Fréttablaðið - 02.12.2009, Page 40

Fréttablaðið - 02.12.2009, Page 40
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð 11.950 Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, sagði misskiln- ing í gangi um stöðu fyrirtækja á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands á fimmtudag og þvertók fyrir að viðskiptabanki fyrirtækis- ins stýrði rekstrinum. Þvert á móti lýsti hann því yfir að menn skyldu bara bíða, von væri á fréttum af Toyota síðar um daginn. Athygli vakti hins vegar að um leið og fundi var slitið rauk Úlfar á dyr með farsíma fast við eyra. Skilanefnd Landsbankans hafði þá um morgun- inn ákveðið að setja hlutabréf Toyota í sölumeðferð og láta NBI sjá um ferlið til að fá upp í skuldir M a g n ú s a r Kristinssonar, eiganda Toyota á Íslandi, við bankann. Allt í besta lagi? Ein af þéttari og þyngri íslensku hrunabókunum er vafalítið Why Iceland? eftir Ásgeir Jónsson, forstöðumann greiningardeildar Arion banka (áður Kaupþings). Bókin kom út á ensku og hefur bið verið eftir íslenskri útgáfu hennar. Hægara mun sagt en gert að þýða bókina og nauðsynlegt að færa hana fjær bandarískum og öðrum enskumælandi markaðshópi. Ásgeir mun hafa margt á prjónun- um, svo sem bæta við hana köflum. Ætla má að söluvænlegasti kostur- inn sé að höggva í sama knérunn og Ármann Þorvaldsson gerði og fjalla um allt fræga fólkið sem Ásgeir hitti á blómaskeiði Kaupþings. Fáum sögum hefur hins vegar farið b æ ð i a f partístandi Ásgeirs og kynnum hans af frægu fólki. Kaflinn yrði þá í styttra lagi. Slegið um sig er fjöldi krafna sem barst í þrota- bú gamla Landsbankans. Um 800 þeirra hafa verið samþykktar. 5 er meðalfjöldi ferðalaga innanlands sem hver Íslendingur fór í á síðasta ári. 42.000 krónur er upphæðin sem hver Íslendingur mun að meðaltali verja í jólagjafakaup í ár. Markaðsfræðingar segja sumir engu skipta hvað fólk segi um ákveðna hluti, menn eða málefni, umræðan ein sé auglýsing í sjálfu sér. Síðustu mánuði hefur Ísland æ oftar verið á milli tannanna á fólki. Ekki er það sökum fallegs kvenfólks, sterkustu karlmanna eða hreinasta loftsins. Þvert á móti hefur landið komist í umræðuna í tengslum við fjármálakrepp- ur. Þannig var rætt um það um helgina á bresku sjónvarpsstöð- inni BBC um síðustu helgi hvort arabaríkið Dúbaí ætlaði að „… to do an Iceland“. Sögnin vísar að sjálfsögðu til þjóðargjaldþrots. Ritstjórn breska stórblaðsins Guardian hjó í sama knérunn um bága skuldastöðu Grikklands á mánudag. Sumum kann ágætt að vita, að þrátt fyrir allt er Ísland enn í umræðunni. Að gera Ísland

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.