Vikan


Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 15

Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 15
^Skyrtukjóll, jafnvíð- ur upp úr og niður úr, beltislaus og hnepptur að framan. Ermarnar eru lang- ar en brotið upp á þær, þar til þær ná aðeins fram að oln- boga. Ljósar síðbuxur og köflóttar skyrtur eru mikið í tízku og ganga jafnt sem sportföt að sumri til og inniföt að vetr- V inurn. /^Ermalaus blússa, hneppt að framan og aðeins látin haf- ast við undir streng. Margföld perlufesti og tvö armbönd á sama handleggnum eru gjarnan notuð við svona einfaldan klæðnað. Hér eru sýnishorn af fötum, sem mikið eru notuð í París um þessar mundir, allt frá krínólín-kjólum nið- ur í síðbuxur. Þessi föt eru einföld í sniðum og hentug. Hér kemur svo hinn vinsæli krínólínkjóll, sem er aðal-spari- flíkin. Innra pilsið er allt í pífum, og dökku doppurnar og bryddingarnar eru £ sama lit og ytri kjóll- V inn. Hversvegna þetta og hversvegna hitt? Ung móðir sat með lítinn son sinn fyrir framan mig í strætisvagninum. Þau voru svo nærri mér, að ég heyrSi hvert einasta orS, sem þeim fór á milii. Drengurinn spurði um hitt og annað, eins og börn á hans aldri verða að gera til þess að fá eitthvað aS vita um margbreytileika heimsins. — Ilvers vegna eru bílarnir rauðir? — Hvers vegna eru þeir svona margir? — Iivers vegna keyra þeir svona liratt? Það er kannski vegna þess, að þetta eru sjúkrabílar, svaraði hann sjálfum sér. Svona hélt hann áfram að spyrja, viðstöðulaust. Á þessum tíu mínútum, sem við vorum í vagninum, var eina svarið, sem hann fékk iijá móður sinni: — Það hef ég ekki hugmynd um. Þegiðu nú, Pétur minn. Ef til vill hefur móðirin verið aS hugsa um ein- hverja alvarlega hluti, eða liún hefur verið þreytt. En hvað sem því líður, þá var það synd drengsins vegna, að hann skyldi ekki fá svör við spurningum sinum. Hann hefði nefnilega getað fræðzt heilmikið í þessari stuttu ökuferð, ef móðir hans hefði útskýrt fyrir honum þá hluti, sem fyrir augu bar. 'Það var einnig skaði fyrir móðurina að vera svo alvarlega þenkjandi, að hún skyldi ekki geta notið þess að tala við drenginn sinn. Það er oft svo skemmtilegt og hressandi að ræða við börn og reyna að lita hlutina sömu augum og þau gera. Margir foreldrar kvarta um, að börnin vaxi svo fljótt frá þeim og hætti að sýna þeim trúnað. En ef foreldrar vilja eiga trúnað barna sinna um fermingu, verða þeir að gera sér grein fyrir, að þeir þurfa að hafa áhuga á því, sem börnin hugsa og taka sér fyrir hendur, frá því að þau eru agnarsmá. Það má pkki segja við þau eins og móðirin í strætisvagninum gerði: Það hef ég ekki hugmynd um, — þegar þau spyrja, — Hvers vegna eru bilarnir rauðir? YIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.