Vikan


Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 10

Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 10
Hálsfesti að veði Hún var há og grönn kona, fremur skarpleit, — þannig minn- ist ég hennar. Ég þekkti hana ekki, þegar hún var ung, aftur kom hún stöku sinnum til foreldra minna og vakti alltaf hjá mér tilfinningar blandnar ótta og andstyggfi. Löngu seinna __ eftir dauSa hennar — leit ég á hana i allt öðru liósi. ÞaS var, þegar Lucia frænka sag?5i mér söguna um háisfestina. Anna Karin. en þa8 var nafn hennar, hafði verið yndisleg stúlka, þesar hún var ung. Þá var hún vinkona Luciu frænku, en svo giftist Lucia uneum manni, hekktum kvennabósa, sem gat frekar stært sig af góðu útliti en efnum og kostum. En Lucia tilbað hann, og hann gerði hana hamingjusama, hví að það er ekki ailtaf, að hestarnir sláist. þótt stallurinn sé tómur, og ást Luciu óx við mótlæti og vonbrigði. Heimanmundi hennar var brátt sóað, og þau ár komu. að erfitt var að draga fram lifið. Hið eina, sem effir var. var hálsfesti frá hinum góðu timum. Vinátta Ónnu Karinar og Luciu hafði kóinað miög eftir giftingu Luciu. Anna Karin gifti sig aldrei, og það var sagt, að hún væri nizk og einblíndi meira á iarðneska hluti en hollt væri fyrir sál og likama. Allt frá byriun hafði hún tekið fiandsamlega afstöðu gagnvart eioinmanni Luciu. Aumingja Lucia hlaut þvi að hafa verið mjög illa stödd, þegar hún dag nokkurn fór til sinnar gömlu vinkonu og bað hana um hjálp. Hún sagði henni, að maður sinn væri veikur og byrfti á læknismeðhöndlun að halda, en þau hefðu ekki ráð á bvi. ,jÞess vegna bvð ég þér hálsfesti mina að veðS,“ sagc5i hnn. ,.T5í? vil ekki selia hana, því a?5 hún er kserasta minnig min frá liðnum dögum. Taktu við hálsfestinni, og hafðu hana, þangað til ég hef unnið mér inn næga peninga til að borga lánið!" En Lucia, sem hafði verið viðkvæm og barnaleg stúlka, hafði harðnað og lært að komast fram úr vandræðum. Hún fékk at- vinnu og vann af kappi, þvi að hún lofaði, að hún skyldi spara saman til að borga lánið. Anna Karin fékk hálsfestina og lét henni í té .þá upphæð, sem var nauðsynleg fyrir læknismeðhðndl- uninni. Maður Luciu náði sér, og mánaðarlega borgaði hún hluta af skuldinni. I hvert skipti bað hún vandræðalega um að fá að sjá hálsfestina, og Anna Karin kom þá með dálitið háðslegar athugasemdir um viðkvæmni hennar. Siðan dó maður Luciu. Veikindi þau, er hann hafði talið sig albata af, höfðu tekið sig upp aftur, og eftir nokkurra mánaða legu lézt hann. Þegar búið var að jarða hann, sendi Anna Karin Framhald á bls. 31. 10 VERflLAU "^etraunirT'^^^BI A þessum sfoð gerðist eitt af jbessu þrermu: 1. Snorrí Sturluson tók sér bað í lauginni 2. Lík Jóns Arasonar þvegið eftir aftökuna 3. Ölvaður heildsali úr Reykja- vík druknaði þar fyrir fimm árum Lausnir eru J)ví aðeins teknar til greina að þær séu klipptar út úr blaðinu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.