Vikan


Vikan - 17.11.1960, Síða 28

Vikan - 17.11.1960, Síða 28
Herravesti Framhald af bls. 16. Framstykki: Fitjið upp 101 (105) 109 (113) 1. á prjóna nr. 3% og prjón- ið brugðning, 1 1. sl. og 1 1. br. 7 sm. Takið nú prjóna nr. 5% og prjónið frá réttu 15 (16) 17 (18) 1. slétt prjón, siðan eina mynzturrönd, 16 (17) 18 (19) 1. sléttprjón, eina .nynzturrönd, 16 (17) 18 (19) 1. slétt- prjón, eina mynzturrönd 15 (16) 17 (18) 1. sléttprjón. Aukið út á hliðun- um eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 43 (44) 45 (46) sm. eru fitjaðar upp 4 1. báðum megin. Takið nú úr báðum megin í hverri umferð 9 sinnum. Takið þá úr 1 1. í annarri hverri umferð, þar til 16 1. eru eftir og síðan 1 1. í hverri umferð. Þegar stykkið mælist ca. 44 (46) 47 (49) sm., er stykkinu skipt í tvennt um miðju og önnur hliðin prjónuð fyrst. Takið nú úr fyrir v- hálsmáli 1 1. i 4. hv. umferð. Úrtök- unum í hliðunum er haldið áfram, þar til 5 1. eru eftir, þá er fellt af. Hin hliðin er prjónuð eins. Ermar: Fitjið upp 44 (46) 48 (50) 1. á prjóna nr. 3% og prjónið brugðn- ing 1 1. sl. og 1 1. br. 7 sm. Takið nú prjóna nr. 5% og prjónið slétt- prjón, aukið út 6 1. með jöfnu milli- bili yfir 1. umf. Aukið síðan út 1 1. í hvorri hlið 8 hverja umferð, þar til 70 (74) 78 (80) 1. eru á prjón- inum. Þegar ermin mælist 45 (46) 47 (48) sm. eru felldar af 3 1. í hvorri hlið. Takið nú úr 1 1. i hvorri hlið 3. hverja umferð alla leið upp. Þegar ermin mælist 58 (59) 60 (61) sm., er einn- ig tekið úr á miðri ermi þannig, prjónið þar til komið er að 4 mið- lykkjunum, prjónið þá 2 1. sl. sam- an, takið 11. óprjónaða fram af prjón- inum, prjónið næstu 1. og steypið óprjónuðu 1. yfir þá prjónuðu, prjónið umferðina á enda. Endurtakið nú þessar úrtökur í 6. hverri umferð, i allt 5 sinnum. Þegar 12 1. eru eftir eru felldar 6 1. tvisvar að framan. Það er gert til þess, að ermin sé heldur hærri að aftan. Gangið nú frá vestinu þannig að pressa stykkin mjög iaust frá röngu. Saumið hliðarsauma með úrröktu garninu og aftursting (gjarnan má sauma brugðningana með varpspori). Saumið nú ermarnar við vestið með aftursting, skiljið eftir ósaumað, vinstra megin, að aftan. f gjaldkerastarfinu Jónmundur? Takið nú prjóna nr. 3% og garn- afgang frá vestinu og takið upp 133 (137) 141 (145) 1. frá ósaumaða saumnum að aftan og allt í kring um hálsmálið, ath. að jafn margar 1. séu á báðum helmingum. Takið nú hvitt garn og prjónið (frá röngu) 1 umf. brugðna, 1 umf. sl., 1 umf. br., og takið úr, jafnhliða þessu, frá réttu 2 1. saman báðum megin við mið- lykkjuna. Á röngunni eru tvær 1. prjónaðar saman brugðnar á sama hátt. Eftir þessar 3 hvítu rendur er aftur tekið blátt garn og prjónuð slétt 1 umf. og siðan brugðning, 1 1. sl. og 1 1. br. Takið úr eins og áður, báðum megin við miðju. Prjónið 7 umf. brugðning og fellið af. Saumið nú saman ósaumaða sauminn að aft- an og ermarsauma. KAFFIDÚKUR Ef við þurfum að færa einhverjum morgunkaffið í rúmið, væri gaman að eiga svona dúk á bakkann. Efni: 30x50 sm. af 90 sm. breiðu efni í ljósum lit, 2 m. af leggingar- bandi, dálítið af útsaumsgarni í grænum og gulum lit, dálítið af köfl- óttu efni i blómin. Sníðið dúkinn 30x50 sm. og „serviettuna" 30x30 sm. Brjótið 1 sm. breiðan fald í kringum dúkinn, en % sm. kring um „serviettuna", legg- ið niður við faldana með ósýnilegu faldspori frá röngu. Saumið siðan leggingarbandið yfir sauminn 1 saumavél, og hafið samlitan tvinna. Gangið vel frá samskeytum. Ef legg- ingarband er ekki fyrir hendi, má gjarnan sauma rönd með tveimur roðum af lykkjuspori. Teiknið nú mynztrið á dúkinn með blýanti, þá er auðvelt að strjúka út eða lagfæra. Klippið nú blómin út úr efni, sem fer vel við dúkinn. Klippið þau fyrst út í pappir og ath. vel íormið. Klipp- ið 2 stk. af stærsta blóminu og saumið þau saman að undanskildu dálitlu opi, sem blóminu er snúið gegn um. Klippið einnig 2 stk. af litia blóminu. Leggið nú öll blómin á dúkinn og saumið þau niður með kappmellu- spori. Skiljið eftir ósaumaðan efsta hlutann af stærsta blóminu, þar sem „serviettunni" er stungið í. Saumið síðan leggina með lykkjuspori, einnig kring um biöðin. Saumið „heksesting" inn í blöðin. Pressið lauslega frá röngu. f* — Guði sé lof, ég var orðin svo hrædd um þig! — Var þetta ekki hljóðmúrinn, sem við fórum f gegnum? Athugasemd Reykjavik, 25. okt. 1960. Það er all rikt í fari okkar Islendinga að vilja ata náungan auri og er ekki óalgengt að sjá slik skrif í dagblöðum t. d. í sambandi við stjórnmál og eiga þessi skrif það jafnan sammerkt að þau eru nafnlaus, því enginn vill leggja nafn sitt við óþverrann, þó gaman sé að sjá hann á prenti. Það er næsta fátítt að sjá slík skrif i ópólitískum vikublöðum. Það varð mér því ærið undrunar- efni að sjá slík skrif í Vikunni 20. þ. m. og ekki sízt þegar mér var tjáð að ritstjórinn hefði ekki hugmynd um eftir hvern skrifin væru. 1 þess- um nefndu skrifum var einn af yngri abstrakt- málurunum, Hafsteinn Austmann, tekinn út úr hóp abstraktmálara og lítilsvirtur svo sem frekast var unnt og t. d. talið persónuleg móðgun við annan málara (Gunnlaug Scheving) að þeir skuli tilgreindir samtímis. Skulu þau skrif ekki rakin frekar. Hitt er þó öllu leiðinlegra, en skrif þessi, að þegar blaðið leitast við að svara þessum „tilskrif- um“ bætir það nánast gráu ofan á svart „segist taka undir með höfundi" að verk Hafsteins „séu heldur þunn súpa“. Einnig er smekklaust að vilja læða því inn að Hafsteinn sé „minnstur af öllum litlum körlum". Því verður heldur ekki neitað að með birtingu skrifa sem þeirra, er að ofan getur, gerir blaðið þau að verulegu leyti að sín- um, ekki sízt þegar um nafnlaus skrif er að ræða. Hitt er svo annað mál, að það er ekki sama hvaða menn eru ataðir auri; stjórnmáiamenn geta t. d. jafnan átt slíkt á hættu, en þegar listamenn eða t. d. kennarar eru þannig leiknir er það ennþá svívirðilegra en ella, ekki sízt þegar reynt er að spilla áliti listamannsins eða gera kennara hlægi- legan í augum nemenda sinna. Um Hafstein Austmann er það að segja, að hann er hvort tveggja í senn listmálari og kenn- ari og það undirritaður bezt veit, vel látinn á báðum sviðum. Blaðinu hefði og verið i lófa iag- ið að fá álit annarra myndlistarmanna eða á- hugamanna á Hafsteini. Sá maður þekkir Gunn- laug Scheving illa, sem heldur að hann móðgist þó hann sé nefndur í sömu andránni og Hafsteinn. Meðal annara hafa Ragnar Jónsson í Smára og listmálararnir Valtýr Pétursson og Jóhannes Jóhannesson látið mjög góð orð falla um Hafstein og margt fleira mætti nefna honum til lofs, en yrði of langt mál. Hitt mætti sérhver ritstjórn hafa í huga, að það eru jafnan litlir karlar, sem ata aðra auri á þann hátt og hér hefur verið gert og vafa- samur ávinningur að ljá rúm til slíks, ekki sízt þegar hlutaðeigandi blað gefur sjálft tileíni til hinna ómaklegustu árása. Með þökk fyrir birtinguna. Gunnlaugur Þóröarson. viB VIXAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.