Vikan - 17.11.1960, Blaðsíða 22
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Vikunnar
^Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunní,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning kostar ekki
■»,7 neitt, nema menn vilji fá skriflegt svar, beint frá draumráðningamanninum. Þá kostar ráðn-
* ingin 50 krónur og bréfið verður að láta í ábyrgð.
Til draumráðanda Vikunnar.
Fyrir nokkru dreymdi mig, að ég var að borða
með frænda mínum, sem ég hef verið hjá í
kaupavinnu. Allt í einu fannst mér vinstri hönd-
in á mér vera soðin upp að úlnlið og frændi
minn ætlaði að fara að skera sér bita úr lóf-
anum með borðsaxi, en ég gat talið hann af
því. Liturinn á lófanum minnti mig á soðið
iambakjöt. Fyrir hverju er draunmrinn? Með
fyrirfrám þökk. Kaupamaður .
Svar til kaupamanns.
Draumurinn merkir, að frændi þinn hafi
hagnazt vel á vinnu þinni í sumar og að þú
megir vel við una að hafa innt af hendi góða
þjónustu.
HvaÖ segja stjörnurnar um 'hæfileika yOar,
möguleika og framtíö? Viljiö þér fá svar viö
þessu þá sendiö upplýsingar um nafn, heimilis-
fang og ár, fœöingarstaö og hvenær sólarhrings-
íns þér fæddust ásamt greiöslu í umslagi merkt
pósthólf 2000 Kópavogi og svariö mun berast yö-
ur meö pósti.
Lauslegt yfirlit (sólkort) ......... kr. 50.00
Lauslegt yfirlit meö hnattaafstööum .. — 100.00
Spádómar fyrir eitt ár kostar ...... — 200.00
Nákvœmt yfirlit meö hnattaafstööum — 500.00
Aö gefnu tilefni tökum viö fram aö fæöingar-
stund má helzt ekki skakka meira en 15 mínútum.
Þór Baldurs.
Kæri draumráðningamaður.
Mig dreymdi núna fyrir stuttu að mér fannst
ég kominn á æskustöðvarnar og ég væri að
róa þar á bát. En svo fannst mér á draumn-
um að ég réði mig á annan hát til manns, sein
ég þekki. Það var alltaf frekar kalt á milli
okkar, þegar við vorum nágrannar. Mér fannst
við fiska mjög vel og fór vel á með okkur.
Fannst mér að ég færi heim til hans og talaði
við dætur lians og var allt í bezta lagi. Ég vil
taka það fram, að þessi maður er ekki sjó-
maður.
Vonast til að þú birtir ráðninguna sem
Kær kveðja- Forvitinn.
Svar til forvitins.
Þér mun verða falið verkefni, sem þér
mun takast að leysa betur en á horfðist í
fyrstu.
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að segja þér draum, sem mig
dreymdi. Mér fannst ég vera stödd á einhverj-
um stað, sem ég vissi ekki hvar var, — og var
með pilti, sem ég þekki. Þá finnst mér allt í
einu birtast stór og frekar óskaplegur maður,
og svo eru þeir allt í einu farnir að slást. Mér
fannst ég vera hálfhrædd. Fannst mér pilturinn
vera ljósklæddur. Næst fannst mér ég vera
stödd í löngum hringstiga, og er maðurinn stóri
að elta mig niður stigann. Þegar við erum kom-
in í miðjan stigann, gat ég falið mig í einhverju
útskoti, svo að hann fer fram lijá og heldur
áfram niður. Ég flýti mér allt hvað ég get upp
stigann. Þar stendur pilturinn, og finnst mér
allt í einu við vera með lítinn strák (þriggja
mánaða, sem ég á). Við fórum að tata um,
hvernig við kæmumst burt, áður en stóri mað-
urinn kæmi aftur. Svo varð draumurinn ekki
Erla Bjartmanns.
Svar til Erlu Bjartmanns.
Draumurinn merkir tímabundinn aðskiln-
að þinn og barnsföður þíns. Stóri maðurinn
er tákn aðskilnaðarins, þar eð hann verður
til þess, að þið skiljið, en endurfundir ykk-
ar benda til þess, að allt lagist um síðir.
Barnið f draumnum er tákn um nokkra erf-
iðleika, þar eð ungabörn eru alltaf talin vera
fyrir nokkrum erfiðleikum. Þýðingin verður
auðskilin, hvað það snertir, þegar þess er
gætt, að ávallt þarf að hafa nokkuð fyrir
ungabörnum og hugsa vel um þau. Eitthvað
muntu hrapa f áliti vina og kunningja, þar
eð þú verður að fara niður stigann, en það
jafnar sig sýnilega, þar eð þú snýrð við og
ferð sömu leið til baka.
Árabáturinn er bundinn aftan í vél-
bátinn, og svo er stefnan tekin til
lands. Skipstjórinn sendir skeyti til
lands og lætur v.ita að drengirnir séu
fundnir og hejlir á húfi.
Þegar vélbáturinn leggst að
bryggju, er pabbi hans Bubba
kominn til að taka á móti
drengjunum. Hann þakkar skip-
verjum og skipstjóra innilega.
Þegar Bubbi kemur heim, kem-
nr mamma með útbreiddan
faðminn. Hún er svo glöð að
vera búin að fá hann Bubba
freijn;
Svo verður Bubbi að segja pabba
og mömmu frá ferðalaginu. Þau
hlusta hugfangin á drenginn. En
Bubbi má ekki lenda í slíku aftur,
BUBBI I SJÓFERÐINNI
Vélbáturinn nemur staðar, og sjómenn-
irrnir kraka í árabátinn. Eftir smá-
stund er árabáturinn kominn að hið
vélbátsins.
Bubba og Sigga er hjálpað upp í vélbát-
inn. Þeim er orðið kalt. Þeir eru leiddir
niður i lúkarinn.
Þeim er gefið heitt kaffi að
drekka og þeir hressast fljót-
lega. Svo eru þeir spurðir
spjörunum úr.
22 VIKAN