Fréttablaðið - 02.12.2009, Qupperneq 2
2 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Vaktir á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi eru sagðar allt of fámennar, vinnu-
álagið hafi aukist mikið og millistjórnendum hafi á
ákveðnum sviðum fjölgað meðan starfsmönnum á
gólfinu hafi fækkað.
Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi SFR-
stéttarfélags, Starfsmannafélags Reykjavíkur,
Sjúkraliðafélags Íslands og Eflingar á sameiginleg-
um fundi með trúnaðarmönnum félaganna á Land-
spítalanum í fyrradag. Þeir sögðu að í starfsum-
hverfi félagsmanna þessara félaga hafi orðið miklar
breytingar að undanförnu og frekari breytingar séu
boðaðar.
Markmiðið með fundinum var að fá upplýsing-
ar beint frá trúnaðarmönnum um hvernig ástandið
væri í þeirra vinnuumhverfi og hvað þeir sæju ger-
ast í nánustu framtíð, að því er fram kemur í frétt
frá BSRB. Trúnaðarmenn sögðu frá því að miklar
skipulagsbreytingar hefðu átt sér stað víða á spítal-
anum,
Stéttarfélögin munu fylgjast vel með þróuninni á
spítalanum og halda áfram samráðs- og samstarfs-
vettvangi félaganna, að því er fram kemur, því
nauðsynlegt sé að leggja áherslu á að verja starfs-
umhverfi félagsmanna þessara félaga eins og kostur
sé. - jss
Trúnaðarmenn Landspítala á fundi með stéttarfélögum:
Vaktir sagðar alltof fámennar
LANDSPÍTALI Millistjórnendum hefur á ákveðnum sviðum
fjölgað meðan starfsmönnum á gólfinu hefur fækkað, að sögn
trúnaðarmanna.
Halldór, er þá ekki nóg að
gera í frystihúsunum?
„Að minnsta kosti í Stjórnarráðinu,
sem er orðið stærsta frystihús
landsins og virðist ekki ætla að
linna látum fyrr en allt er frosið
niður á botn.“
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðar, segir ríkisstjórnina hafa fryst
atvinnulífið.
FJÁRFESTINGAR Stofnun fjárfest-
ingarsjóðs lífeyrissjóðanna hefur
verið frestað
um eina viku og
verður stofn-
fundur haldinn
þriðjudaginn
8. desember.
Ástæða frest-
unar er að
ekki hafa allir
lífeyrissjóð-
ir svarað því
hvort þeir hygg-
ist vera með í
sjóðnum og hve háa upphæð þeir
leggi til hans.
Arnar Sigurmundsson, formað-
ur Landssamtaka lífeyrissjóða,
segir að hlutverk sjóðsins verði
að fjárfesta í starfandi fyrirtækj-
um. Fyrst og fremst verður horft
til hlutabréfakaupa í fyrirtækjum
sem eru gjaldeyrissparandi og
gjaldeyrisskapandi. Það verði þó
sérfræðinga sjóðsins að ákvarða
fjárfestingar. - kóp
Sjóður lífeyrissjóðanna:
Stofnfundi
frestað í viku
ARNAR SIGUR-
MUNDSSON
DÓMSMÁL Catalina Mikue Ncogo
var í gær dæmd í tveggja og hálfs
árs fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir hórmang og innflutn-
ing á fíkniefnum. Catalina var
hins vegar sýknuð af ákæru um
mansal.
Catalina er ríflega þrítugur
íslenskur ríkisborgari, ættuð frá
Miðbaugs-Gíneu. Mansalsákæran,
sú fyrsta á Íslandi, laut að því að
hún hefði í fyrra blekkt samlöndu
sína til landsins með loforði um
frí og síðan haldið henni í kynlífs-
ánauð mánuðum saman, svipt hana
fötum og skilríkjum og síðan selt
körlum aðgang að henni og hótað
henni lífláti og líkamsmeiðingum
ef hún væri með uppsteyt.
Catalina var hins vegar sýknuð
af þessum ákærulið. Ekki þóttu
nægar sannanir fyrir því að Catal-
ina hefði hótað konunni og þannig
haldið henni í gíslingu. Þar stóð orð
gegn orði. Nú liggur fyrir Alþingi
frumvarp þess efnis að slíkar hót-
anir þurfi ekki að liggja fyrir til
að um mansal teljist að ræða. Nóg
sé að ljóst þyki að brotamaðurinn
hafi nýtt sér bágar aðstæður þol-
andans.
Í þessu tilviki þótti framburður
meints þolanda einnig ótrúverð-
ugur og mótsagnakenndur. Kom
meðal annars í ljós við aðalmeð-
ferð málsins að konan hefði stund-
að vændi bæði áður en hún kom til
landsins og eftir að hún losnaði úr
meintri prísund Catalinu.
Catalina var hins vegar sak-
felld af öðrum ákæruliðnum, sem
laut að því að hún hefði haft viður-
væri sitt af vændi annarra kvenna.
Slíkur dómur hefur áður fallið á
Íslandi.
Þrjár nafngreindar konur sök-
uðu hana um að hafa gert sig út,
en í ákæru var einnig talað um
aðrar ónafngreindar konur. Þótti
dómnum sannað, í ljósi ýmissa fyr-
irliggjandi gagna, að vændisstarf-
semin hafi verið umfangsmikil og
að vændiskonurnar sem Catalina
græddi á hefðu verið fjölmargar.
Catalina var einnig dæmd fyrir
að skipuleggja innflutning á sam-
tals um 400 grömmum af kóka-
íni, sem þrjú belgísk burðardýr
smygluðu innvortis til landsins.
Þá var Finnur Bergmundsson,
Íslendingur á fimmtugsaldri,
dæmdur í fjögurra mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að lið-
sinna Catalinu við vændisstarf-
semina, meðal annars með því að
taka myndir fyrir auglýsingavef.
Dómnum verður áfrýjað, að
sögn lögmanns Catalinu, Sveins
Andra Sveinssonar.
Catalina hefur sætt farbanni
að undanförnu og var það í gær
framlengt þar til áfrýjunarfrest-
ur rennur út.
stigur@frettabladid.is
Sýknuð af mansali en
dæmd fyrir hórmang
Catalina Ncogo var í gær dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefna-
innflutning og að gera út vændiskonur. Hún var sýknuð af ákæru um mansal.
ÓÁNÆGÐ MEÐ DÓMINN Catalina er ósátt við dóminn og hefur ákveðið að áfrýja
honum. Hún hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á höf-
uðborgarsvæðinu hefur gefið út
ákæru á hendur Davíð Smára
Helenarsyni fyrir tvær líkamsár-
ásir og eignaspjöll.
Davíð er gefið að sök að hafa
slegið mann með krepptum hnefa
í höfuðið á Hressingarskálanum
í október í fyrra og jafnframt að
hafa slegið framkvæmdastjóra
skemmtistaðarins Strawberries
í gagnaugað og brotið í honum
andlitsbein. Þá er hann sakaður
um að hafa brotið rúðu í eldhús-
glugga heimahúss í mars.
Davíð hlaut sjö mánaða fang-
elsisdóm í desember í fyrra
fyrir tvær líkamsárásir, annars
vegar á dómara í utandeildarleik
í fótbolta og hins vegar á knatt-
spyrnumanninn Hannes Þ. Sig-
urðsson.
Sakaður um tvær árásir:
Davíð Smári
ákærður á ný
DÓMSMÁL Ákæra hefur verið gefin
út á hendur Selmu Guðnadóttur, 22
ára konu, sem stakk fimm ára barn
í brjóstið í Keflavík í lok septemb-
er síðastliðinn. Selma er ákærð
fyrir tilraun til manndráps.
Selma bankaði upp á á heimili
stúlkunnar og stakk hana í brjóstið
með hníf þegar hún kom til dyra.
Stúlkan hlaut áverka á þind og
lifur og náði sárið inn undir neðri
holæð neðan við hjarta hennar.
Selma var handtekin samdæg-
urs. Hnífur, sem talið er að hún
hafi notað við verknaðinn, fannst í
ruslatunnu við heimili hennar. Hún
játaði verknaðinn og var í kjölfarið
gert að sæta geðrannsókn.
Þess er krafist að Selma verði
dæmd til refsingar, en til vara
að hún verði vistuð á viðeigandi
stofnun.
Selma hefur setið í gæsluvarð-
haldi síðan hún var handtekin og
var það í gær framlengt um fjór-
ar vikur.
Ástæður árásarinnar eru ekki
ljósar, en vitað er að foreldrar
stúlkunnar höfðu kært Selmu fyrir
eignaspjöll skömmu fyrir árásina.
Hún hafði þá unnið skemmdir á
mótorhjóli í eigu föðurins. - sh
Konan sem stakk fimm ára barn í Keflavík verður fjórar vikur enn í varðhaldi:
Ákærð fyrir manndrápstilraun
Á VETTVANGI Lögregla hafði mikinn
viðbúnað við húsið þegar fréttir bárust
af ódæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Ungliðahreyfingar
Samfylkingar og Vinstri grænna
eru andvígar boðuðum breyting-
um á fæðingarorlofi í þá veru að
foreldrum verði gert að geyma
einn mánuð orlofsins þar til barn-
ið er tveggja eða þriggja ára.
Báðar hreyfingar sendu frá
sér yfirlýsingu um málið í gær.
Í þeim báðum er gagnrýnt að
breytingarnar muni koma verst
við einstæðar mæður, auk þess
sem það sé andstætt tilmælum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar um sex mánaða brjóstagjöf
að einstæð móðir geti ekki tekið
samfellt sex mánaða orlof. Leita
beri sparnaðarleiða annars stað-
ar. - sh
Gagnrýna ríkisstjórnina:
Ungliðar á móti
orlofsskerðingu
VIÐSKIPTI Allt að 80 ára leynd mun
hvíla á viðkvæmum upplýsingum
sem rannsóknarnefnd Alþingis
hefur haft til meðferðar í tengsl-
um við skýrslu um bankahrunið.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gær.
Um er ræða upplýsingar sem
snerta launakjör einstaklinga og
rekstur fyrirtækja. Í samtali við
Stöð 2 sagði forseti Alþingis að
þetta muni ekki rýra gildi skýrsl-
unnar.
Rannsóknarnefnd Alþingis tók
formlega til starfa um síðustu
áramót en nefndinni er ætlað að
rannsaka aðdraganda og orsakir
bankahrunsins.
Skýrsla rannsóknarnefndar:
Leynd á gögn-
um í áttatíu ár
REYKJAVÍK Enginn borgarfulltrúi,
fyrir utan Ólaf F. Magnússon á F-
lista, vill að hafin verði vinna við
nýtt skipulag Vatnsmýrarinnar,
sem geri ráð fyrir því að flugvöllur
verði þar áfram.
Tillaga Ólafs
í þessa veru var
felld í borgar-
stjórn í gær með
fjórtán atkvæð-
um gegn einu.
Ólafur vill
meðal annars
að ný flugstöð
verði reist í stað
núverandi flug-
stöðvar, Umferðarmiðstöðin verði
áfram á sínum stað og að fallið
verði frá byggingu samgöngumið-
stöðvar hjá Loftleiðum. Um þessi
atriði hafa þó fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks verið áhugasamir síðustu
vikur. - kóþ
Samstaða í borgarstjórn:
Tillaga um
flugvöll felld
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
SPURNING DAGSINS