfnun og afgreiðslu lána. Mikil áhersla er lögð á, að húsbyggj- andi geti treyst tímasetningu á afgreiðslu lána, svo liægt sé að gera áætlanir þannig að fjármagnskostn- aðurinn verði ekki óeðlilega hár. VERÐLAGSMÁL Aðalfundur Meistarasambands byggingamanna fer fram á að núverandi verðlagslöggjöf verði end- urskoðuð af eftirfarandi ástæðum. 1. Upphaflega markmiðið með setningu verðlags- löggjafarinnar var að liindra óeðlilega verð- lagningu vöru og þjónustu, en nú er verðlags- löggjöfin notuð til að halda niðri verði á ein- stökum liðum vöru og í þeim tilgangi að rang- færa vísitölu. Með þessu eru fyrirtækin í land- inu látin taka á sig ýmsar liækkanir. 2. Ekki er í ákvörðunum um verðlagsákvarðanir tekið mið af þörfum fyrirtækjanna eða tekið tillit til nauðsynlegrar arðsemi fyrirtækja í heilum greinum. 3. Til þess, að halda niðri verðbólgunni liefur verið reynt með aðstoð verðlagsákvarðana, að halda niðri þeim þáttum sem mest áhrif hafa á vísitöluna. Veldur þetta margvíslegri röskun á notkun framleiðsluþátta. 13

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.