Vikan - 16.06.1960, Blaðsíða 4
Á útmánuðunum í vetur efndi Vikan til samkeppni um það
að þekkja sjö andlit, sem öll höfðu áSur birzt i blaSinu. í sam-
bandi viS þessa keppni var skoSanakönnun um efni blaSsins
og hefur veriS gerS grein fyrir henni fyrir nokkru. Verðlaunin
voru: Kóngur í einn dag — án rikis og kórónu. Nokkur hundr-
uð réttar lausnir bárust og við drógum úr þeim réttu. Upp kom
miði með nafninu Gísli Jónsson og gaf undirritaður þær skýr-
ingar á sjálfum sér, að hann væri skrifstofumaður, 22 ára og
til heimilis að Ásvallagötu 64. Sem sagt, Gísli Jónsson var
kjörinn til þess að verða lcóngur i einn dag, og einn góðviðris-
dag i byrjun maí rann sú stund upp. Til þess að gera honum
daginn ánægjulegri höfðum við fengið ungfrú Rúnu Brynjólfs
honum til samfylgdar og hvítan Cadillac til þess að ferðast í
eins og með þyrfti. Rekjum við nú ekki söguna lengur hér,
en látum myndirnar tala.
Kóngurinn óskaði eftir
því að byrja daginn með
því að rera viðstaddur
messu í Kristskirkju {
Landakoti, þvi þangað
hafði hann ekki komið
áður. Þar tók faðir
Hackings á móti honum
og útskýrði fyrir hon-
um messuna.
Ungfrú Rúna Brynjólfs heilsar hans hátign um morguninn.
Farkosturinn, hvítur Cadillac, stendur ferðbúinn í baksýn,
Forráðamönnum í Flugskólanum Þyt þótti það mikil náð að fá
tækifæri til þess að fljúga yfir bæinn með svo tiginn gest. Hér er
einn af eigendum skólans, Sigurður Ágústsson, að ferðbúast, en
kóngurinn tók síðan sjálfur við stýri og flaug fyrir kurtfeisi sakir
yfir Bessastaði.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri í Reykjavík, átti mjög annríkt
þennan dag, en að sjálfsögðu gerði hann hlé á störfum sínum
til þess að taka á móti majestetinu og gerði það með sinni alkunnu
glæsimennsku.