Vikan


Vikan - 17.11.1960, Side 2

Vikan - 17.11.1960, Side 2
Ljótt orðbragð Til Vilcunnar: Ég sný mér aö Póstinum til þess að reyna að fá góð ráð. Sonur minn er svo hræðilega orðljótur. Hann er 15 ára, og segir ekki eina einustu setningu svo hann minnist ekki á And- skotann- og Djöfulinn. Svo bölvar hann hræði- Jega. Hvað á ég að gera? Móðir. Minnimáttarkennd hjá unglingum kemur oft fram í ljótum munnsöfnuði, en sem betur fer líður þetta oftast hjá eftir því sem þeir þroskast. Vænlegast til skjóts árangurs væri að láta hann umgangast einhvern sem bölvar enn þá meira — ef sá maður fyrirfinnst. Hver á gömul prógröm? Kæra Vika! Ég er nú einu sinni áður búinn að skrifa þér en ekki Tengið svar nú geri ég það aftur í von um að betur takist. Getur þú vísað mér á stað sem ég get fengið gömul prógrömm (bíó) ég er alveg snarvitlaus safnari. Ég sendi þér vísu í síðasta bréfi það er kannske þessvegna að ég hef ekki fengið svar hún var víst voðalegt hnoð. Eitt ælla ég að biðja þig um hvort þú gætir ekki flutt fleiri brandara svo sem skotasögur o.s.frv. Á. H. Það er ófært að láta öll þín bréf í körfuna, og reyndar hreint ekki hægt, þegar þú legg- ur svona mikla vinnu í umslagið. Það hefði verið nóg til birtingar, með öllu sínu blóma- skrúði. Ekki kann ég að vísa þér á gömul prógrömm, en hins vegar er það víst, að margir eiga slíkt í fóium sínum og væru fá- anlegir til að skifta. Póstinum væri sönn á- 2 VIKAN nægja að því að hafa milligöngu þar um. Sem sagt, ef einhver vill eiga kaup við bréfritara, er hann beðinn að gefa sig fram við Póstinn. Við skulum líka athuga málið, hvort við getum ekki birt fyrir þig nokkrar skotasögur við tækifæri. Rautt hár og afbrýðisemi Kæra Vika. Geturðu nú ekki gefið mér góð ráð. Ég er alveg í vandræðum. Maðurinn minn er svo hræðilega afbrýðisamur, af því að litli strákur- inn okkar, (rúmlega árs gamall), er rauðhærður. Maðurinn minn er með Ijósskollitað hár, og ég ljóst, en bróðir minn sem dó var rauðhærður. En áður en ég giftist, var ég stundum með strák sem var rauðhærður, og nú lætur maðurinn minn alls konar glósur rigna yfir mig, af því að strákurinn er rauðhærður. Hvað á ég að gera, svo liann sé ekki svona afbrýðisamur út af engu? Ein Ijóshærð. Við þessu er tæpast rnörg ráð hægt að gefa. Sumum mönnum er nautn í því, að kvelja konurnar sínar, annað hvort líkamlega eða andlega, vitandi eða óafvitandi. Ég fæ ekki betur séð, en þinn maður geri það óafvitandi, en j>að er ekki betra fyrir því. Hið eina, sem þú getur gert, er að láta hann finna, að þú elskir hann og engan annan — og vona að strákurinn líkist honum í flestu öðru en hára- litnum. Keypti köttinn í sekknum Pósturinn. Ó, Vika inín, ég er svo hræðilega óham- ingjusöm. Ég er trúlofuð manni, en nú veit ég að hann er giftur annarri. Hef ég ekki fullan rétt til að slíta trúlofuninni? J. St. Jú, víst hefur þú rétt til þess. Og mín skoð- un er sú, að því fyrr, sem þú gerir það, þeim mun fyrr verðir þú hamingjusöm á ný. Fullvissu vantar Kæra Vika. Ég er ein þeirra, sem hef áður leitað til þin í vandræðum mínum og fengið góða hjálp. Nú er ég með manni, sem ég er svolítið hrifin af, en ekki viss um að ég elski hann nóg. Hann segist vera vitlaus í mér og ekki geta lifað án mín, og vill meira að segja giftast mér. Á ég að segja já eða nei? H. B. Ef þú elskar hann ekki, skaltu segja nei. Ef þú ert á báðum áttum, er sennilega bezt fyrir þig að komast burtu frá honum um nokkurra mánaða skeið. Stúlkur, sem eru ákveðnar og duglegar, geta oftast fengið vinnu erlendis nokkra mánuði, og eftir þann tíma veiztu betur um staðfestu tilfinninga ykkar beggja. Hjónband, þar sem annar að- ilinn er hálfvolgur, er mun verra en vonlaus ást án hjónabands. Vatn og egg, Vika mín góðl Er það rétt, að mpður géli' séð hvort egg er nýtt eða gamalt með því að láta það i vatn? Sigga. Eftir því sem fróðar konur í þessum mál- um segja mér, er hægt áð fara nærri um aldur eggja með því að láta þau í '/2 lítcr af vatni, sem 125 grömm af borðsalti hafa vérið hrærð út í. Ef eggið er iiýtt, liggur það á botninum, sé það gamalt, flýtur það, því pfar í vatninu" sem það er eldra.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.