Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 32
2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Nú er fólk að leita eftir innihalds-
ríkri afþreyingu sem hægt er að
upplifa með börnunum í stað þess
að arka um verslunarmiðstöðvarn-
ar,“ segir Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir hjá Landnámssetrinu
í Borgarnesi. Þau hafa tvö undan-
farin ár staðið fyrir fjölskyldu-
vænni jólaskemmtun sem höfð-
ar jafnt til yngstu barnanna og
ömmu og afa. „Við köllum þetta
Uppáhald jólasveinanna og Pönnu-
kakan hennar Grýlu. Við erum
með hádegishlaðborð með þjóð-
legum mat sem er í uppáhaldi hjá
jólasveinunum. Það er matur eins
og bjúgu með rauðkáli, grænum
baunum og uppstúfi, plokkfiskur,
steikt slátur með rófustöppu og
kjötbollur með brúnni sósu og svo
mætti lengi telja. Það er aldrei að
vita nema að hungraðir jólasvein-
ar mæti og ætli að næla sér í eitt-
hvað af sínu í uppáhaldi,“ segir
Sigríður Margrét „Eftir matinn
syngjum við jólalög og dönsum í
kringum jólatréð en þá myndast
ofsalega skemmtileg jólastemn-
ing. Að því loknu kemur snilling-
urinn Bernd Ogrodnik með brúðu-
leikhúsið sitt og sýnir Pönnukakan
hennar Grýlu, en börnin eru oft
stjörf af hrifningu yfir brúðunum
og söngv unum í því. Grýla tekur
upp á því að baka stóra og góða
pönnuköku en kakan vill ekki vera
étin af Grýlu svo hún rúllar undan
henni. Pönnukakan rúllar og rúll-
ar áfram og á leiðinni hittir hún
marga sem vilja fá að bíta í hana
en loksins hittir hún gott fólk en ég
má ekki uppljóstra hvert það er.
Sigríður Margrét segir að enn sé
varla hægt að tala um hefð. „Sumir
hafa komið í hin tvö skiptin og ég
veit að þeir ætla ekki að láta sig
vanta í ár. Börn hafa svo gaman af
því að heyra sömu söguna aftur.
Aðventan er tími hefðanna. Von-
andi verður þetta að skemmtilegri
fjölskylduhefð í framtíðinni,“ segir
hún og bætir við að fólk verði svo
ánægt að hafa drifið sig út úr bæj-
arkliðnum í kyrrð og rökkur sveit-
arinnar. Sýningarnar verða haldn-
ar 13. og 20. desember en nánari
upplýsingar má nálgast á www.
landnam.is. unnur@frettabladid.is
Jólin í Landnámssetrinu
Landnámssetrið í Borgarnesi stendur fyrir skemmtilegri jóladagskrá sem höfðar jafnt til barna og full-
orðinna. Til dæmis er boðið upp á þjóðlegt hádegishlaðborð og brúðuleikrit um Grýlu.
Jólasveinarnir á Landnámssetrinu eru skemmtilegir og hressir.
7. DESEMBER er síðasti skiladagur
fyrir jólapakka sem eiga að fara utan til
Evrópu. www.postur.is
Brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik
fyrir framan brúðuleikhúsið sitt.
M
YN
D
/Ú
R
E
IN
K
A
SA
FN
I
SNILLDARJÓLAGJÖF
HLEÐSLUTÆKI
15% jólaafsláttur
af þessum frábæru tækjunum
12V 3,6A 12V 0,8A
12V 4A
Nýtt