Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 58
42 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR KÖRFUBOLTI Kvennalið KR í Iceland Express-deildinni hefur unnið níu fyrstu leiki sína á tímabilinu og marga þeirra með miklum mun. KR-liðið hefur ekki fundið fyrir því að missa bandaríska bakvörð- inn Jenny Pfeiffer-Finora í meiðsli því Margrét Kara Sturludóttir hefur séð til þess að enginn sakn- ar Jennyar í KR. Margrét Kara varð tvítug á þessu ári og hefur stærstan hluta síns ferils lagt mest til síns liðs í varnarleik, vinnusemi og fráköst- um. Kara hefur hins vegar stigið stórt skref í að verða meiri skor- ari í vetur og þetta hefur verið sér- staklega áberandi eftir að KR-liðið missti Jenny Pfeiffer-Finora. Liðið vann fimm fyrstu leiki sína með Jenny innanborðs en lenti svo í því að hún meiddist daginn fyrir toppleikinn á móti Hamri. Kara skoraði 23 stig í mikilvægum sigri í Hveragerði og hefur síðan gert enn betur í tveimur af síð- ustu þremur leikjum. Kara kórón- aði frábæran nóvember með því að skora 34 stig á móti Íslandsmeist- urum Hauka á þeirra eigin heima- velli. Hafði burði til að skora meira „Þegar ég tek við liðinu í sumar þá sest ég niður með Köru og sýndi henni hvað ég vildi fá frá henni. Hún hafði þessa burði til þess að verða meiri skorari en hún hefur verið,“ segir Benedikt Guðmunds- son, þjálfari KR-liðsins en hann segist vera aðeins búinn að breyta hlutföllunum innan liðsins. Kara hefur hækkað stigaskor sitt og framlag sitt nánast um það sem Jenny Pfeiffer-Finora skilaði í fyrstu fimm leikjunum. Kara er að skora 11,6 stigum meira í leik (Jenny var með 12,8 stig í leik) og hefur hækkað framlag sitt um 9,0 (Jenny var með 9,4 í framlagi í leik) síðan Jenny meiddist. Áfram í stóru varnarhlutverki „Þetta hefur þróast þannig að hún hefur verið að gera meira í þess- um leikjum síðan Jenny meiddist. Þó að Kara sé að skora meira þá er hún ekki að skora af því að hún sé orðin eitthvað eigingjörn. Þetta er allt innan rammans og í flæð- inu og hún er enn þá í stóru hlut- verki varnarlega,“ segir Benedikt og bætir við: „Kara er búin að vinna sér inn fyrir þessu og hún tekur leiðbein- ingum vel. Maður þarf ekki að segja eitthvað nema einu sinni við hana og þá grípur hún það,“ segir Benedikt. Kara skoraði 23 stig að meðaltali í fjórum leikjum KR-liðsins í nóv- ember en hún hækkaði sig líka upp í 3,8 stoðsendingar og 3,3 stolna bolta í leik. „Hún er því komin með stærra vopnabúr. Kara er líka farin að lesa vörnina miklu betur, hún er farin að lesa það betur hve- nær hún á skjóta og hvenær hún á að keyra upp að körfunni og hvenær hún á að gefa hann,“ segir Benedikt. „Sjálfstraustið hjá henni er líka orðið það gott að henni finnst hún vera orðin virkilega góð,“ sem er greinilega enn að vinna með hana. „Við vitum það alveg að hún er að fara að spila svona í hverjum leik. Það má alls ekki gerast hjá henni eða öðrum að hún fari að finna þessa pressu að hún verði að skora. Þá fer þetta að snú- ast í höndunum á leikmönn- um,“ segir Benedikt en hann er mjög ánægður með liðið. Allir mjög óeigingjarnir „Allt liðið er þannig að það eru allir mjög óeig- ingjarnir og það geta allir unað þeim næsta að vera að skora mikið einhvern leikinn. Svo er röðin komin að öðrum í næsta leik á eftir og svo koll af kolli,“ segir Benedikt. KR-liðið á leik í kvöld á heimavelli á móti Grindavík en Grindavíkurstúlkur hafa unnið fjóra síðustu leiki sína. Það fer fram heil umferð í deild- inni en þá mætast líka Hamar- Njarðvík, Snæfell-Haukar og Keflavík-Valur. ooj@frettabladid.is Margrét Kara sér til þess að KR saknar ekki Kanans síns KR-ingurinn Margrét Kara Sturludóttir átti frábæran nóvember með toppliðinu í Iceland Express-deildinni og hækkaði framlag sitt og stigaskor um það sem liðið missti þegar bandaríski bakvörðurinn Jenny Pfeiffer-Finora meiddist. Á FLEYGIFERÐ Margrét Kara Sturludóttir skoraði 23 stig að meðaltali í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrir meiðsli Jenny Leikir 5 (28,4 mín í leik) Stig í leik 11,4 Fráköst í leik 6,8 Stoðsendingar í leik 2,8 Stolnir í leik 2,8 Varin skot í leik 0,8 3ja stiga körfur í leik 1,2 Víti fengin í leik 3,6 Skotnýting 35,1% Vítanýting 61,1% Framlag í leik 13,8 Eftir meiðsli Jennyar Leikir 4 (31,0 mín í leik) Stig í leik 23,0 Fráköst í leik 4,8 Stoðsendingar í leik 3,8 Stolnir í leik 3,3 Varin skot í leik 1,5 3ja stiga körfur í leik 2,5 Víti fengin í leik 6,0 Skotnýting 47,8% Vítanýting 75,0% Framlag í leik 22,8 KÖRFUBOLTI Bikarmeistarar Stjörnunnar hafa unnið sig til baka inn í toppbaráttu Iceland Express-deildar karla með sigr- inum á Njarðvík og KR í síðustu tveimur umferðum eftir að hafa tapað á undan tveimur leikjum í röð. Það er einkum góður varn- arleikur Garðabæjarliðsins í fjórða leikhluta leikjanna sem hefur lagt grunninn að sigrin- um. Stjörnuliðið vann lokaleik- hlutann í leikjunum á móti KR og Njarðvík samanlagt 34-14 en liðið var undir eftir þrjá fyrstu leikhlutana í báðum þessum leikj- um. Liðsmenn KR og Njarðvík- ur nýttu hins vegar aðeins 5 af 27 skotum sínum í þessum úrslita- leikhlutum leikjanna og urðu að sætta sig við að missa sigurinn til Stjörnunnar. Justin Shouse hefur einnig spilað vel á úrslitastundu í þessu leikjum því auk þess að stýra lið- inu vel þá skoraði hann tveimur stigum meira en KR og Njarðvík í fjórða leikhluta á þessum leikj- um. Stjarnan vann fjórða leikhlut- ann á móti Njarðvík 16-8 og þar með leikinn 82-75. Stjarnan vann síðan lokaleikhlutann í DHL- höllinni 18-6 og þar með leikinn með fimm stigum, 78-73. Í báðum leikjum enduðu Stjörnumenn langa sigurgöngu. Njarðvík hafði unnið 7 fyrstu leiki tímabilsins og KR-ingar höfðu ekki tapað deild- arleik á heimavelli í að verða tvö ár. - óój Stjörnumenn í körfunni: Flottir í fjórða STÝRIR SKÚTUNNI Justin Shouse er frábær í lok leikjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KARA BÆTIR SINN LEIK Í FORFÖLLUM KR-KANANS Solidea sokkabuxur sameina tísku, vellíðan og heilbrigði Solidea býður upp á breiða vörulínu fyrir konur og þjónar þannig þörfum þeirra • Micromassage magic - vinnur á appelsínuhúð • Labyrinth & Babylon - er sniðin að útliti og tísku • Personality - er sniðin að sérþörfum kvenna • Selene, Naomi, Venere - hentar öllum konum • Magic maman og Wonder model maman - auka vellíðan á meðgöngu Leyfðu þér gæði og vellíðan með Solidea sokkabuxum Lyfja, Lágmúla 2. og 3. desember milli kl. 16 og 19 Lyfja, Smáratorgi 4. desember milli kl. 16 og 18 KYNNING Glaðningur fylgir öllum seldum sokkabuxum Sími 585 8750, biovorur@biovorur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.