Vikan - 05.11.1959, Qupperneq 16
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl):
Þessa viku munt þú sinna einu áhuga-
máli þínu mjög, og þú munt sannar-
lega ekki sjá eftir því, — það kemur
í ljós eftir nokkrar vikur. Um helgina,
liltlega á laugardag, mun koma dálítið óvænt fyr-
ir, sem gerir það að verkum, að þú verður önnum
kafinn alla næstu viku myrkranna á milli.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Vik-
an verður einkar ánægjurík, og ef þú
skyldir fara i stutta ferð, verður hún
þér án nokkurs vafa til mikillar ánægju.
Visst áform virðist ætla að fara alger-
lega út um þúfur, og á það eftir að draga dilk á
eftir sér. Þeir, sem fæddir eru 20. maf, verða
líklega fyrir vonbrigðum i ástum.
TvíburamerkiÖ (22. rqaí—21. júní);
Þótt vikan verði ekki tíðindarík, er
margt að gerast að tjaidabaki þér í vii.
Þú munt fá meiri tíma til þess að sinna
áhugamálum þinum, líklega sakir bættr-
ar aðstöðu á vinnustað. Ógiftu fólki verður þessi
vikt, sérstaklega minnisstæð. Heillatala 5.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þér
munu græðast peningar óvænt þessa
viku. Húsmæður munu fá þægilega til-
breytingu frá hversdagsleikanum. Eink-
um virðist samt vikan hentug til þess
að velja sér maka. Heillaafmælisdagur: 29. júní.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú munt
koma mikið við sögu á opinberum vett-
vangi þessa viku, eða þá þú munt taka
þátt í fundahöldum. Auðvitað munt þú
sæta talsverðri gagnrýni, en taktu það
ekki of nærri þér, þvi að enginn er fullkominn.
Góðkunningjum þínum tveimur mun sinnast, og
ert þú einn líklegur til þess að sætta þá.
Meyiarmerkiö (24 ág.—23. sept.): Þú
verður fyrir talsverðum vonbrigðum
fj.- va Þessa viku, en hins vegar mun lánið
1 leika við þig i máli, sem er þér einkar
hjartfólgið. Konur, sem fæddar eru und-
ir meyjarmerkinu, munu gera afar mikilvæga
ákvörðun í þessari viku. Heillatala 6.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Það
gengur mikið á fyrir þér þessa viku,
bæði heima og á vinnustað. Þú munt
ræða eitthvert mál við mann eða konu,
sem þú þekkir lítiis háttar, en þú skalt
ekki binda of miklar vonir við þær umræður.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þessi
vika verður gerólík undanförnum vik-
um MikiJ hætta er á því, að þú notir
ekki tómstundir þínar eins og skyldi.
Eitthvert skyldmenni þitt kemur í
heimsókn með gleðifregnir. Um helgina kemur
eitthvað fyrir, sem breytir fyrri áætlunum þinum,
en þú mátt samt vel við una Heillatala 5.
BogmaÖurinn (23. nóv.-—21. des.): Þú
sættir þig betur við tilveruna núna.
Vinnufélagi þinn býður þér aðstoð sina,
og þú ættir umfram allt að þiggja hana,
þvi að verkefnið, sem þú hefur með
höndum, gæti orðið þér ofviða. Einn aðdáandi þinn
leitast mjög við að kynnast þér betur.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þér
býðst einstakt tækifæri þessa viku, en
ekki er vist, að þú komir auga á mikil-
vægi þess fyrr en um seinan. Þess
vegna verður þú að vera vel á verði.
Á miðvikudag kemur eitthvað fyrir heima hjá
þér éða á vinnustað, sem mun ekki þykja eftir-
breytni vert, og ert þú við það mál riðinn.
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.): Þú
virðist vera að taka miklum framförum.
Að minnsta kosti leikur lánið við þig
þessa viku, — já. það er meira en lán,
því að velgengni þin er einungis dugnaði
þínum og athafnasemi að þakka. Mikil rómantik
er yfir vikunni. Gamalmennum verður þessi vika
einstaklega ánægjurík.
Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz): Þú
getur litið björtum augum á framtiðina,
því að þessa viku munt þú sigrast á
öllu andstreymi. Nokkuð virðist samt
bera á eigingirni i fari þínu. og er
hægðarleikur að breyta tll batnaðar. Eitthvert
kvöldið, — líklega um h^fjna, — kemur furðu-
legur gestur í heimsókn.
O
Skipakóngurinn
°g
söngkonan
skapstóra
Samdráttur skipa-
kóngsins Aristótelesar
Onassis og söngkonunn-
ar Maríu Callas hefur
oröiö eitt vinsœlasta
hneyksli, sem um getur
í langan tíma. Onassis
hefur veriö kvæntur
liinni fögru Tínu Lívorno,
og lijónaband þeirra hef-
ur veriö farsœlt fram til
þessa. María Callas, sem
frœg er fyrir skapofsa
sinn, er liins vegar nýskil-
|| inn viö eiginmann sinn,
Itálann Meneghini, og
| var Onassis henni mjög
m hjálplegur í því máli.
Þau skötvihjúin hafa
I sífellt neitaö, aö um ást
' sé aö ræöa, heldur séu
| þau svona góöir kunn-
ingjar. Onassis hefur þaö
§ hélzt fyrir stafni aö
h hringsóla á skemmti-
É snekkju sinni um Miö-
jaröarhaf, og undanfariö
| hefur hann jafnan tekiö
| söngkonuna meö sér í
' sjóferöir sinar. Frúna
hefur hann hins vegar i
París. Onassis er grískur,
og Maria Callas er einn-
ig af grisku bergi brotin.
ÞaÖ eru tú þrír stórir á öllum hugs-
anlegum sviðum — lika í kúluvarpi.
Þeir þurfa aö vísu eklci á langdregnum
bollaleggingum aö halda um væntanlega
fundi, né heldur aö þeir séu fulltrúar
hinna ósœttanlegu póla, austurs og vest-
urs. Þeir eru nefnilega allir úr villta
vestrinu, Bandarikjamenn af mismun-
andi þjóöerni þó. Aldursforsetinn, O'
Brien, er til dœmis írskur aö ætterni
og hann á { svipinn heimsmetiö, sem
hljóöar upp á 19,25 m. Unglingurinn
Long ■—• til vinstri — er honum skeinu-
hættur og hefur náö lengra kasti, 19,38
m. en ekki fengiö þaö staöfest sem met.
Sá þriöji, Nieder, hefur „aöeins" varpaö
19,12 m. Þaö má geta þess hér, aö í
næsta blaöi Vikunnar mun birtast slcrá
yfir 75 — sjötíu og fimm — beztu Is-
lendinga í kúluvarpi, fyrr og síöar og
hefur Brynjólfur Ingólfsson skráö.
■ W. y. m í "■
I ’ . Jæ ■
1 / ^ il ’j
Wm
Verðlaunagrípir
Jú, rétt til getið. Þetta er
fegurðarsamkeppni, — ekki
þó með venjulegum hætti eins
og hér í Vatnsmgrinni, heldur
í auglýsingaskyni — og þó
tæplega í auglýsingaskyni fyr-
ir þetta fólk, sem reyndist
fallegast í keppiiinni, lieldur
fremur fyrir þann aðila, sem
fyrir keppninni stóð. Þið sjá-
ið i töskunum, h.ver j>að hefur
verið: brezka flugfélagið
BOAC. Þarna hefur verið val-
in baðstrandardrottning — til
vinstri, tizkudrottning til
hœgri vöðvakóngur. Hann er
ósköp áþekkur kollegum sín-
um á þessari grein: Gáfurnar
og andríkið geislar af honum.
En hvað er að tarnaf Það er
engn líkara en dömurnar séu
miklu hrifnari af hinnm
„ven}nlega“ starfsmanni flug-
félagsins, sem afhendir verð-
lannatöskurnar, heldur en
sjálfum verðlaunagarpinnm.