Vikan


Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 19

Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 19
Ætlar ekki að gefa sig með leiklistina Sigrún Sigurðardóttir varS þriSja í röSinni í keppninni um titilinn „Ungfrú ísland 1960“. Hún er Reyk- víkingur aS ætterni og uppruna, 22 ára. ViS höfum séS þig á leiksviSi í Kópavogi, Sigrún. — Já, ég var í reviunni Alvöru- krónan. — Þú hefur þá lært eitthvaS i Jeiklist? — Ég hef veriS tvo vetur i leik- skóla Ævars Kvarans. — Og hvaS um frekara nám i leiklistinni? — ÞaS er nú alveg óráSiS enn þá. — En þú vilt auSvitaS gjarna leggja þaS fyrir þig aS leika, — annars væri þú ekki aS læra þaS? — Jú, ég vildi auSvitaS gjarna fá tækifæri til þess. — EitthvaS starfar þú sjálfsagt? — Ég er á skrifstofu hjá DavíS S. Jónssyni í Þingholtsstræti. — Hefur þú lært eitthvaS til skrifstofustarfa? — Ja, ég hef verzlunarpróf úr Samvinnuskólanum. — Varstu þar kannski, meSan Jónas var skólastjóri? — Já, þaS var siSasti veturinn hans. Svo fór ég á lýSskóla í Dan- mörku, og seinna vann ég viS skóla nálægt Birmingham i Englandi. — Svo þú ert heiimikiS forfröm- uS. HvaS fannst þér um lýSskólann? — Mér fannst ágætt aS vera þar, — mjög frjálst, og svo eru engin próf á vorin. — Nokkur áhugamál fyrir utan leiklistina? — Ég hef mjög gaman af því aS taka myndir og svo aS ferSast. Ég ferSaSist til dæmis „á þumalfingr- inum“ um Þýzkaland í fyrra. — ÞaS hefur gengiS vel, — þeir hafa viljaS taka þig upp, ÞjóSverj- arnir? Já, ekki bar á öSru. — ÆtlarSu aS láta DavíS njóta starfskrafta þinna lengi? — Svona um nánustu framtíS. Annars ætla ég ekki aS gefa mig meS leiklistina. ÞaS er bakteria, sem ekki er gott aS losna við. ★ hækkaSi í verSi um 70—80 þúsund. Eins og nærri má geta strandaSi mátiS þar i bili. — ÞaS hefur komiS sér illa fyrir þig. •—■ Já, þaS þurfti aS fara af staS aS nýju og safna meiru. Ég átti Fiat 1400 og seldi hann. Ég hafSi fengiS hann tollfrjálsan út á lömun- ina, en nú varS ég aS greiSa rikinu 57 þúsund krónur af 97 þúsundum sem ég fékk fyrir hann. — RíkiS er ekkert iamb aS leika sér viS. — ÞaS má nú segja, en þetta hafSist allt sam- an og þaS hefSi ábyggilega ekki tekizt á skömm- um tíma, ef Alberts hefSi ekki notið við. II • ; V xl é rrnr 'jUu — Láttu nýju barnapíuna hafa þessa svipu, en segðu henni að hú megi alls ekki nota hana nema í sjálfsvörn! Fyrir nokkrum árum. var ungur drengur suður meS sjó aS æfa sig i stangarstökki og þaS vildi svo slysalega til, að hann féll á bakið og lamaðist. Lömun er æv- inlega mjög erfið viðfangs og von litiS aS takist með lækningu. AlþjóS tók höndum saman um að létta byrðar drengsins, sem heitir Ágúst Matthíasson og flestir kannast við sem „lamaða iþróttamanninn“. ÞaS hefur líka tekizt belur til með heilsu Ágústs en út leit um tíma, svo nú er hann ekki bundinn við sjúkra- rúmið á handlækningadeild Lands- spitalans eins og hann var árum saman. Sá merkisatburður gerðist fyrir nokkru i lifi Ágústs, að honum var afhentur nýr bill af Ford Falcon gerð. ÞaS var Albert GaiSmundsson, knattspyrnumaður og heildsali, sem beitti sér fyrir því af miklum dugnaði, að Ágúst fékk bil- inn og hann útvegaði afslátt á tollum og styrki frá einstaklingum og opinberum aðilum. Við áttum tal við Ágúst, sem auðvitaS var í sjöunda himni yfir farkostinum og spurðum hann, hvort það hefði tekið langan tíma að safna fyrir bílnum. — ÞaS tók rúmt ár, eða siðan í apríl í fyrra. Fyrst i stað stóð allt fast og ég fékk alltaf neit- un um nauðsynleg leyfi, en þá kom Albert mér til hjálpar og þá var ekki að sökum að spyrja. Billinn ko mtil landsins i apríl, en þá var kom- in gengisfelling sem varð því valdandi að hann Með heimsmet á samvizkunni Roger Moens, liinn kunni hJaupagarpur frá Bélgíu var hér á ferö í vor og þá var þessi mynd tekin af garpinum. Þaö eru nú nokkur ár, siöan hann setti metiö í geysiharöri keppni viö Audun Boysen frá RJoregi á Bislet í Osló. ÞaÖ vcir mikil harka í því hlaupi, en Moens varö um 1 metra á undan NorÖ- manninum. Tíminn samsvarar þvi, aö þeir hafi hlaupiö hverja 100 metra á rúmlega 13 sekúndum, en til þess hafa þeir oröiö aö hla/upa fyrri 1/00 metrana á nálœgt 51 sekúndu. Moens hefur mjög gott hlaupalag, framhállinn er hnit- miöaöur, og hann rúllar áfram án þess aö taka á. Þaö var eins og oft áöur um veöurfariö hér, þegar hann gisti Island; rok og rigning og svo slcemt seinni daginn, aö keppni var felld niöur. Mun heimsmethafanum ekki meir en svo hafa litizt á aöstœöur islenzkra frjálsíþróttamanna. 1 heimalandi sínu, Belgiu, er Moens leynilögreglumaöur aö skráöri atvinnu, en þaö er um liann eins og flestar stjörnur í Evrópu, aö hann er raunverulega atvinnumaöur í iþróttum og tekur stórfé fyrir aö keppa á mótum utan i landskeppnum eöa á Ólýmpluleikum. „Topp“-menn hafa til dcemis fengiö frá 500—1000 sænskar krónur fyrir þátttöku i mótum, seih haldin eru þar siösumars. Finnar borga Kka mjög vel, og einmitt þess vegna flykkjast af- reksmenn í frjálsíþróttum til Noröurlanda síöari part sumars. Þeir hafa til nokkurs aö vinna og er sannarlega ekki of gott aö fá aurana fyrir þrotlaust erfiöi viö œfingar. En keppni viö íþróttamenn, sem enn 'keppa af áhuga, veröur aö sjálfsögöu ójöfn. Þegar þetta er skrifaö, eru Ólýmpíuleikarnir ekki afstaönir og þess vegna ekki vitaö, hvernig Roger Moens kann aö reiöa af þar. Sjálfsagt veröur hann meöal hinna fremstu, ef hann þá ekki sigrar. 800 metra hlaupiö er ekki hlaupiö á aöskildum brautum, og þar veröa oft átök um hagstaeöa stööu og röö í hlaupinu, áöur en kemur á beinu brautina í lok hla/upsins. Toppmenn í 800 m hlaupi eru svo líkir, aö litiö dregur í sundur, og venjulega skilja sentímetrar í marki. Þá eru stundum gefin olnbogaskot og barizt af full- kominni hörku. BæÖi Moens og aörir, sem taka fé fyrir aö keppa, munu taka þátt í ölýmpíuleikunum engu aö síöur, því aö þeir eru á góöu kaupi viö œfingar og fá stórfé aö verölaunum fyrir góöan árangur eöa met. Roger Moens er enginn fríöleiksmaöur eins og myndin ber meö sér, stór- skorinn mjög og rangeygöur. Hins vegar skorti hann ekki kvenhylli Ihér í jReykjavík, eftir því sem fréttir hermdu. VIKAN yiKAN Þær mættu á stutt- baxum og prjónuðu í tímum Við hittum hann að máli fyrir nokkrum vikum, þá nýkominn til landsins eftir 8 mánaða dvöl í Banda- ríkjunum, en Þar stundaði hann nám í political science — eða stjórnvís- indum í ríkisháskólanum. Hann heitir Hallvarður Einvarðsson, nam Iög- fræði hér við háskólann og tók loka- próf vorið 1958. — Segðu okkur, Hallvarður, var einhver sérstök ástæða fyrir því, að þú valdir lögfræðina fremur en ein- hverja aðra grein? — Ekki er nú hægt að tala um neina sérstaka ástæðu, en ég hafði víst Iögfra»5inám í huga alla mína mennta- skólatíð •— eins og raunar svo margir aðrir. Það má ef til vill kalla það köllun eða eitthvað Þess háttar. — Ög þú hefur þá auðvitað ekki orðið fyrir vonbrigðum? — Nei, alls ekki. — Og að loknu prófinu hefurðu farið að hugsa til utanfarar? — Já, en það varð samt ekki úr því fyrr en núna s.l. haust. Þá varð ég fyrir því happi að hljóta styrk, sem Rotary-félögin i Wisconsin veita námsmönnum til dvalar á ríkisháskól- anum í Madison. en Það er höfuð- borg fylkisins Ég bafði áður sótt um styrk til menntamálaráðuneytis- ins, en áður en það mál var útkljáð, rak þennan styrk á fjörur mínar, sem- er einn hinn bezti, er námsmenn geta hugsað sér að fá. Þessir Rotary- stvrkir eru ekki eingöngu ætlaðir til sérnáms eða framhaldsnáms i einhverri grein, heldur er líka lögð áherzla á Það. að nemendur kynni land sitt og Þjóð og kynnist menningu og högum fólksins í landinu, sem þeir dveljast í, og geti orðið, eins og Þeir kalla Það, „ambassadors of good will", bæði í hlutaðeigandi landi og eins, er Þeir koma heim, — bera gott orð á milli, ef svo mætti segja. Og ég þurfti að fara margar ferðir um fylkið á vegum Rotary-klúbbanna þarna og Þá oftast í fylgd með einhverjum Rotary-félögum frá Madison og halda kynningarfyrirlestra um land mitt og Þjóð og svaraði þá fyrirspurnum, sem oft voru settar fram dálitið hressi- lega, en aftur á móti margar nokk- uð kjánalegar, að mér fannst. — Og að hverju spurðu þeir þig nú helzt? — Þeir spurðu um allt milli himins og jarðar, — allt frá sambúð Islend- inga og varnarliðsins að klæðaburði stúlknanna. — Svaraðir þú Þá samkvæmt eigin meiningu eða þvi, sem þú taldir vera skoðun fólks hér heima almennt? — Ef um var að ræða einhver stór- mál, sem menn eða flokka hér heima greinir á um, reyndi ég að skýra málið frá fleiri en einu sjónarmiði og ræða um það, sem almennt virtist koma fram i hverju máli, en yfirleitt var spurningunum sérstaklega beint til mín, og þá greindi ég að sjálfsögðu frá mínu persónulega áliti. Ég taldi ekki betra að vera mjög hlutlaus, heldur skemmtilegra að hafa ákveðn- ar skoðanir sjálfur, og held, að menn hafi metið slíkt meira. — Þú hefur ekki verið neitt tauga- óstyrkur á þessum samræðufundum? — Fyrst í stað hafði maður með sér nokkur atriði skrifuð á blöð, sem ég studdist við, en fljótlega sleppti ég því. Óg á langflestum fundunum gaf ég fyrst almennt yfirlit um land og Þjóð, en hafði síðan spurninga- tima, sem oft voru anzi skemmtilegir. -— Virtist þér menn vita almennt mikið um Island þarna? — Það var ákaflega misjafnt. Sum- ir voru merkilega fróðir um margt hér heima, en aðrir vissu bókstaflega ekki neitt. Annars er Island oft á dag- skrá í blöðum þarna vestra og þá venjulega í sambandi við samskipti Isilendinga og Bandaríkjanna á ýms- um sviðum. En það birtust líka nokkrar greinar um sjálft landið og þjóðina, en fáar þeirra gáfu rétta mynd af lífi fólks hér. Ég kom einu sinni fram I sjónvarpsþætti, sem stúlka að nafni Beverly Stark sá um, en þar spurði hún nokkra erlenda námsmenn um þeirra heimalönd. Þessi stúlka sá um þætti í sjónvarp- inu tvisvar í hverri viku og virtist vera menntuð og vel að sér í flestum efnum. En hið fyrsta, sem hún spurði mig um, — og það í fullri alvöru, — var það, hverju Eskimóastúlkurnar á Islandi klæddust venjulega! Ég brosti bara að íáfræðinni og skaut því að henni, að mér fyndist nú stúlkur vestan hafs margar hverjar afkára- legar klæddar en þær heima. — Hvað hafðir þú fyrir þér í því? — Fjöldinn allur þeirra stúlkna, sem sóttu skólann, var klæddur í hvíta hálfsokka, stuttbuxur og þykk- ar groddapeysur. Þetta virtist vera í tízku hjá þeim, og í þessum klæðn- aði gengu þær kvölds og morgna og hvernig sem viðraði Og ekki voru þær að skipta um „föt“, þó að þær væru í samkvæmum eða „partíum". Þá virtust þær fyrst njóta sín vel. En í saumaklúbba og stúlknasam- kvæmi komu Þær allar, að mér skild- ist, í finum kjólum og kápum! Og svo kom það mér dálítið spánskt fyrir sjónir að sjá sumar stúlkurnar vera með handavinnu í kennslustundunum, þær voru prjónandi, heklandi og saumandi í tímum, — meira að segja þega-r þær voru „teknar upp“, lögðu þær ekki frá sér dótið, heldur svör- uðu spurningum prófessoranna, prjón- andi í grið og erg. Það virtist enginn hafa neitt við þetta að athuga, en mér fannst þetta mjög óviðkunnan- legt. og hræddur er ég um. að eitt- hvað mundi syngja í okkar háu herr- um hér heima. ef stúdinurnar gerðu tímana að hálfgerðum saumaklúbb- um. — E'n skólalifið svona yfirleitt. — var það ekki svipað og hér heima? — Að mörgu leyti var það mjög frábrugðið. Mér virtist miklu meira aðhald að stúdentunum þarna í skól- anum en hér og meira eftirlit, haft með þeim. Og svo þekktist það ekki, að stúlkur og piltar byggiu á sama stað 1 heimavistinni eða „klúbbnum", þar sem ég bjó, var aðeins ein stofa eða „móttökusalur". þar sem stúlkur máttu koma, — auðvitað að undan- toknum starfsstúlkum i klúbbnum. Ég sagði þeim, að heima væru stúlk- ur og piltar ekki skilin að á þennan hátt. og þeir voru alveg hlessa og sögðu, að Islendingar væru nú meiri barbararnir. Að mörgu leyti er þó félagslíf stúdenta þarna úti miög fiörugt, og hafa þeir með sér mörg félagssamtök. T. d. eru þarna til bræðrafélög og systrafélög, sem hafa margt einkennilegt á stefnuskrá sinni, m. a. inntökusiði, sem eru í hæsta máta óven.iulegir. Eitt atriðið var einu sinni það, að nýliðinn varð að éta einhvern ákveðinn skammt af mat, og var hann víst ekki skorinn við nögl. En það fór nú að kárna gam- anið hjá þeim, þegar einn nýstúdent- inn, sem var að taka „inntökuprófið" i bræðrafélagið einhvern tíma nú í vetur, át yfir sig í orðsins fyllstu merkingu, — hann bókstaflega kafn- aði í miðri helgiathöfninni. Ot af þessum atburði spunnust auðvitað ýmis leiðindi, og menn fóru að líta alvarlegri augum á þennan hættu- lega leik. — Hafðir þú ekki tíma til Þess að skyggnast svolítið inn í skemmtana- lífið þarna úti? — Frístundirnar voru nú ekki margar, því að utan skólatímans var ég oftast á ferðalögum með Rotary- félögunum. En samt gaf ég mér tíma til að skreppa einstöku sinnum með félögum mínum til nálægra stórborga, svo sem Milwaukee og Chicago, en þangað er aðeins 2—3 klukkutíma akstur frá Madison. En við fórum varlega í sakirnar og sáum svona rétt yfirborðið á öllum gleðskapnum, — enda dýrt að skemmta sér þarna og svo er betra að fara sér hægt í þeim sökum, því að þótt það sé sagt, að „þar sem enginn þekki mann, þar sé gott að vera ...“, getur það snúizt upp í hið gagnstæða, þegar inn á þessar brautir er farið. — Og konuefnið hefur ekki komið í leitirnar? — Nei, enda ekki mikið svipazt um eftir því. Ég held, að við Islend- ingar þurfum ekki að leita út fyrir landsteinana i þessu efni, — við, sem segjum, að íslenzku stúlkurnar séu þær fallegustu í heiminum! FEIMNI 0G FERÐALÖG Þessi unga og laglega stúlka var einn keppandinn í feg- urðarsamkeppninni, sem háð var hér í bænum nú i sumar. Hún heitir Auður Georgsdótt- ir, er seytján ára og vinnur í Efnagerðinni Val. Við hitt- um Auði að máli rétt eftir keppnina og spurðum hana, hvort þetta hefði ekki verið gaman. — Jú, þetta var auðvitað dá- lítið spennandi, en ég held néi samt, að ég mundi ekki leggja út í það aftur. — Við hvað starfarðu þarna í Val? — Ég brugga sultur, saftir og geri svona sitt af hverju. — Likar þér vel? — Já, svona sæmilega, en það er rnargt annað, sem ég vildi starfa frekar. — Og hvað þá helzt? — Það er æðsti draumur minn að verða leikkona. En ég er bara svo óskaplega feimin, að ég hef ekki einu sinni þorað að fara i leik- skóla enn þá. — Ætlarðu að ferðast mik- ið í sumar? — .Tá, eius mikið og ég get, ég hef mjög gaman af ferða- lögum, og sérstaklega langar mig til aS komast til Noregs. — Ferðu ekki mikið út að skemmta þér? — Nei, ekki mikið, fer stundum á nýju dansana í Þórskaffi. 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.