Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 18

Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 18
18 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Meðferð Alþingis á niðurstöðum Rannsóknarnefndar um bankahrunið Stjórnmálaflokkarnir eiga að tilnefna fulltrúa í níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþing- is og móta viðbrögð þings- ins við niðurstöðunum. Forsætisnefnd Alþingis hefur samið og lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um Rannsókn- arnefnd Alþingis sem rannsakar aðdraganda og orsakir falls bank- anna fyrir rúmu ári. Í því eru fyrirmæli um hvern- ig Alþingi ber að fara með skýrslu nefndarinnar en þau byggja á sam- komulagi formanna þingflokka og forsætisnefndar þar um. Þá er í frumvarpinu fjallað um varðveislu og aðgang að rafrænum gagnagrunnum sem orðið hafa til í vinnu rannsóknarnefndarinnar og kveðið á um friðhelgi fólks sem unnið hefur að rannsókninni. Í gildandi lögum um rannsókn- ina er gert ráð fyrir að forseti Alþingis og formenn þingflokk- anna fjalli um skýrslu nefndar- innar og geri tillögu um meðferð Alþingis á niðurstöðunum. Að athuguðu máli hefur forsætisnefnd nú ákveðið að sérstakri níu þing- manna nefnd verði falið að fjalla um skýrsluna og móta viðbrögð Alþingis við niðurstöðum hennar. Ekki er talið heppilegt að einhver fastanefndanna annist málið og með kosningu sérstakrar nefndar „gefst flokkunum jafnframt færi á því að velja sérstaklega þá full- trúa sem verður trúað fyrir þessu mikilvæga verkefni“ eins og segir í greinargerð með frumvarpinu. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins var samstaða innan for- sætisnefndar um þessa tilhögun. Var hún kynnt þingflokkum áður en frumvarpið var lagt fram. Í greinargerðinni segir að það verði í verkahring nefndarinnar að fjalla um hvernig draga megi almenna lærdóma af efnahags- áföllum. Það kemur líka í hlut hennar að móta afstöðu til ábyrgð- ar í málinu að því marki sem það er hlutverk þingsins. Þá má ætla að þingmannanefndin fylgi eftir ábendingum rannsóknarnefndar- innar um breytingar á lögum og reglum sem miða að því að koma í veg fyrir að atburðir af því tagi sem urðu hér síðasta haust endur- taki sig. Við það er miðað að þingmanna- nefndin geri grein fyrir athugun sinni í skýrslu sem lögð verður fyrir þingið og getur hún gert til- lögur til þingsályktunar. Nefndin mun fá heimild til að láta rann- saka einstaka þætti málsins nánar telji hún þörf á frekari upplýsing- um. Ekki er ráðgert að hún ann- ist sjálf slíka framhaldsrannsókn heldur feli hana sérfróðum aðil- um. Komi til þess fær þingmanna- nefndin skýrslu með niðurstöð- unum og ákveður sjálf hvernig meðferð hennar skuli hagað. Ekki eru tímamörk á meðferð þingmannanefndarinnar en henni gert að hraða störfum sínum eftir fremsta megni. Í frumvarpi forsætisnefnd- ar er jafnframt fjallað um með- ferð þeirra umfangsmiklu gagna- grunna sem Rannsóknarnefndin hefur undir höndum og byggjast á upplýsingakerfum frá bönkunum og öðrum. Í þeim eru fjárhags- upplýsingar af ýmsu tagi um við- skipti fjármálastofnana sem taldar eru hafa mikla fræðilega þýðingu. Nefnir nefndin sem dæmi að þeir kunni að nýtast við rannsóknir á hvernig bankastarfsemi bregst við sveiflum á fjármálamörkuðum og hvað beri að forðast í því efni. Gagnagrunnarnir verða varðveitt- ir í Þjóðskjalasafninu og fá fræði- menn aðgang að þeim að uppfyllt- um skilyrðum um trúnað og vernd persónuupplýsinga og upplýsinga sem varða mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækja í rekstri. Stjórnmálaflokkarnir stjórna framhaldinu RANNSÓKNARNEFNDIN Í henni sitja Sigríður Benediktsdóttir, doktor í hagfræði við Yale-háskóla í Bandaríkjunum, Páll Hreinsson hæstaréttardómari og Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. Skýrsla hennar verður tilbúin fyrir 1. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Markmið starfa Rannsóknar- nefndar Alþingis er skýrt: að leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna á síðasta ári og tengdra atburða. Þá á nefndin að leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Nefndin hefur haft mjög rúmar lagaheimildir til að rækja störf sín. Að lögum er beinlínis öllum skylt að verða við kröfu nefndar- innar um að láta í té upplýsingar, gögn og skýringar sem hún fer fram á. Á það jafnframt við um upplýsingar sem háðar eru þagn- arskyldu samkvæmt reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja, sérstökum reglum um utanríkis- mál, öryggi ríkisins eða fundar- gerðir ríkisstjórnar og ráðherra- funda og fundargerðir nefnda Alþingis. Skýrsla rannsóknarnefndar- innar, sem skila á Alþingi fyrir lok janúar, verður þá þegar gerð opinber. Leiti sannleikans Rannsóknarnefndin efndi til blaðamannafundar um miðjan október og kynnti lauslega störf sín fram að þeim tíma. Fram kom að hún hefði þá tekið formlegar skýrslur af 105 einstaklingum en ekki fékkst uppgefið um hvaða einstaklinga var að ræða. Jafn- framt hafði nefndin rætt við yfir 300 manns á fundum og í viðtöl- um til að afla nánari skýringa og upplýsinga. Fréttablaðið greindi frá því að lengsta skýrslutakan tók 24 klukkustundir og dreifðist á þrjá vinnudaga. Enn átti nefndin þá eftir að kalla inn nokkuð marga, var haft eftir Sigríði Benediktsdóttur nefndarmanni. Nefndin ræðir við hundruð manna Sérstök rannsókn hefur farið fram á hvort skýringar á falli bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfs- háttum og siðferði. Hefur hún farið fram samhliða störfum Rannsóknarnefndar þingsins og byggir á sömu lögum. Forsætisnefnd Alþing- is skipaði vinnuhóp um þá rannsókn líkt og sjálfa Rann- sóknarnefndina. Í vinnuhópnum eru Vilhjálmur Árnason, prófess- or í heimspeki, Salvör Nordal, for- stöðumaður Siðfræðistofnunar, og Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Jafnréttisráðs. Siðferðishópurinn Forsætisnefnd Alþingis telur ekki útilokað að þeir sem fjallað verð- ur um í skýrslu Rannsóknarnefnd- ar þingsins muni telja að ummæli eða upplýsingar sem birtast í henni vegi að réttindum þeirra, svo sem friðhelgi einkalífs. Í því ljósi leggur nefndin til að því fólki sem unnið hefur að rannsókninni verði veitt ákveðin vernd gegn slíkum málsóknum. Nær ákvæðið til nefndarmanna, sérstaks vinnu- hóps um siðferði og þeirra sem hugsanlega verður falin fram- haldsrannsókn að ákvörðun sér- stakrar þingmannanefndar. Í greinargerð með frumvarp- inu segir að hlutverk nefndar- innar sé að varpa ljósi á ástæð- ur bankahrunsins og segja til um hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Voru henni veittar lagaheimild- ir til að afla upplýsinga sem eiga almennt að fara leynt út af regl- um um þagnarskyldu. Jafnframt fékk nefndin heimild til að greina frá slíkum upplýsingum í skýrslu sinni til Alþingis ef það er nauð- synlegt til að rökstyðja niðurstöð- ur hennar og almannahagsmunir eru taldir vega þyngra en hags- munir viðkomandi. Forsætisnefnd telur mikilvægt að rannsóknarnefndarmenn geti tekið afstöðu til þess hvað eigi að birta í skýrslunni án þess að þurfa að leiða hugann að því hvort þeir kunni persónulega að þurfa að taka til varna í dómsmálum út af því sem fram kemur. Tiltekið er að slík málsókn mundi leiða til fjárút- láta nefndarmanna sem gætu orðið verulega íþyngjandi. Ekki geti tal- ist sanngjarnt að þeir verði þving- aðir til að grípa til varna fyrir það lögmælta verkefni sem þeim var trúað fyrir af Alþingi og hugsan- lega bera af því fjárhagslegt tjón. Í frumvarpinu er tekið fram að íslenska ríkið beri ábyrgð á athöfn- um þessa fólks eftir almennum reglum hvort sem mál er höfð- að fyrir innlendum eða erlendum dómstóli. Mun ríkið því standa straum af kostnaði sem kann að hljótast af málarekstri, hvort sem hann verður fyrir innlendum eða erlendum dómstóli. Bent er á fordæmi þess að fólki njóti friðhelgi fyrir dómstólum. Nærtækust er friðhelgi þingmanna út af því sem þeir hafa sagt á Alþingi. Þá er ekki hægt að sækja kröfur í tilefni af álitum umboðs- manns Alþingis og málsókn gegn dómurum er útilokuð. Alþingi býst við dómsmálum vegna skýrslunnar: Nefndarfólk varið fyrir málsóknum FRÉTTASKÝRING BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON bjorn@frettabladid.is www.matis.is Vannýtt tækifæri S B A 1 2 /2 0 0 9 Á morgun, fimmtudaginn 3. des. frá kl. 8:30-9:30 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, bjóða Matís, AVS sjóðurinn og Samtök fiskvinnslustöðva til opins fundar. í íslenskum sjávarútvegi? Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja Tækifæri í íslenskum sjávarútvegi Sveinn Margeirssons, sviðsstjóri hjá Matís Tvöföldum verðmætin Að loknum erindum gefst tími fyrir spurningar og svör. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, stjórnar fundi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.