Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Síða 21
Á þessu Iðnþingi var f'yrst rætt um nauðsyn þess
að stofna Iðnaðarbanka Islands og kosin var milli-
þinganefnd, til að fjalla um það mál. Árangurinn
varð sem kunnugt er að II árum síðar tók bankinn
til starfa. Á þessu Iðnþingi var rætt um sérstakan
árlegan frídag iðnaðarmanna. Vildi tillögumaður
nefna hann Skúladag og velja til þess sunnudag í
júní. Allt frá þessum tíma hef ég átt setu á Iðnþing-
um og hef ég átt nokkur afskipti og samstarf \ið
þessi samtök. Mér er því margt í minni frá þessum
árum, en verður fátt eitt nefnt í stuttri afmælisgrein.
Ég nefndi áður „bréfið að norðan" og Iðnaðarbank-
ann. Ég vil og nef'na f'yrstu forystumennina, sem allt
unnu fyrir samtökin í aukavinnu, þar með talin
veruleg skrifstofustörf. Ég minnist opnunar skrif-
stofu og ráðningar fyrsta starfsmannsins, sem jaf'n-
framt var ritstjóri Tímarits iðnaðarmanna.
Á f yrstu árum Landssambandsins fór mestur tími
stjórnarinnar í að sinna réttindamálum iðnaðar-
manna og samræma starf'sreglur iðnráðanna. Mörg
bréf þurfti að skrif'a, til að svara fyrirspurnum iðn-
ráða og ýmissa manna, sem leituðu til Landssam-
bandsins með vandamál sín, þár með taldar ríkis-
stjórnir og Alþingi. Þar þurfti að gæta hagsmuna
iðnaðarmanna.
Það mun hafa verið regla öll starf'sár Landssam-
bandsins, að stjórnin héldi fund tvisvar í mánuði og
aukafundi, þegar þörf gerðist. Má af því sjá, hversu
feykilegur tími fer í fundarhöld, ekki færri en 25
stjórnarfundir á ári auk Iðnþings og ýmissa annarra
fundarhalda, innanlands og utan, auk ótal viðtala
stjórnarmanna við ýmsa forystumenn annarra sam-
taka í þeim tilgangi að þoka málum áfram.
Að tilhlutan stjórnar Landssambandsins voru
samþykkt lög á Alþingi um Iðnlánasjóð árið 1935.
Var hann smár í fyrstu, en er nú orðinn öflugur
stofnlánasjóður iðnaðarins.
Ég nefni Almennan lífeyrissjóð iðnaðarmanna,
sem tók til starfa 1. janúar árið 1964. Er hann nú
farinn að greiða öldruðum sjóðfélögum nokkurn
lífeyri, góð viðbót við knöpp ellilaun.
Vert er að geta hins stórmerka atburðar, þegar
Landssambandið keypti húsið við Laufásveg og
flutti í það skrifstofu sína. Síðan rak hver áfanginn
annan í húsnæðismálum. Keypt var hálf hæð í húsi
Iðnaðarbankans ogað síðustu bygging Iðnaðarhúss-
ins við Hallveigarstíg, í samstarfi við ýmis félög iðn-
aðarmanna og fleiri. Má nú telja, að þar sé framtíð-
araðsetur Landssambandsins.
Að síðustu vil ég geta um einn merkasta áf'anga í
50 ára sögu Landssambands iðnaðarmanna, þegar
fyrir harðfylgi stjórnar þess og annarra góðra
manna var lögfest á Alþingi að innheimta skyldi
svokallað iðnaðarmálagjald, sem að hluta gengi til
Landssambandsins. Þessi tekjustof'n hef'ur skipt
sköpum um fjárhagslega afTomu þess. Síðan hefur
verið hægt að ráða til starf'a nauðsynlegt starf'sfólk til
hinna ýmsu margslungnu og ört vaxandi verkefna,
sem Landssambandið þarf að leysa. Grundvöllurinn
að því að geta starfað af þróttitog að geta ávallt haft
hæft starf'sfólk er, að fjárhagsgrunnur sé traustur.
Ég á þá ósk besta til handa Landssambandi iðnað-
armanna á 50 ára afmæli þess, að það megi áfram og
alltaf halda því farsæla forystuhlutverki í þágu lands
og þjóðar, sem það hef'ur haft, allt frá stofndegi í
byrjun sólmánaðar 1932.
Biautryöjendui
bœttum tryggingum
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI 81411
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Titnani iðnaðarmanna
19