Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 28
MARKAÐURINN 2. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Styrkleiki japanska jensins kemur ekki bara niður
á íslenskum lántakendum, heldur einnig fyrirtækj-
um og almenningi í Japan.
Þar í landi er engin verðbólga, heldur verðhjöðn-
un sem hefur staðið yfir samfleytt í átta mánuði og
virðist ætla að versna enn eftir því sem jenið styrk-
ist meira.
Þegar saman fer sterkt jen og verðhjöðnun má
búast við alvarlegum vandræðum í efnahagslífi
landsins, sem er með næststærsta hagkerfi heims.
Þótt verðhjöðnun þýði lægra vöruverð í búðum
þýðir hún einnig að rekstrarafkoma fyrirtækja hefur
versnað, sem þýðir að laun hafa lækkað og skuldir
aukast. Hagnaður útflutningsfyrirtækja dregst einn-
ig saman, sem gerir ástandið enn verra.
„Í miðri verðhjöðnun er svona mikil hækkun jens-
ins mjög alvarlegt vandamál sem gæti komið sér illa
fyrir efnahagslífið,“ segir Fujito Mitari, forstjóri
stærstu viðskiptasamsteypu Japans, Nippon Keid-
anren. „Ég vona svo sannarlega að stjórnin bregð-
ist við með neyðarráðstöfunum.“
Japönsk stjórnvöld hafa ekki gripið inn í gjald-
eyrismarkaðinn síðan 2004, en nú virðast líkur auk-
ast á því að gripið verði til einhverra aðgerða til að
sporna gegn frekari verðhjöðnun.
Ofursterkt jenið til
vandræða í Japan
VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI Í JAPAN Sterkur gjaldmiðill og verð-
hjöðnun þykir ekki góð blanda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kínversk stjórnvöld hafa undan-
farið óspart látið fyrirtækjum í té
bæði rausnarlega styrki og ódýrt
lánsfé til þess að örva efnahags-
líf landsins í miðri heimskrepp-
unni.
Þetta gæti þó reynst varhuga-
verð stefna.
Í síðustu viku varaði viðskipta-
ráð Evrópusambandsins við því að
afleiðingarnar gætu komið jafnt
Kínverjum sem heimsbyggðinni
allri í koll. Þrátt fyrir litla eft-
irspurn má búast við straumi
af ódýrum vörum frá Kína, sem
líkur eru til að kalli á verndar-
viðbrögð í öðrum heimshlutum.
„Þessi stöðugi þrýstingur útflutn-
ings frá Kína leiðir sennilega til
aukinnar verndarstefnu í fram-
tíðinni,“ sagði Jörg Wuttke, for-
seti ráðsins.
Ekki er þó að sjá að nein stefnu-
breyting verði hjá kínverskum
stjórnvöldum á næstunni.
Á föstudaginn kom leiðtoga-
sveit Kommúnistaflokksins
saman til að ræða efnahags-
mál. Þar ákváðu leiðtogarnir að
halda ótrauðir áfram við að örva
efnahagslífið með frekari ríkis-
styrkjum og lánveitingu til fyr-
irtækja.
Í Kína jukust fjárfestingar á
fyrri helmingi þessa árs um 40
prósent frá fyrra helmingi síð-
asta árs. Stærstur hluti fjár-
stuðnings frá ríkinu hefur farið
í nýja flugvelli og aðrar opinber-
ar framkvæmdir. - gb
Offjárfesting í Kína kallar á verndarstefnu
ÞOKA Í PEKING Búast má við flóði af
ódýrum varningi frá Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FRÁ SÓMA ER KOMINN
NÝTT
FYRIR JÓL
IN
Hamborgarahryggur
og kartöflusalat
Dönsk lifrakæfa,
sveppir og beikonJólasíldarsalat
Til leigu Kringlan 5, 103 Reykjavík
Glæsilegt 653 fm. skrifstofuhúsnæði á 5. hæð í lyftuhúsnæði. Opið skrifstofu-
rými að stórum hluta. Björt og rúmgóð móttaka með flísum og parketi á gólfi.
Sameiginleg móttaka og mötuneyti fyrir allt húsið. Aðgangur að kennslusal sem
rúmar um 50-60 manns og líkamsræktarsal mögulegur. Næg bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már í s. 897-7086 / 534-1024 ,
hmk@atvinnueignir.is
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur,
löggiltur leigumiðlari
Auglýsingasími
– Mest lesið
Pétur Gunnarsson
skrifar
Sjeik Mohammed bin Rashid al-
Maktoum, fursti í Dúbaí, segir
að staða furstadæmisins sé sterk.
Viðbrögð markaða við greiðslu-
stöðvun eignarhaldsfélagsins
Dúbaí World beri vott um skiln-
ingsleysi.
„Þeir skilja ekki neitt,“ sagði
furstinn þegar hann ræddi við
blaðamenn í gær, samkvæmt vef-
útgáfu Financial Times.
Dúbaí World er eignarhaldsfé-
lag í eigu opinberra aðila í Dúbaí.
Það er talið skulda um 60 millj-
arða bandaríkjadala. Fyrirtækið
tilkynnti á miðvikudag að það gæti
ekki greitt af skuldum sínum.
Rætt hefur verið um Dúbaí sem
„nýja Ísland“ í erlendum fjölmiðl-
um og hruni hefur verið spáð í
landinu. Fréttir af erfiðleikum
Dúbaí World komu fram í lækk-
andi hlutabréfaverði um allan
heim. Fyrirtækið hefur verið um-
svifamikið í alþjóðaviðskiptum og
merkisberi þeirrar stefnu stjórn-
valda í furstadæminu að breyta
furstadæminu í alþjóðlega fjár-
málamiðstöð.
Sjeik Mohammed bin Rashid al-
Maktoum fursti beindi líka spjót-
um að fjölmiðlum vegna umfjöll-
unar undanfarna daga og sagði:
„Fyrirtækið er sjálfstætt og óháð
ríkisstjórninni. Þetta fjölmiðlafár
hefur engin áhrif á einbeitta af-
stöðu okkar. Það er ekki nema
eðlilegt að við tökum til varna
þegar þessi aðför er gerð og þetta
mikla fár verður í fjölmiðlum.“
Í gærmorgun rufu stjórnendur
Dúbaí World sex daga þögn og til-
kynntu að fyrirtækið ætti í við-
ræðum við lánardrottna um end-
urfjármögnun 26 milljarða dala
skulda. Við þær fréttir þokuð-
ust hlutabréfavísitölur í London
og Frankfurt, París og New York
upp á við á ný. Gengi hlutabréfa í
bresku bönkunum, Royal Bank of
Scotland, Barclays og HSBC sem
eru meðal stærstu lánardrottna
Dúbaí World, fór hækkandi á ný.
Sérfræðingar, sem rætt var við
á vefútgáfu Daily Telegaph, sögðu
að markaðurinn hefði talið að 60
milljarða dala skuldir væru í upp-
námi Dúbaí World. Því hafi yfir-
lýsing fyrirtækisins í gær dreg-
ið úr áhyggjum af alvarleika
ástandsins.
Verð á skuldatryggingum Dúbaí
lækkaði einnig í gær.
„Markaðirnir eru að viður-
kenna að Dúbaí-kreppan er bund-
inn við þann heimshluta,“ sagði
Heino Ruland, sérfræðingur hjá
Ruland Research í Frankfurt, í
samtali við vefútgáfu breska dag-
blaðsins Daily Telegraph.
Dregur úr ótta
um afdrif Dúbaí
Dúbaí-fursti kvartar undan skilningsleysi markaðarins og
fjölmiðlafári. Áhyggjur markaðarins vegna furstadæmisins
virðast vera að dvína.
FURSTI Sjeik Mohammed bin Rashid al-Maktoum, fursti í Dúbaí, reyndi í gær að fullvissa
fjölmiðla um að efnahagur furstadæmisins væri traustur og sagði að heimurinn skildi ekki
stöðu mála í ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP-NORDICPHOTO