Vikan - 17.11.1960, Blaðsíða 15
er menningaratriði
uKvmmtileg gervi, eins og meö-
ivigjandi myndir sýna.
— paS vantar ekki áhugann
njá fólkinu, sögöum við, þeg-
ar hlé varð á hringingunum.
— f>að hefur gerbreytzt á
fáum árum, sögðu þau. Starf-
semin undanfarið virðist liafa
smítað út frá sér. Fólk hefur
sagt okkur, að það hafi notið
þess miklu betur að sækja
skemmtanirnar, síðan það
Þessi pör fengu verölaun í £>
hjónaflokknum á lokadans-
leiknum í fyrravor: Valgeröur
Jóhannsdóttir og Haukur Ingi-
mundarson, 1. verölaun, —
þau standa lengst til hœgri, —
Rannveig Jónasdóttir og Arn-
grímur GuÖjónsson, 2. verö-
laun, Guöríöur Jónasdóttir og
Magnús Guömundsson, Jf. verö-
laun, og Bryndís Þorleifsdóttir
og Jón Þór Jóhannsson, 3.
verölaun.
Frá einni af dansskemmtunum skólans. Stúlkan og p>
drengurinn hafa fengiö fyrstu verölaun fyrir dans
í þeirra aldursflokki. ViÖ 'hliö þeirra stendur dómar-
inn, SigríÖur Ármann danskennari, og Hermann
Ragnar viö hljóönemann.
lærði að dansa. Það voru lijá okkur hjón á fimm-
tugsaldri i fyrra, og maðurinn hafði aldrei reynt
að dansa fyrr. Þau sögðust hafa komizt í tilhuga-
lif í annað sinn og kváðust hlakka til í hvert sinn,
sem þau færu á dansskemmtanir. Svo er annað,
sem ekki má gleyma: Sjálfar dansæfingarnar eru
s“kemmtun út af fyrir sig og heilmikil tilbreyting
í hversdagslífinu.
— Það eru einhverjir nýir tizkudansar á ferð-
inni á hverju ári. Er ékki einhver slikur í ár?
—■ Jú, það er Madison, vinsæll tízkudans um
þessar mundir. Hann er uþprunninn i Englandi og
svipaður Jive. Þetta er rýtmadans, einkum og sér
í iagi fyrir unglingana. Hann er eins og fleiri
slikir dansar, sem komið hafa fram á siðari árum,
að dansparið er ekki i dansstöðu, heldur laust
hvort frá öðru.
— Hvernig kynnizt þið nýjungum i danslist-
inni, — við skulum taka dans eins og Madison, sem
þið kennið í vetur? Hvernig hafið þið lært hann?
— Við förum utan á hverju sumri til náms og
miðum við að gera það. Við höfum fyrst og fremst
farið til Danmerkur og erum félagar í danska
danskennarasambandinu. í sumar sóttum við
meðal annars ráðstefnu hjá þessu sambandi, sem
haldin var i Kaupmannahöfn.
— Og þar hafa verið kynntar nýjungar?
— Já, þar sáum við margt fróðlegt og skemmti-
legt. Til dæmis kom þangað franskt danspar, sem
tvívegis hefur hreppt heimsmeistaratitilinn i
suður-amerískum dönsum. Svo voru þar líka ensk
hjón, sem einnig hafa orðið framarlega i heims-
meistarakeppni. Framhald á bls. 30.
ið til síns máls. Dans hefur upp-
eldisgildi, á því leikur ekki vafi.
Vikan hefur heimsótt danskennar-
ana Hermann Ragnar Stefánsson
og 'konu hans, Unni Arngrimsdótt-
ur, og þau hafa látið blaðinu i té
ýmsar upplýsingar um stöðu þess-
ara mála. Þessi heimsólcn var gerð
fyrir nokkrum vikum, og þá var
dansskóli þeirra ekki enn tekinn
til starfa í vetur. Hins vegar þagn-
aði síminn ekki, og þau höfðu varla
við að skrifa upp pantanir.
vikaK 15