Fréttablaðið - 02.12.2009, Qupperneq 10
10 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
VIÐSKIPTI „Ég fagna þessari niður-
stöðu og tel mikilvægt að málið sé
komið í höfn,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra þegar
í gær var kynnt samkomulag ríkis-
ins og skilanefndar Kaupþing um
framtíðareignarhald á Arion banka
(sem áður nefndist Nýja-Kaupþing).
„Samkomulagið er hagstætt fyrir
báða aðila,“ bætti hann við.
Samkvæmt samkomulaginu eign-
ast kröfuhafar Kaupþings 87 pró-
senta hlutafjár í Arion banka, en
ríkið 13 prósent. Þá leggur skila-
nefndin fram 66 milljarða króna
í stað ríkisins og endirgreiðir þá
upphæð af þeim 72 milljörðum
króna sem ríkið hafði lagt bankan-
um til í eigið fé. Fram kom í máli
Steingríms á fundinum í gær að
með þessu samkomulagi væri ljóst
að ríkið sparaði sér mikla fjárbind-
ingu og kostnað með því að hafa
nú náð samkomulagi um framtíð-
areignarhald tveggja af þremur
stærstu viðskiptabönkunum. „Þetta
er mikilvægur þáttur í endurreisn-
inni sem hér á sér stað,“ sagði
Steingrímur og upplýsti um leið að
viðræður um Landsbankann stæðu
nú yfir í Lundúnum. Hann sagði ráð
fyrir því gert að endurskipulagn-
ing bankanna verði um garð gengin
fyrir áramót.
Í sameiginlegri tilkynningu
kemur fram að skilanefnd Kaup-
þings telji að virkt eignarhald í
Arion banka muni hámarka verð-
mæti þeirra eigna sem fluttar voru
á milli bankanna í október 2008.
Skilanefnd Kaupþings skipar
fjóra stjórnarmenn í nýja stjórn
Arion banka og ríkið einn, en
bankinn verður sjálfstætt starf-
andi dótturfélag Kaupþings.
Hlutafé er rúmlega 72 milljarðar
króna og eiginfjárþáttur A er 12
prósent, samkvæmt tilkynningu.
Í samkomulaginu við ríkið felst
einnig að ríkið leggi Arion banka
til víkjandi lán í erlendri mynt
sem hækki eiginfjárgrunn hans í
16 prósent.
Skilanefndin og ríkið skrifuðu í
byrjun september undir samninga
sem fólu í sér tvo möguleika fyrir
skilanefnina, annars vegar að fara
þá leið sem nú hefur verið farin og
hins vegar að taka ekki þátt í fjár-
mögnun bankans, en eiga þess í
stað virkan kauprétt að hlutafé á
árunum 2011 til 2015.
Samkomulag skilanefndarinnar
og ríkisins er háð samþykki Fjár-
málaeftirlitsins og Samkeppniseft-
irlitsins. Ný stjórn bankans verður
skipuð þegar samþykki þeirra ligg-
ur fyrir. olikr@frettabladid.is
Mikilvægum þætti
endurreisnar að ljúka
Kröfuhafar eignast 87 prósent í Arion banka og ríkið 13 prósent samkvæmt
samkomulagi sem kynnt var í gær. Ríkið fær endurgreidda 66 milljarða af 72
milljarða framlagi í eigið fé bankans. Bankinn fær víkjandi lán frá ríkinu.
Arion banki auglýsir á
næstu dögum stöðu
bankastjóra lausa til
umsóknar. Bankinn er
fyrstur stóru viðskipta-
bankanna til að gera það.
„Ráðningarsamningur
Finns Sveinbjörnssonar
bankastjóra er tímabund-
inn og rennur út næstkom-
andi áramót.
Skilanefnd Kaupþings
banka og Bankasýsla ríkisins hafa
verið meðvituð um þetta í samn-
ingaviðræðum undangenginna
mánaða,“ segir í tilkynningu bank-
ans. Finnur tilkynnti stjórn
Arion banka og skilanefnd-
inni að hann sæktist ekki
eftir starfinu að loknum
ráðningartímanum. Í
tilkynningu bankans er eftir
honum haft að alla tíð hafi
legið fyrir að verkefnið væri
tímabundið og nú þegar
„langþráð niðurstaða“ væri
fengin um framtíðareignar-
hald bankans væri eðlilegt
að nýr bankastjóri yrði ráðinn. Í
spjalli við blaðið upplýsti Finnur
að óráðið væri hvað við tæki hjá
honum eftir áramót. -óká
AUGLÝSA EFTIR NÝJUM BANKASTJÓRA
FINNUR
SVEINBJÖRNSSON
WWW.N1.IS
Frábært úrval af dekkjum, dekkjahótel og betri þjónusta
Þú færð skjóta og góða hjólbarðaþjónustu hjá N1. Við bjóðum upp á eitt mesta úrval
landsins af hjólbörðum og geymum sumardekkin á dekkjahóteli fyrir þá sem vilja.
Renndu við hjá okkur þegar þér hentar, við tökum vel á móti þér!
Veturinn er kominn til að vera!
Hjólbarðaþjónusta N1 er á eftirtöldum stöðum:
Bíldshöfða 2 Reykjavík sími 440 1318
Réttarhálsi 2 Reykjavík sími 440 1326
Fellsmúla 24 Reykjavík sími 440 1322
Ægisíðu 102 Reykjavík sími 440 1320
Langatanga 1a Mosfellsbæ sími 440 1378
Reykjavíkurvegi 56 Hafnarfirði sími 440 1374
Dalbraut 14 Akranesi sími 440 1394
Grænásbraut 552 Reykjanesbæ sími 440 1372
Hvernig fæ ég tölvupóstinn
í farsímann minn?
– Örnámskeið fyrir starfsfólk
fyrirtækja 2. desember –
Fyrirtækjaþjónusta Hátækni býður upp
á röð örnámskeiða í vetur. Fyrsta námskeiðið
– Tölvupóstur í farsímann – verður
haldið í verslun Hátækni miðvikudaginn
2. desember kl. 12. Kennd verður
uppsetning á tölvupósti í helstu gerðum
Nokia og HTC farsíma. Farið verður m.a.
yfir Microsoft Exchange, Lotus Notes
og POP netþjóna.
Skráning á www.hataekni.is/ornamskeid.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Námskeiðið er ókeypis.PIPA
R
\
TB
W
A
SÍ
A
91
75
7
Jóhann Ólafsson & Co
NÚNA!
SKIPTU
OSRAM SPARPERU
R
ALLT AÐ
80%
ORKU-
SPARNAÐ
UR
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
SPARAÐU með
OSRAM SPARPERUM.
80% orkusparnaður
6-20x lengri líftími
Umhverfisvænar
Fjölbreytt úrval
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Heimilistæki, stór og
smá, ljós og símar í
miklu úrvali.
Líttu inn og gerðu
góð kaup. Við tökum
vel á móti þér.
A
T
A
R
N
A
fyrir
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
HAFA HUG Á
SPARISJÓÐUM
Ríkið kann að óska eftir að kaupa
sparisjóði í eigu Arion banka, falli
slík kaup að endurskipulagningu
sparisjóðakerfis landsins. Þetta kom
fram í máli Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra þegar í gær var
kynnt samkomulag við skilanefnd
Kaupþings um eignarhald á Arion
banka. Steingrímur segir að hug-
myndir í þessa veru hafi verið ræddar
við skilanefndina og bankann, en ef
af þeim yrði þá færu þau kaup fram
á viðskiptalegum grunni. „En það
liggur fyrir áhugi ríkisins að eiga á
þessu kost,“ sagði Steingrímur. - óká
Í ARION BANKA Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings banka, og
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynntu samkomulag ríkisins og skilanefndar-
innar um framtíðareignarhald á Arion banka á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN