Vikan


Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 34

Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 34
merceriseraða tvinnans STERKUR Merceriseringin gerir tvinnan bæði sterkan og teygjanlegan. Hann er því mjög heppilegur fyrir allan saumaskap. HNÖKRAR EKKI Teygjanleiki tvinnans kemur í veg fyrir, að harm hnökrist. Það finnst bezt, þegar saumaö er. HLEYPUR EKKI Það er aldrei hætta á, að efnið rykkist, ef Mölnlycke-tvinni er notaður, því að hann hleypur ekki. Saumurinn verður ailtaf jafn og áferðarfallegur. LIT- OG LJÖSHELDUR Hvítur Mölnlycke-tvinni gulnar ekki og svartur tvinni verður aldrei grár. Öll litbrigði mislita tvinnans halda sínum upphaflega lit. Berið Mölnlycke-tvinna saman við annan tvinna og sjáið mismuninn. Mölnlycke-tvinninn er framleiddur hvítur og svartur í No. 30, 36, 40, 50 og 60, 200 yardar á kefli. Af mislitum tvinna er um að velja 150 mismunandi litbrigði og eru 110 metrar á kefli. MÖLNLYCKE-TVINNINN ER SELDUR HJÁ KAUPFÉLÖGUM UM LAND ALLT JL Dóttir ^læpamannsins Framh. af bls. llf. aði. ég með mér og leit aftur fyrir mig, á bakgluggann. Kabbi hugsaði um hið sama á sama augnabliki og mamma lika, því að húh gekk beint að glugganum og lokáði honum. Hópurinn úr þorpinu 34 var nú ekki meir en um það bil tutt- ugu metra í burtu, og við heyrðum raddir hrópa: „Komdu út, Pietro, og gakktu eins og maður mót dauða þinum!" Og síðan mátti enn heyra: „Dreptu þau, signor Antonio. Sýndu þessu hyski, sem lagt hefur fjölskyldu- hamingju þína í rúst, enga miskunn!" I miðjum hópnum stóð signor Antonio hugsi og horfði á hlaupið á byssu pabba, en það skagaði út yfir gluggakarminn. Til allrar hamingju gat hann ekki séð föður minn, sem nú lá rænulaus í óviti á gólfinu undir byssunni. „Dreptu þau!“ skrækti E’ugenia, og ég sá hana hrinda signor Antonio all- hressilega fram, svo að hann stóð einn á miðri götunni fyrir framan allan hópinn. „Farðu, og dreptu þau öll, þessi eiturkvikindi!" skrækti nornin á nýjan leik, og allur hópurinn rak upp hrifningaróp til samþykkis. Aðeins Florella heyrðist mótmæla, og rödd hennar var haldin megnum ekka og átakanlega sorgmædd. „Ég skal skjóta hann, þennan ve- sæla hund!“ hvæsti móðir min. Hún gaf föður mínum miskunnarlaust VIKANf a /.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.