Vikan - 19.03.1959, Page 26
■ ■ ■
ALDARSPEGILLINN
Framhald af bls. Jf.
En sagan er ekki öll sögð um
tóbakið, því eitt sinn sat hann á tali
við erlendan sendimann og sagði hon-
um ágæta skáldsögu um tóbaks-
klúbb, sem hann kvað hér starf-
andi, en mjög væri erfltt um inn-
göngu, bæði þyrftu menn að geta
iesið lög kiúbbsins aftur á bak og
áfram og eins uppfylla einhver „nef-
tóbaksieg skilyrði", sem ekki væri
á allra færi, og aumingja maður-
inn trúði öllu saman, þangað til Voill-
ery hló og klappaði á öxl hans og
sagði honum sannleikann um sög-
una.
Voillery hefur í'erðazt nokkuð um
landið, heimsótt óbyggðir, komið að
Mývatni, í Vík í Mýrdal og um Ak-
ureyri og Siglufjörð. Þær stundir, sem
verða honum einna ógleymanlegast-
ar eru fagrar sumarnætur, tindrandi
norðurljós á vetrum og tilkomumik-
il vorsól, sem sígur i sæ. Hann hef-
ur mikið dálæti á Islandi og Islend-
ingum og undrast örar breytingar,
sem orðið hafa, siðan hann fluttist
til Sögueyjarinnar. Hann skilur vel
agnúa og misbresti þjóðfélagsins, en
þykir vænt um fólkið sakir alúðar
þess og hæfiiegrar kaldhæðni. Hann
sér eftir þvi, að honum hefur ekki
imnizt tími til að dvelja um hrið á
gömlum, íslenzkum sveitabæ, þar
sem hann gæti borið saman að
nokkru fortíð og nútíð landsins, þar
seái hann hefur dvalið lengstan tíma
starfsferils sins. Honum geðjast sér-
lega vel að ýmsum íslenzkum mat,
t. d. fer hann gjarna fram á það að
fá fisk, einnig hrogn og lifur — og
auðvitað skyr. Hann er frábær „con-
naisseur" á mat að ekki sé talað um
sérgrein hans sem Frakka, vínin.
Einhverju sinni átti Voillery að
mæta í veizlu í París og tók leigu-
bifreið þangað með pomp og pragt.
Svo leið og beið, og veizlugesti tók
að lengja eftir sendíherranum, en
hann sat þá bara og rabbaði við
bifreiðarstjórann um daginn og veg-
Énn, og hafði steingleymt veizlunni.
ENN er ótalinn sá þáttur i skap-
gerð Sendiráðherrans, sem veiga-
mestyr er og skiptir hann sjálf-
an tvímælalaust mestu máli, en það
er trú hans. Hann er ákaflega rétt-
trúaður maður, án allrar kreddu-
festu eða ofstækis, hann er hjartan-
lega kaþólskur og lífsskoðun hans í
þeim éfnum getur sannfært trúarlega
öfugga með stuttu samtali, þannig
að þeir viðurkenna ekki eingöngu
rök hans, heldur láta sannfærast af
elskulegri og blíðri framkomu hans
og einlægri trúarvissu, sem að sönnu
hefur fylgt honum allt hans líf. Hon-
um er ljósara en mörgum, hversu
lítill þáttur veraldargengi og alls-
nægtir eru og afvopnar menn þeg-
ar, þótt þeir komi til vígvallarins al-
vopnaðir. Hann veit, að böl mann-
anna er fyrst og fremst það, sem frá
sjálfum þeim kemur og hann leggur
áherzlu á innri erfiðleika manna,
sem mikiivægt sé að ráða bót á.
Hann er sér vel meðvitandi um hið
eilífa v íðavangshlaup tilverunnar,
menn hlaupa undan lífinu á flótta og
alveg er óvíst, hvort sá flótti verð-
ur þeim til undankomu eða falls.
HENRI Voillery segir vinum sín-
um, að hann sé hamingjusam-
asti maðurinn undir sólunni, og
allir, sem á annað borð eru svo heppn-
ir a’ð ræða við manninn í einrúmi
nokkra stund, komast ekki hjá því
að viðurkenna, að erfitt muni að
finna sælli mann. Hann er sæll, því
að hann hefur gefið sér tíma til að
kanna sál sjálfs sín, ýtt mjúklega og
með rólegri yfirvegun hinum innri
erfiðleikum úr vegi og því eru hin-
ar hversdagslegu og niðurdrepandi
hraðaþrautir nútímans jafn fjarri
honum og Gullna hliðið, er logandi
eldtungum vonda staðarins.
NIÐUR... OG UPP
GIramkald af bls. 18
heyrist lágmælt i hátalaranum:
Anna og Tony, tilbúin að ganga inn
á sviðið.
Þriðji og síðasti þátturinn er að
hefjast.
OG loksins, þegar tjaldið er falliö,
lófatakið dáið út, og síðustu
gestirnir farnir úr salnum, brýt-
ur kátínan að tjaldabaki af sér öli
bönd. Að vísu er kennsludagur að
morgni, en allir leikendur og leik-
sviðsviðsstarfsmenn hafa frí í fyrstu
tveimur timunum, og hvað er þá
sjálfsagðara en að syngja og dansa
og ærslast ofurlítið til þess að fagna
sigri ?
Rufus.
r
'»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»:♦»»»»»:♦:♦:.»»»»»:♦»»
♦ ♦
w
♦ ♦
vv
Jv
vv
vv
vv
vv
vv
>v
vv
vv
T«V
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
♦ V
♦ V
T4I.T4
► ♦
^0^4
♦ ♦
vv
vv
vv
^41.4
♦ ♦
vv
vv
vv
vv
vv
7V
vv
vv
vv
♦ ♦
♦ ♦
vv
vv
vv
?v
vv
vv
t4»t<|
♦ ♦
vv
*v
vv
vv
tOt4
♦ ♦
vv
vv
vv
vv
♦ V
*>v
vv
VV
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
vv
TikT4
Loftkældar Dieseldráttarvélar
cjfiícjel-C/ch(eppe/'
von // Óú 9Qpr
Deutz dleseldráttarvélamar eru fáanlegar í stærðunum
13 Ha — D25 — D25S — D405 50 Ha og 65 Ha. —
Bændur leitið yður upplýsinga um loftkældu Deutz
dieseldráttarvélamar.
Deutz dráttarvélar spara vinnu, tíma og peninga.
Að fengnum nauðsynlegum innflutningsleyfum mun-
um vér útvega væntanlegum kaupendnm flest algeng
dráttarvélaverkfæri og vinnuvélar, svo sem:
JACOMBI — múgavélar
driftengdar,
HEUMA — hjólmúga-
vélar dragtengdar,
EBERHARDT — jarð-
tætarar, plógar og herfi.
SCHIEFERSTEIN —
áburðardreifarar,
FELLA — heyhleðslu-
vélar — rakstrarvélar
— grastætarar,
BAAS — ámoksturstæki
auk margra annarra
tækja.
Sendiö fyrirspurnir og pantanir yöar, sem ailra fyrst.
Hlutafélagið HAMAR
♦"*< Tryggvagötu
Keykjavík
•»:♦:♦:♦»:♦:♦:♦:♦:♦:♦:♦:♦»:♦:♦:♦»»»»»»»»»»»»»»»»»»>»»»>»»»»»:'
•»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>i»»»»»»»>:
26
VIKAN