Vikan


Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 31

Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 31
Vinnustofur S.I.B.S. framleiða nýjustu tegundir af rafsoðnuni hlífðarfatnaði, með fullkomnustu tækjum sinnar tegundar hér á landi. Söluumboð Dl P y)c n u .buiAlusiAma P* Hálsfcsti að ¥eði SMÆLKI Fyrirlesari hafði verið beðinn að koma til bækistöðva klæðleysingja Og halda þar erindi. Er hann kom á ákvörðunarstaðinn tók fjöldi karla og kvenna á móti honum, og voru félagsmenn algerlega naktir. En allir höfðu þeir fengið dökkan sólbrunablæ. Leiðtogi, eða formaður, klæð- leysingjanna fylgdi fyrirlesaranum upp í herbergi það, er hann átti að bua i á meðan hann dveldist meðal klæðleysingjanna. Maðurinn sagði, að borðaður yrði miðdegis- verður að hálfri klukkustund lið- inni. Fyrirlesarinn velti þvi fyrir sér, hverju hann skyldi klæðast. Átti hann að vera klæðlaus? Að líkindum var það eðlilegra, þar sem allir á staðnum voru berir. Þegar bjallan hringdi til mið- deg'isverðar, gekk fyrirlesarinn inn i borðsalinn og var klæðlaus með öllu. f>á sá hann, að ajjir félags- menn í klæðleysingjafélaginu voru klæddir beztu fötum sinum. Ekki fygir það sögunni, hvernig klæðleysingjum hafi þótt fram- ferði fyrirlesarans. En búast má við, að þessi „búningur“ hans hafi ekki hneykslað þá karla og konur, er þarna voru saman komin, þar sem þetta fólk vildi sjálft ganga allsnakið. ♦ Ég sökkvi sorgum minum í augu hundsiris mins, eins og væru þau djúpur brunnur. Þess bera menn sár Framhald af bls. 17. hringhugans. Kleyfhuganum finnst það óviðeigandi að opna hug sinn og tjá tilfinningar sinar öðrum mönnum. Þeir þurfa að komast i geðshræringu til þess, en iðrast þess svo oft beizklega eftir á, hve opinskáir þe'ir voru. ,.Ég á svo bágt með að tala um þetta,“ sagði kunningi minn við mig nýlega, „en svo versnar það stöðugt, þangað til ég er orðinn viðþolslaus; þá byrja ég að drekka, og í fylliríinu masa ég og masa, og á eftir er ég svo á nálum um, að ég hafi sagt eitthvað, sem ég vil engum segja.“ Þegar innhverfa og viðkvæmni eru komnar á þetta stig, nálgast þær mörk hins sjúklega. BÓNORÐ Framhald af bls. 16. Þau gengu hljóG aftur að stein- múrnum. — Hérna báðuð þér mín, sagði hún lágt og hreyfði sig ekki. Hvað hefðuð þér annars gert, hefði ég svarað játandi? — Það veit ég ekki. Hvers vegna spyrjið þér? — O, ég hef bara sálfræðilegan áhuga á þvi. — Reynið aftur. — Dásamlegt. Jæja, — viltu gift- ast mér, Solange? — Þaö er eina ósk mín. Hann þrýsti henni að sér og kyssti hana. — Armbandið! sagði hann stuttu síðar, :— við verðum að reyna að finna það, áður en myrkrið skellur á. —- Þess þarf ekki, hvíslaði hún, þaö er i veskinu mínu ... Framhald af bls. 10. Luciu hálsfestina með þeim ummæl- um, að liún vildi ekki halda eftir kærustu minningu gamallar vinkonu sinnar um mann hennar og ham- ingju þeirra. Nú liðu mörg ár, og Lucia borg- aði stöðugt upp í skuldina til Önnu Karinar. Hún átti erfitt uppdráttar, og sá dagur kom, að ekki var um annað að ræða en selja hálsfestina. Hún vildi ekki fara aftur til Önnu Karinar, því að þessu sinni var hún ekki viss um, að hún gæti, ef til kæmi, endurgoldið nýja skuld. Hún fór því með hálsfestina til gullsmiðs, og þar fékk hún eitt mesta áfall, sem hún hafði fengið, síðan maður henn- ar dó, hálsfestin reyndist vera fölsuð. I örvæntingu sinni leitaði hún til Önnu Iíarinar og sagði henni sann- leikann. Það var ekki um annað að gera, þar sem framtið og menntun sonar hennar var annars vegar. „Ég get ekki lengur fengið þér hálsfestina að veði, þar sem hún er fölsuð,“ sagði Lucia. Hún vissi ekki, hvort hálsfestin hafði verið fölsuð frá upphafi eða hvort maður henn- ar hafði fengið gerða eftirlíkingu af henni og selt siðan þá réttu til þess að eyða nú lika þessum pen- ingum. En hún skammaðist sin eins og hún ætti alla sökina. Anna Karin kinkaði aðeins rólega kolli og sagði: „Já, þetta vissi ég reyndar.“ „Vissir þú það?“ „Já, ég ætlaði að tryggja hana, — maður er aldrei öruggur, — og þannig uppgötvaði ég þetta.“ Lucia starði á hana. Hún hugs- aði um það, sem oft var sagt um Önnu Karinu, að hún væri aðsjál og ágjörn, og hún varð mjög hrærð. Anna Karin hafði á sinum tima lán- að henni mikla upphæð, en þegar hún uppgötvaði, að ekki var trygg- ing fyrir henni, hafði hún þagað til að hlifa sinni gömlu vinkonu við sorg. Lucia greip um hönd Önnu Karinar og þakkaði henni fyrir, en Anna Karin dró að sér höndina. „Þú þarft ekki að þakka mér fyrir,“ sagði hún kuldalega. „Ég gerði þetta ekki þin vegna,“ „Ekki mín vegna?“ „Nei, ég gerði það vegna hans, Nú, þegar hann er dáinn, get ég vei viðurkennt það, að ég elskaði hann.“ Lucia kom ekki upp nokkru orði, Loksins stamaði hún: „En þú tal- aðir aldrei vel um hann, þú varst alltaf fráhrindandi og kuldaleg frá byrjun.“ Anna Karin kinkaði kolli og sagði: „Heldur þú, að honum hefði líka átt að leyfast að sigra mig? Ást mín var ekki blind. Ég sá í gegnum hann, veikleika hans og óáreiðanleika. En ég elskaði liann, við þvi var ekkert að gera. Það, að ég þagði yfir hálsfestinni og svikum hans, var ekki þín vegna, heldur vegna hans. Mér þykir vænt um þig sem vinkonu, en ég elskaði hann, og þess vegna, þegar ég læt þig nú aftur hafa peningana, er það ekki heldur þín vegna, það er vegna sonar hans.“ ý’. Með A vitamini. Hreinsor oq mýl<ir ' , k húdina Æ Hvaft segja 'ilnurnár?'' Er þa* ekkl undravert að fullorðin kona skuli llta svona unglega út. Léyndardómurinn er að hún notar' Rósól-Crem með Á vlta- mlnl i hverju kvöldi. a VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.