Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 52
36 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR Leikarinn Alec Baldwin heldur því fram að hann muni segja endanlega skilið við leiklistina þegar samning- ur hans við framleiðendur sjónvarpsþáttarins 30 Rock rennur út árið 2012. „Ég hef ekki áhuga á leiklist leng- ur. Kvikmyndir eru hluti af fortíð minni. Ég hef verið í þessum bransa síðastliðin þrjátíu ár, ég er ekki ungur en ég hef enn tíma til að gera eitt- hvað annað,“ sagði leikarinn í nýlegu blaðavið- tali. „Mér finnst erfitt að halda þessu fram, en ég trúi þessu sjálfur. Ég lít á kvikmyndafer- il minn sem klúður vegna þess að kvikmyndir mínar hafa aldrei fengið góða dóma.“ HÆTTUR Alec Baldwin ætlar að hætta þegar samningur hans við sjónvarpsþáttaröðina 30 Rock rennur út. Alec hættir að leika Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar í gær í Lista- safni Reykjavíkur. Verð- launin sjálf eru veitt í lok janúar í flokki skáldverka og flokki fræðibóka, en að þessu sinni var einnig til- nefnt til Íslensku þýðinga- verðlaunanna. Fátt kemur raunar á óvart í þess- um tilnefningum ef undanskil- in eru kannski tvö nöfn. Annars vegar er það Guðmundur Ósk- arsson, sem er tilnefndur í flokki skáldverka fyrir bók sína Bank- ster, og hins vegar Þórdís Elva Þor- valdsdóttir en hún fær tilnefningu í flokki fræðibóka fyrir bók sína Á mannamáli, sem fjallar um ofbeldi á Íslandi. „Það sem ég fagna mest varðandi þessa tilnefningu er að þetta vekur athygli á málstaðnum og bókinni og mun mögulega koma málaflokknum aftur inn í umræð- una,“ segir Þórdís Elva sem var að vonum ánægð með tilnefninguna. „Þessi bók var alltaf skrifuð í þeim tilgangi að upplýsa þjóðina og almenning um stöðu mála. Það var svo eindregin hugsjón hjá mér að ég hugsaði aldrei út í þennan raun- verulega bókmenntaheim þar sem það eru viðurkenningar og verð- laun. Það hljómar kannski hógvært og klisjukennt, en ég spáði ekkert í það. Það var ástríða sem dreif mig áfram frekar en faglegur metnað- ur,“ útskýrir Þórdís. Spurð um kveikjuna að bókinni segist hún hafa lesið um dóma í kynferðisabrotamálum með mikl- um hryllingi og fundist þeir út í hött. „Mér ofbauð bara einn dag- inn og ætlaði að skrifa bréf í blað- ið, en endaði með 267 blaðsíður á borðinu. Það var því aldrei með- vituð ákvörðun að skrifa bók held- ur vatt þetta upp á sig,“ segir Þór- dís sem hefur í mörgu að snúast um þessar mundir. „Ég hef verið með fyrirlestra og er að leggja upp í ferðalag um framhaldsskól- ana. Mér finnst mikilvægt að ná til ungs fólks því það er í mestum áhættuhópi,“ segir hún, en þess má geta að nú stendur yfir sýning á myndum úr bók Þórdísar í Smára- lind. Sýningunni lýkur 10. desem- ber en hún er haldin í tengslum við sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. - ag Tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna EFNILEG Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er til- nefnd til Íslensku bókmenntaverðlaun- anna í flokki fræðirita og rita almenns efnis fyrir sína fyrstu bók, Á mannamáli, sem fjallar um ofbeldi á Íslandi. FRÆÐIRIT OG RIT ALMENNS EFNIS: Helgi Björnsson: Jöklar á Íslandi, Opna. Kristín G. Guðnadóttir: Svavar Guðnason, Veröld. Árni Heimir Ingólfsson: Jón Leifs líf í tónum, Mál og menning. Jón Karl Helgason: Mynd af Ragn- ari í Smára, Bjartur. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir: Á mannamáli. Ofbeldi á Íslandi, JPV útgáfa. FAGURBÓKMENNTIR: Böðvar Guðmundsson: Enn er morgunn, Uppheimar. Guðmundur Óskarsson: Bankster, Ormstunga. Gyrðir Elíasson: Milli trjánna, Uppheimar. Steinunn Sigurðardóttir: Góði elskhuginn, Bjartur. Vilborg Davíðsdóttir: Auður, Mál og menning. ÍSLENSKU ÞÝÐINGAVERÐLAUNIN: Elísa Björg Þorsteinsdóttir: Mála- vextir eftir Kate Atkinson, Bjartur. Guðbergur Bergsson: Öll dagsins glóð, safn portúgalskra ljóða 1900- 2008, JPV útgáfa. Kristján Árnason: Ummyndanir eftir Ovid, Mál og menning. María Rán Guðjónsdóttir: Kirkja hafsins eftir Ildefonso Falcones, JPV útgáfa. Sigurður Karlsson: Yfir hafið og í steininn eftir Tapio Koivukari, Uppheimar. TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA Tónlist ★★★★ Vetrarsól Gunnar Þórðarson Á Vetrarsól eru tónleikar Gunn- ars Þórðarsonar frá því í októb- erbyrjun á hljóð- og mynddiski. Innileg og góð kvöldstund með einum af meisturum íslenskrar poppsögu. Vetrarsól hefur að geyma tónleika með Gunnari Þórðarsyni sem fram fóru 2. október síðastliðinn Í Borg- arleikhúsinu. Í pakkanum er 17 laga geisladiskur og svo tónleik- arnir í heild sinni á DVD-diski, 26 lög ásamt kynningum, spjalli og sögum. Útsetningarnar eru frek- ar einfaldar. Á fyrri hluta tónleik- anna er Gunni að stærstum hluta einn með kassagítarinn, en á síð- ari hlutanum fjölgar á sviðinu. Uppstillingin minnir á Storytell- ers-tónleikaröð VH1 sjónvarpsstöðvar- innar, en helstu ein- kenni hennar eru einmitt nálægð við áheyrendur, fá hljóð- færi og spjall á milli laga. Eins og alþjóð veit er Gunnar Þórðar- son einn af öflug- ustu lagasmiðum íslenskrar poppsögu og þess vegna var vitað mál að hann færi létt með að fylla svona tónleikadagskrá með snilldarlögum. Það sem var meiri spurning var hvernig það kæmi út að hann syngi lögin sjálfur og svo hvernig lög sem voru mikið útsett og hlaðin í frumútgáfunum kæmu út svona næstum berstrípuð. Og jú, hvortveggja gengur ágætlega upp. Gunni er liðtækur söngvari þótt hann sé enginn flauelsbarki og það er líka gaman að heyra lög eins og Lífsgleði og Við saman í einföld- um kassagítarútgáf- um. Gestasöngvar- ar (Svavar Knútur og Buff) standa sig líka vel og það sama má segja um hljóm- sveitina sem birtist á sviðinu upp úr miðj- um tónleikum. Það sem fæst með svona tónleikum er líka nálægðin. Gunni kann alveg að segja skemmtilegar sögur og fer oft á kostum í kynn- ingum og svo heyrast allir textar sérstaklega vel við þessar aðstæð- ur. Upplifunin verður hjartnæm og innileg. Þar með er ég auðvitað ekki að segja að útsetningarnar hér slái við frumgerðunum, en það er gaman að fá að kynnast þessum lögum upp á nýtt með þessum hætti. Trausti Júlíusson Góð stund með Gunna Tékknesku Klaufabárðarnir eru vinsælir. Í vik- unni er von á öðrum skammti af ævintýrum þess- ara seinheppnu félaga, en fyrsti diskurinn kom út í fyrra. „Ég seldi hlutabréfin mín fyrir hrun af því mér var hætt að lítast á það sem bankarnir voru að gera. Ég notaði peningana til að kaupa réttinn að Klaufa- bárðunum,“ segir Einar Árnason, útgefandi. Hann fer frumlega leið til að kynna útgáfuna. „Börn vilja alltaf fara inn í hugarheim sögu- hetja sem þau hafa gaman af. Þá er oft dóti haldið að þeim. Ég held að Ísland þurfi ekki á því að halda að það sé flutt inn fullt af Klaufabárðadóti. Það er mikil vakning í prjónamennsku og miklu skemmti- legri tilhugsun að foreldrar og ættingjar prjóni húfur á börnin til að þau geti leikið Klaufabárðana. Svo þarf ekki nema pappakassa til að koma ímynd- unaraflinu í gang.“ Prjónauppskriftirnar eru á netinu (filmus.is/klaufabardar) og liggja frammi í búðum. - drg Klaufabárðar í prjónamennsku SELDI HLUTABRÉFIN OG KEYPTI KLAUFABÁRÐANA Einar Árna- son er pabbi tékknesku Klaufabárðanna á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þín undirskrift skiptir máli! Farðu á www.isci.is Mænan er ráðgáta – en saman getum við leyst hana. Skrifum öll undir samnorræna áskorun til WHO um að láta til sín taka. Norðurlöndin skora á WHO! www.kvikkfix.is Vesturvör 30c Störtum deginum og bílnum hjá KvikkFix Rafgeymar frá Kr. 14.166.- Ferð á Kársnesið borgar sig! FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.