Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 12
12 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR ELSTAR Kínversku tvíburasysturnar Cao Daqiao og Cao Xiaoqiao eru sagðar elstu tvíburar í heimi, fæddar árið 1905 og því 104 ára gamlar. NORDICPHOTOS/AFP Alhliða uppskrift Pulsa (hituð í vatni, EKKI SOÐIN!!!) Pulsu- brauð og bara hvað sem þig langar að hafa með. (Nema grænar baunir. Grænar baunir í pulsu- brauði geta valdið öndunarerfiðleikum.) H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA www.lapulsa.is Á RÁÐSTEFNU Í HR Tryggvi Björgvinsson, formaður FSFÍ, og Eric F. Salzman, stofnandi og stjórnarmaður hjá Creative Commons. Stefnt er að því að fyrstu „almennu hug- verkaréttarleyfin“ verði gefin út í byrjun næsta sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UPPLÝSINGATÆKNI Lagadeild Háskól- ans í Reykjavík, Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) og Creative Commons-samtökin hafa gert með sér samstarfssamning um þýðingu og aðlögun „almenns hugverka- réttar“ á Íslandi. Tryggvi Björg- vinsson, formaður FSFÍ, kynnti samstarfið á ráðstefnu sem félagið hélt í gær í Háskólanum í Reykja- vík. Almennur hugverkaréttur er þýðing á enska hugtakinu Creati- ve Commons, en það er höfundar- réttarleyfi þar sem rétthafi heim- ilar afnot með eða án ákveðinna skilyrða. Meðal þeirra sem inn- leitt hafa og nota í miklu mæli slík höfundarréttarleyfi eru vefsíður á borð við WikiPedia-alfræðivefinn og ljósmyndavefurinn Flickr. Meðal frummælenda á ráðstefnu FSFÍ í gær var Eric F. Saltzman, einn upphafsmanna og stjórnar- maður í Creative Commons-sam- tökunum sem starfa víða um heim. Hann segir stafræna miðlun hafa kallað á nýja nálgun í höfundar- réttarmálum og umgjörð til þess að virða mætti höfundarrétt. Með sameiginlegum, eða almennum hugverkarétti, opnuðust víðfeðmir möguleikar á samstarfi og þróun hugmynda og verkefna sem ekki hafi verið til staðar áður. Alfræði- vefurinn WikiPedia segir hann að sé skínandi dæmi. Með Creative Commons-leyfum eru heimiluð afnot efnis um leið og uppfyllt eru þau skilyrði sem kveðið er á um í viðkomandi leyfi, svo sem varðandi nafngreiningu, dreifingu, eða hvort nota megi verk í hagnaðarskyni, eða í afleidd verk. Fram kom í máli Tryggva að 52 lönd hafi nú þýtt og aðlagað Creati- ve Commons-hugverkaleyfi að lagaumhverfi sínu, þar á meðal séu mörg Evrópulönd og Norðurlönd- in öll, utan Íslands. Átta lönd hafi hins vegar nýlega hafið aðlögun- arstarfið. „Og í dag bætist Ísland í þeirra hóp,“ sagði Tryggvi í gær, en hann tekur að sér hlutverk opinbers verkefnisstjóra Creative Commons á Íslandi. Hann gerir ráð fyrir að innleiðing hér taki um hálft ár. „Og er þá undanskilin öll undirbúningsvinna sem þegar hefur farið fram.“ Verkefnið segir Tryggvi að sé einnig unnið í samstarfi við menntamálaráðuneytið, en laga- deild Háskólans í Reykjavík sé lagalegur bakhjarl verkefnisins meðan FSFÍ sjái um kynningar- mál og haldi utan um framvindu mála. olikr@frettabladid.is Nýjung í höfundarrétti Gefa á út fyrstu íslensku „Creative Commons“-hug- verkaleyfin í byrjun næsta sumars. Slík leyfi eru notuð víða um heim og auðvelda stafræna miðlun. Þorskur og ýsa hækkar Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægð- um þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um fimm prósent. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um tíu prósent. Verð á karfa var hækkað um fimm prósent. Verð þetta gildir frá 1. desember 2009. SJÁVARÚTVEGUR DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur sýkn- að bíleiganda og Sjóvá-Almenn- ar af skaðabótakröfu manns sem slasaðist á fótum í Súðavíkurhlíð í apríl 2006. Slysið varð með þeim hætti að maðurinn stóð á miðjum vegi milli björgunarbíls og bíls sem hvorki komst lönd né strönd vegna þess að snjóflóð lokaði veginum. Þá féll annað snjóflóð og ruddi bílnum sem nær var hlíðinni þvert yfir veginn og að hinum bílnum, svo maðurinn klemmdist á milli. Mað- urinn fór í mál með þeim rökum að bíllinn sem skreið af stað, og bílstjóri hans, hafi átt sök á því hvernig fór fyrir honum. Á þetta féllst dómurinn ekki, heldur taldi snjóflóðinu um að kenna. - sh Maður tapar skaðabótamáli gegn tryggingafélagi: Snjóflóðinu að kenna BANDARÍKIN Hjónin sem skutu upp kollinum í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu í síðustu viku sögðust í sjón- varpsviðtali alls ekki hafa verið boðflennur. Tarek Salahi og kona hans, Michaele, heilsuðu þar upp á Barack Obama forseta, Joe Biden varaforseta og fleiri háttsetta menn og konur í ríkisstjórninni. Í þættinum Today Show á NBC- sjónvarpsstöðinni sögðu hjónin að eftirmál heimsóknar þeirra í Hvíta húsið væri það skelfileg- asta sem fyrir þau hefði komið. Þau fullyrtu að þau hefðu alls ekki verið boðflennur. Þau sögðu enn fremur að þau hefðu veitt lífvarðasveit Hvíta hússins allar þær upplýsingar sem beðið hefði verið um og að sann- leikurinn myndi brátt koma í ljós. Robert Gibbs, blaðafulltrúi Hvíta hússins, sagði aftur á móti í samtali við CNN-fréttastofuna að Salahi-hjónin hefðu ekki verið á gestalistanum. „Ef þú ert ekki á gestalista en mætir samt í sam- kvæmi, þá ertu boðflenna sam- kvæmt mínum bókum,“ sagði Gibbs. Hugsanlega hafa Salahi-hjónin nú tekið þennan pól í hæðina þar sem líklegt er að þau verði kærð fyrir athæfið, sem getur bæði kostað þau umtalsverðar fjárhæð- ir og jafnvel fangelsi. - ót Hjónin Tarek og Michaele Salahi sem mættu í boð í Hvíta húsinu: Segjast ekki hafa verið boðflennur TAREK OG MICHAELE SALAHI Hjónin mættu óboðin í hóf í Hvíta húsinu og birtu myndir af því á samskiptavefnum Facebook. VINNUMARKAÐUR Atvinnulaus- ir fá enga desemberuppbót úr atvinnuleysistryggingasjóði í ár frekar en fyrri ár. Þetta árétt- ar Vinnumálastofnun á vefsíðu sinni vegna fyrirspurna sem borist hafa stofnuninni. Greiðsl- ur verða því með hefðbundnu sniði þessi mánaðamót. Vinnumálastofnun greiddi í gær út 1,84 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar fyrir nóvember til um 14.100 einstakl- inga. Fyrir októbermánuð voru alls greiddir út 1,82 milljarðar, en þá til ögn fleiri einstaklinga, eða 14.231. - sh Engin desemberuppbót: Atvinnulausir fá ekki uppbót SAMFÉLAG Velferðarsjóður barna afhenti Þorbirni Jenssyni, for- stöðumanni Fjölsmiðjunnar, verð- launagrip og 3,5 milljóna króna ávísun í gær. Þetta voru verðlaun fyrir „ómetanlegt starf í þágu barna“, eins og segir í tilkynn- ingu frá sjóðn- um. Í Fjölsmiðjunni er ungt fólk þjálfað fyrir almennan vinnu- markað og hafa um fjögur hundr- uð nemendur notið góðs af. Íslensk erfðagreining stofn- aði Velferðarsjóðinn árið 2000 og hafa um 600 milljónir farið til ýmissa verkefna síðan. Sjóðurinn úthlutar 160 milljónum í ár. - kóþ Velferðarsjóður barna: Þorbjörn fékk 3,5 milljónir ÞORBJÖRN JENSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.