Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Side 34

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Side 34
KYNNISFBID TVEGGJA STARFSMANNA LANDSSAMBANDSIDNADARMANNA RL DANMERKDR Starfsmenn frœðslu- og tengsladeilcla'r Landssam- bands iðnaðarmanna, Þeir ILlöðver Örn Ólason og Sigurður Guðmundsson, fóru i stutta kynnisferð til Danmerkur dagana 17.—24. október 1976. Markmið- ið með ferð þessari var að þeir Hlöðver og Sigurður kynntu sér starfsemi systurfélags Landssambandsins í Danmörku (Hándvcerksrddet) og stofnana skyldum þeimaðallega hvað varðar frœðslumál og nám- skeiðahald. Hér á eftir fer stutt lýsing þeirra á ferðinni. Snemma morguns sunnudaginn 17. október lögð- um við af stað frá Reykjavík áleiðis til Kaupmanna- hafnar. Ekki verður ferð okkar rakin frá degi til dags, heldur skipt niður í eftirtalda fjóra liluta, þar sem greint verður frá helstu niðurstöðum ferð- arinnar. 1. Systurfélag Landssambands iðnaðarmanna Hándværksrádet 2. Danska vinnuveitendasambandið, Dansk arbejds- giverforening 3. Námskeið á Gl. Avernæs 4. Elelgarnámskeið í Viborg, á vegum VVS samtak- anna (svæði II: KRONJYDEN). SYSTURFÉLAG LANDSSAMBANDS IÐNAÐAR- MANNA, HÁNDVÆRKSRÁDET Eftirfarandi niðurstöður fengust eftir umræður við gestgjafa okkar, sem við kunnum okkar bestu þakkir fyrir mjög góðar móttökur. Námskeiðshald: Því miður var námskeiðsstjóri Hándværksrádets ekki staddur í landinu þann tíma, sem við vorum þar. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem við fengurn hjá hinu starfsfólkinu, er hlutverk Hándværksrádet aðallega í því fólgið, að senda fyrirlesara frá hinum einstöku deildum á námskeið, sem hin ýmsu félög halda fyrir félaga sína. Námskeiðsgögn eru aðeins til í formi bæklinga urn sér málefni. Samstarf Hándvœrksrádets við aðrar stofnanir Við ræddum lítillega um samstarf við aðrar stofn- anir og komumst að raun um, að það er mjög lítið og á jrað við innlendar sem erlendar stofnanir. Kennitölur Hándværksrádet vinnur að gerð kennitalna fyrir eftirfarandi fimm iðngreinar: VVS-greinarnar (blikksmiðir, pípulagningamenn) Bakara Gler- og speglagerð (Glarmesterfaget) Málara Múrara Upplýsingarnar, sem normtölurnar eru unnar úr, eru ekki ýtarlegri en þær, sem við gætum búist við að fá hérlendis. Ú tgáfustarfsemi Við fengum yfirlit yfir þau rit, sem Hándværks- rádet liefur gefið út undanfarin ár. Tvö nýjustu eru bæklingar um samvinnu innan byggingariðnaðarins (Samarbejde i byggeriet) og um lánamöguleika handverksfyrirtækja (Hvordan fár hándværket lán). Ekki er gefið út neitt rit samsvarandi Tímariti iðn- aðarmanna, þess í stað gefa þeir út fréttablað í dag- blaðsformi, sex sinnum á ári. Verðlagseftirlit og útflutningsdeild Hándvœrksrádets í stað þess að leyfa eitt ákveðið hámarksverð á út- seldri vinnu ákveðinnar iðngreinar, þá getur hvert einstakt fyrirtæki sótt um sitt eigið hámarksverð á þar til gerðum eyðublöðum. Þannig geta fyrirtæki innan sömu greinar verið með mismunandi útsölu- verð á vinnu. Hándværksrádet hefur deild, sem svar- ar spurningum fyrirtækja, sem eru með útflutning. f höfuðdráttum fer þessi þjónusta fram á þann hátt, að safnað er fyrirspurnum frá fyrirtækjunum þar til komin eru 3—6 fyrirtæki með sama vandamál. Síð- an eru þessi fyrirtæki látin koma öll í einu og reynt er að leysa úr sameiginlegu vandamáli þeirra sam- tímis. DANSKA VINNUVEITENDASAMBANDIÐ, DANSK ARBEJDSGIVERFORENING Námskeiðunum má skipta í tvo aðalhópa, fram- leiðslutæknilegan og fjármálalegan. Mikið úrval námskeiða er fyrirliggjandi, með til- heyrandi námskeiðsgögnum, sem við gætum aflað með aðstoð VSÍ. Við fengum gott yfirlit yfir eitt námskeiðið, sem nefnist „Produktionsteknisk Grundkursus". Dansk Arbejdsgiverforening er rnjög vel búin tækjum til notkunar á námskeiðum og fengum við sýnishorn af því livernig þau eru notuð. Af tækj- 34

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.