Vikan - 17.11.1960, Qupperneq 39
Bifreíðoeiðendur
Það lækkar reksturskostnað bifreiðar-
innar að láta oklcur sóla
hjólbarðana.
Margra ára reynsla í starfi tryggir
yður góða þjónustu.
Cúmbnrðinn b*f*
Brautarholti 8. — Sími 17984
Er athyglisgáfan
í lagi?
Lausn af bls. 3.
Á neðri myndinni hafa orðið
eftirfarandi breytingar:
1. Leikmaðurinn t. v. er með báð-
ar hendur sýnilegar.
2. Á fætinum lengst t. v. sést að-
eins í hornið á buxunum.
3. Nefið á manninum með boltann
stendur meira upp í loftið.
4. Maðurinn, sem sést undir hægri
handlegg hans, er með hnéhlíf-
ar.
5. Markmaðurinn hefur fitnað.
6. Kinn dómarans er stærri.
7. Á leikmanninum lengst t. h.
sést helmingurinn af andlitinu.
Manngerð listarinnar
Framhald af bls. 12.
er maðurinn dýr, en fyrir atbeina
áhda síns hefur hann löngu hafið
sig yfir þetta tilverustig .Ekkert
menningarafl liéfur átt sterkari
þátt i þessari þróun en listin. Húri
hcfur ieyst manninn úr við.ium
dýrseðlisins og brugðið yfir hann
töfrum ástar, hugsjóna og tilbeiðslu.
PEItSÓNUÞRÓUN LISTA-
MANNSINS.
Það er hverri manngerð áskapað
að mótast af mcginhugsjón sinni.
Hin sérstæða afstaða listamanns-
ins til raunveruleikans veldur þvi,
að persónuþróun hans stefnir ekki
alfaraleið. Þvi virtist hann oft sér-
kennilegur i háttum, viðkvæmur og
reikull, ^nauður af því veraldarviti,
sem tryggir efnahagslegt gengi.
Hann metur lítils ytri siðfágun, ef
hana skortir hlýju hjartans, en gef-
ur ástríðum sínum oft lausan taum-
inn í þeirri von að finna þannig
svölun við sársauka, sem innri and-
stæður valda hoiium.
Allt þetta vekur hneykslun
grunnfærra og dómgjarnra manna.
Færri verða til að halda á lofti
þeirri festu og sjálfsafneitun, sem
iistamaðurinn leggur fram í þjón-
ustu við' hugsjón sína. Oft sýnist
barátta hans öllum vonlaus nema
honum einum, þó að vonin um við-
urkenningu rætist, oft ekki, fyrr en
hann sjálfur er dauður.
Listin seiðir til sin fleiri en þá,
sem fyllilega valda henni. Margur
ofmetur listgáfu sína og keppir því
að vonlausu marki. í fótspor hans
g’ánga þeir, sem halda, að listin sé
ekki annað en loddarábrögð, sem
þeim séu jafnheimil og hverjlim
öðrum. Af liugsjóninni sjálfri eru
þeir ósnortnir með öllu, en leggja
stund á eftiröpun ytri sérkenna i
hátterni listamanna. Þeir eru því
klofnir í eðli sínu og sjálfum sér
ósamkvæmir, og hátterni þeirra
verður oftast afkáralegt. Stundum
leiðir hégómagirni þeirra þó til svo
sterkrar sjálfssefjunar, að þeir þola
sult og seyru fyrir hugsjón, sem
þeir eru ósnortnir af. Þessa eftir-
öpun af manngerð listarinnar hefur
Strindberg gert ódauðlega í Röda
rummet. Hún vekur jafnan á sér
nokkra athygli vegna sérkennilegs
útlit og hátternis, og með þvi er
metnaði hennar oft svalað að fullu.
★
heimilistækin hafa staðist
dóm reynslunnar
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
nn :* 1
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐjAN, hafnarfirði
::i::
VIKAN 39