Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Blaðsíða 49
aður hef'ur verið lagagrundvöllur. Sett hata verið
lög um þrjú ný iðnaðarf'yrirtæki, þ.e.a.s. saltverk-
smiðju, steinullarverksmiðju og stálbræðslu, og auk
þessa eru fjölmargir aðrir stærri iðnaðarkostir á
athugunarstigi. Fyrir alþingi liggur frumvarp til
laga um sykurverksmiðju og á síðasta degi þingsins
fyrir páskalilé var Iagt f'ram frumvarp til laga um
kísilmálmverksmiðju á Reyðárfirði, sem er stærsta
fyrirtækið sent Islendingar hafa ráðist í. Samkvæmt
þeim gögnum sem fyrir liggja virðist sem hér geti
verið um hagkvæmt fyrirtæki að ræða, en aðalatriðið
er það í okkar huga, að hér er verið að ráðast í
alíslenskt stóriSjufyrirteeki, það fyrsta sinnar tegundar
hér á landi. Við teljum að með því að standa myndar-
lega að stofnun og rekstri slíks fyrirtækis verði unnt
að sýna og sanna að Islendingar geta vissulega sjálfir
ráðið við það stóra verkefni að reka f'yrirtæki af
slíkum toga.
Það er einnig vert að nefna það, að á þeim árum
sem liðin eru frá því Hjörleifur Guttormsson tók við
iðnaðarmálum hef'ur farið fram myndarleg athug-
un á möguleikum þess að nota innlenda orku í aukn-
um mæli í stað innflutts eldsneytis. Það hafa verið
teknar ákvarðanir um að ráðast í stórvirkjanir. Að
líkindum verður Blönduvirkjun næsta stórvirkjun,
þá Fljótsdalsvirkjun og síðan Sultartangavirkjun.
Þannig er, hvert sem litið er, um að ræða verulega
athafnasemi á öllum sviðurn iðnaðarins og ég full-
yrði að aldrei hafi á þremur til fjórum árurn verið
jafnmikið um að vera á þessu sviði og einmitt nú. En
meira þarf' til. A næstu árum og áratugum verður
iðnaðurinn í vaxandi mæli að skjóta stoðum undir
líf landsmanna og lífskjör. Þess vegna er brýn nauð-
syn að þjóðin sameinist um íslenska atvinnustefnu,
en sú stefna hefur átt vaxandi fylgi að f'agna á und-
anfornum árum og áratugum, hún hefur leitt þjóð-
ina til heilla undir f'orystu Alþýðubandalagsins. Við
vonum að Landssamband iðnaðarmanna geti tekið
undir nauðsyn þess að Islendingar sjálFir nýti auð-
lindir lands og þjóðar til gæfu komandi kynslóða í
þessu landi. Við nýtingu auðlindanna ber okkur
fyrst og fremst að gæta þess að rækta þær þannig að
þær skili börnum okkar og barnabörnum betri arði
en okkur. Það er frumskylda okkar við framtíðina,
börn okkar og barnabörn.
Með þessari kveðju sendi ég Landssambandi iðn-
aðarmanna árnaðaróskir með von um að Landssam-
handið geti tekið undir þau þjóðlegu viðhorf sem
hljóta að vera forsenda hinnar íslensku atvinnu-
stefnu og þar með hafnað þeirri óþjóðlegu orku-
sölustefnu sem var forsenda álversins í Straumsvík,
en á sér nú æ færri formælendur hér á landi.
BIFREIÐAEIGENDUR
Okkar sérgrein er hemlaþjónusta og hefur verið i yfir 20 ár.
Eigum ávallt varahluti í hemlakerfi, þó sérstaklega í amerískar
bifreiðir s. s. höfuðdælur, hjóldælur, handbremsubarka,
vökvabarka, bremsuborða, diska, diskaklossa, bremsuskálar,
bremsurör, bremsugúmmí, diskabremsudælur og þéttingar
í þær og útíhersluhluti.
Rennum ennfremur bremsuskálar og diska, límum á bremsu-
borða og slípum bremsudælur.
Einnig fyrirliggjandi bremsuborðar í flestar gerðir vöru-
bifreiða og aftanívagna.
ÚTGERÐARMENN OG VÉLSTJÓRAR!
Eigum ávallt á lager bremsuborða fyrir togspil.
STILLING HF.
Skeifunni 11 . Sími 31340 og 82740
Txmarit iðnaðarmanna
47