Vikan - 17.11.1960, Blaðsíða 24
Næsta mynd Marilyn Monroe
heitir „The misfits“ og kemur
hún senn á markað í Ameríku.
Þar leikur Marilyn konu, sem
er veikgeðja og hjálparvana,
spillt fyrir áhrif af slæmum
uppvaxtarskilyrðum. Hún lifir
i sífelldri leit að karlmönnum
og er taugaóstyrk og óörugg
með sjálfa sig, nema menn til-
biðji liana. „Sönn mynd af
eiginkonu minni,“ segir leik-
ritahöfundurinn Arthur Miller,
sem reyndar er kvæntur leik-
konunni og sést hér á myndinni
með henni.
Sænski stórhlauparinn Dan Waern stóð sig ekki
eftir vonum á Ólýmpíuleikunum i Róm og urðu pað
Svíum mikil vonbrigði. Það kom í ljós við rannsókn,
að þetta stafaði af því að garpurinn hafði ekki nægi-
lega mikið járn í blóðinu fyrir þá járnhörku sem
þarf í olympíska keppni. Þegar búið var að leiðrétta
þessi mistök, stóð Waern sig miklu betur og ástralska
gazellan, Herb Elliot mátti hafa sig allan við að sigra
hann. Hér er Dan Waern i keppni við Ungverja í
landskeppni milli Svíþjóðar og Ungverjalands. Eftir
slettunum að dæma, hefur hann að minnsta kosti ekki
leitt hlaupið alla leið.
Waern
að
hætta
Kubrick og Sue Lyon
Lolita
Nú á að fara að kvikmynda
LOLTTU eftir samnefndri skáldsögu
Vladimirs Nobokovs. Sagan hefur
komið út i íslenzkri þýðingu og hluti
hennar birtist í Ásnum sálaða. Sagan
þykir nokkuð grá á köflum; lýsir
enda ástarsambandi miðaldra manns
og fjórtán ára gamallar stúlku. Leik-
stjórinn, Kubrick, var nærri kæfður
í bréfum frá metnaðargjörnum
mæðrum, sem vildu benda honum á,
að dóttir þeirra væri fædd í hlut-
verkið. Kubrick vandaði valið og
ieit á hvorki meira né minna en 800
stúlkur áður en úrskurðurinn kom.
Að lokum fann hann fjórtán ára
gamla stúlku, sem hann var ánægður
með. Hún heitir Sue Lyon og er frá
Davenport i Iowa, en á nú heima
í Los Angeles með móður sinni. Hún
er mjög lík lýsingunni á Lolitu, en
hver skyidi trúa því, að það væri
aðeins fjórtán ára stúlka á þessari
mynd. Hún þykir hafa ákafiega fag-
urt bros og vann í keppni um „bros
ársins“, sem tannlæknar þar vestra
efndu til.
24 VIKAM j
Framhald á bls. 31.
Ekkert hefur sannast
Oft er fiagð undir fögru skinni, segja þeir, sem
ekki treysta sakleysislegu útiiti og mjúkri áferð.
Flögðin reynast líka stundum undir fögrum skinnum,
en engu síður hinum ófögru og er þeim engu betur
að treysta. Það þykir oft eitthvað grunsamlegt við
það, þegar ungar og fallegar stúlkur giftast afgömlum
körlum. Ef þessir sömu karlgarmar taka svo upp á
því að deyja rétt á eftir, þá þykir venjulega um að
kenna ofreynslu í hinum fyrstu og hörðustu átökum
hjónabandsins, eða þá að eiginkonan unga hafi komið
karlskömminni fyrir kattarnef til þess að geta sem
fyrst byrjað hina dýrlegu daga fyrir mátt arfahlut-
ans. Þessi unga og fallega dama giftist vellauðugum
bisnismanni i Bandaríkjunum, en hann burtkallaðist
skyndilega að því búnu. Þótti ættingjum og vinum
hins látna að tæplega mundi allt með felldu og hefur
^nú komið kæra á hendur drósinni fjrir morð. Ennþá
• hefur þó ekkert sannazt.