Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 22
22 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Eiður Svanberg Guðnason skrifar um ágóða af lottórekstri Fyrir nokkru birtist í Morgunblaðinu stutt grein eftir Ágúst Guðmundsson, forseta Bandalags íslenskra listamanna. Greinin hét: Menning og lottó. Sá sem þetta ritar, hefur ekki orðið þess var að greinin hafi vakið nein viðbrögð. Í grein- inni kemur fram að bæði á Norðurlöndunum og í Bretlandi njóti menningin góðs af miklum hagnaði af lottórekstri. Gildandi lög um lottó, eða talnagetraunir, hér á landi voru upphaflega samþykkt í maí 1986. Þá fengu þrír aðilar einkaleyfi til að reka lottó fram til ársloka árið 2005. Í desember árið 2003 var þetta einkaleyfi framlengt til 1. janúar árið 2019. Lögverndað einkaleyfi til lottóreksturs er beinn ríkisstyrkur. Þau þrenn samtök, sem skipta með sér hagnaði af þessu ábatasama fyrirtæki eru: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ung- mennafélag Íslands (60%) og Öryrkjabandalag Íslands (40%). Þrír stjórnmálaflokkar gerðu með sér óform- legt bandalag á þingi um að hafa þetta svona. Það samkomulag var gert að næturlagi í þingflokks- herbergi Alþýðubandalagsins, – líklega reykfylltu bakherbergi,– eða þannig. Þetta voru: Sjálfstæð- isflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Alþýðu- bandalagið. Sjálfstæðisflokkurinn var aðalbak- hjarl íþróttahreyfingarinnar, Framsókn sá um Ungmennafélagið sem lengi hafði verið eins konar deild í flokknum, Alþýðubandalagið talaði einkum fyrir Öryrkjabandalagið. Oddur Ólafs- son, læknir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hafði upphaflega flutt þetta mál. Ætlan Odds var sú að Öryrkjabandalagið eitt nyti góðs af talnagetraun- um. Oddur var alla tíð öflugur talsmaður öryrkja á Alþingi. Þá brá svo við að Ellert B. Schram, sem þá var þingmaður utan flokka en jafnframt forystu- maður í Íþróttahreyfingunni, stöðvaði málið með málþófi í neðri deild þingsins. Upp úr því var svo gert þetta samkomulag sem fyrr getur. Alþýðu- flokknum var haldið fyrir utan þennan bræðing þessara þriggja stjórnmálaflokka. Þetta var fyrir rúmlega 23 árum. Í umræðum um málið leyfði ég mér að benda á að verið væri að setja á laggirnar einhverja afkastamestu peningamaskínu sem nokk- urn tíma hefði verið gangsett á Íslandi. Það reyndist rétt. Ég gagnrýndi einnig hinn langa gildistíma laganna, sem þá var „aðeins“ fram til 2005 og ennfremur að ekki skyldu fleiri samtök eða verkefni á sviði mannúðar- og menningarmála njóta góðs af þessari nýjung. Ég talaði fyrir daufum eyrum. Það var búið að ákveða þetta. Kökunni hafði þegar verið skipt. Mig minnir, að ég hafi lagt til að skipting hagnaðar af þessu fyrirtæki yrði endurskoðuð á fimm ára fresti eða svo. Ekki var heldur hlustað á það. Þegar ég nú löngu seinna skoða það sem minni- hluti allsherjarnefndar efri deildar, þau Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Stefán Benediktsson auk mín höfðu um þetta mál að segja er ég svolítið stoltur. Allt sem við sögðum hefur reynst rétt. Með þessu greinarkorni er tekið undir það sjón- armið forseta Bandalags íslenskra listamanna að fleiri fái að njóta góðs af lottóarðinum. Það þarf að endurskoða þetta kerfi frá grunni og það þarf að gera áður en núverandi einkaleyfi rennur út. Tví- mælalaust ber að íhuga að gefa fleiri samtökum möguleika á að starfrækja starfsemi af þessu tagi þar sem ágóðinn færi til mannúðar- og menning- armála. Lottóarðurinn á ekki að fara í að greiða innlend- um eða innfluttum atvinnumönnum í íþróttum ofurlaun. Eða til að fjármagna fyrirhugaðan hót- elrekstur og lóðabrask Ungmennafélags Íslands í miðborg Reykjavíkur eins og frægt er að endem- um. Í tæpan aldarfjórðung hafa þessir þrír aðil- ar skipt með sér lottóarðinum. Nú þarf að hugsa málið upp á nýtt, semja nýjar reglur. ES: Hinn 10. nóvember óskaði greinarhöfundur eftir upplýsingum um rekstrarkostnað Íslenskrar getspár, arð af rekstrinum og skiptingu hans milli eignaraðila síðastliðin fimm ár. Þeim upplýsingum var lofað. Þær hafa ekki borist. Þegar spurt var, þá var hins vegar spurt á móti frá Íslenskri get- spá hvers vegna undirritaður vildi fá þessar upp- lýsingar. Þá spurði undirritaður hvort þetta væru ekki opinberar upplýsingar. Þá var sagt að þetta yrði tekið saman. Það er greinilega mikil vinna og tímafrek. Höfundur er fyrrverandi sendiherra. Lítið eitt um Lottó UMRÆÐAN Stefán Aðalsteinsson skrifar um kjör ríkis- starfsmanna Í Viðskiptablaðinu birtust fyrir nokkru þær fregn- ir að meðallaun starfs- manna hjá ríkinu væru um 530.000 krónur á mán- uði. Einhver mistök urðu við þann útreikning enda hægur vandi að fá réttar upplýsingar sem eru þær að meðalheildarlaun ríkisstarfs- manna eru um 455.000 krónur eða mjög svipuð og á almennum mark- aði skv. grein í Fréttablaðinu 30. nóvember. Í upplýsingum um laun ríkis- starfsmanna eru allir meðtaldir s.s. forsetinn, hæstaréttardómar- ar, læknar og einnig eru þar hin víðfrægu laun forsætisráðherra. Meðaldagvinnulaun hjá félags- mönnum BHM hjá ríkinu voru yfir tímabilið janúar til júní 2009 kr. 374.000 og heildarlaun þar sem við bætist m.a. vaktaálag og yfir- vinna 467.000. Ef litið er til launa- könnunar VR frá í byrjun árs eru laun hópsins „aðrir háskólamennt- aðir sérfræðingar“ fyrir dagvinnu 429.000 og heildarlaun 460.000. Samanburður milli viðskipta- og hagfræðinga hjá ríki og innan VR sýnir að dagvinnulaun hjá rík- inu á sama tímabili eru 420.000 en 484.000 hjá VR og heildar- laun hjá ríki eru 533.000 en 548.000 hjá VR-félög- um. Ef litið er til launa hjá ríki í júní sl. eru þau lægri en þetta meðaltal. Öll umræða um hin háu laun ríkisstarfsmanna er því úr lausu lofti gripin. Ríkisstarfsmenn þekkja launalækkun á eigin skinni. Frá því í septemb- er 2008 og fram til mars 2009 lækkuðu yfirvinnugreiðslur um 23%, akstursgreiðslur voru skornar niður og miklu aðhaldi beitt í launakostnaði sem og í öðrum rekstri. Ekki skal úr því dregið að skera þarf niður kostnað alls staðar hjá ríkinu en bent skal á að af áætluðum útgjöldum rík- isins árið 2010 – að vaxtagjöldum frádregnum – eru laun um fjórð- ungur gjalda. Ef ríkið vill koma út úr þess- ari kreppu með hæft, gott og vel- menntað starfsfólk er frekari skerðing launa ekki leiðin til þess. Þar sem ég þekki best til, í fjár- málaráðuneytinu, félagsmálaráðu- neytinu og hjá Vinnumálastofnun vinnur fólk mikla sjálfboðavinnu. Þar eru margir starfsmenn á föst- um launum sem vinna mikla vinnu án frekari greiðslu og tímakaup þeirra er komið langt undir kaup- taxta. Hjá Alþingi hafa starfsmenn fengið þau skilaboð að það sé æskilegt að þeir vinni ekki eftir miðnætti og ekki á sunnudögum en þeir eru á föstum launum. Það er gott að það er unnin sjálfboða- vinna í þágu þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu en ég fæ ekki séð að Alþingi eða ráðuneyt- in séu í þeim hópi. Höfundur er framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna. Af meintum ofurlaun- um ríkisstarfsmanna EIÐUR GUÐNASON STEFÁN AÐALSTEINSSON Þar sem ég þekki best til, í fjármálaráðuneytinu, fé- lagsmálaráðuneytinu og hjá Vinnumálastofnun vinnur fólk mikla sjálfboðavinnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.