Fréttablaðið - 02.12.2009, Page 46
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
30 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Fljót, ástin mín,
náðu í
verkjatöflur
svo að hitinn
fari úr mér.
Þú ert sorgleg týpa.
Vaknar, eins og venjulega,
í stól og reynir að opna
augun. Af góðri ástæðu.
Og allt sem þú manst frá
gærkvöldinu eru kaldar
konur og kebab. Keba-
binn fylgdi þér heim, ekki
konurnar og hann var
kaldur. Alveg eins og þær.
Þú hlýtur að velta því
fyrir þér af hverju þú
gerir þér þetta, helgi eftir
helgi, viku eftir viku.
Er skepnan
vöknuð?
Lokaðu
þverrif-
unni!!
Ég fékk að
líta aðeins í
kringum mig.
Ég næ ekki
andanum.
Prófaðu að
liggja á
maganum.
Þýðir ekkert,
þetta er enn
þá verra.
Ég hélt það.
Léstu mig gera
þetta án þess
að vita neitt
hvað þú værir
að gera?
Nei, ég bað
um að gera
þetta af því að
ég á bara tvær
myndir eftir.
Hvað ertu
að gera? Rækta
fugl.
PÚFFFFFFFFFFF!!!!!
Jæja, ég
þarf allavega
ekki að ná í
vatnsslöng-
una.
Fátt virðist vinsælla nú um stundir en að vísa í söguna máli sínu til stuðn-
ings. Annar hvor maður virðist með það
á hreinu hvað Jóni Sigurðssyni og Jónasi
Hallgrímssyni hefði fundist um ákveð-
in mál og fyrri tíma menn eru sproksett-
ir af fólki sem telur sig vera með það á
kristaltæru hvað þetta og hitt þýddi þá
og þá. Nokkuð bar á þessu í gær, enda til-
efnið ærið; sjálfur fullveldisdagurinn. Og
ekki var neinn hörgull á þeim sem vísuðu
í fullveldið málstað sínum til framdrátt-
ar.
HÆST bar kannski auglýsingu hvar
verkalýðsfélögin Hlíf og VR, fyrirtæk-
in Ormsson og Olís, Samtök iðnaðarins,
Sölufélag garðyrkjumanna og Sjálf-
stæðisflokkurinn kölluðu á baráttuþrek
og samtakamátt þjóðarinnar. Látum það
vera að fulleldi, ekki fullveldi, þjóðar-
innar hafi verið fagnað í auglýsingunni.
Og látum það líka vera hvað kall-
ar þennan einkennilega samtíning
saman í auglýsingu. Boðskapurinn
er öllu athyglisverðari.
FULLELDISAUGLÝSEND-
URNIR v-lausu töldu nefni-
lega að í gær– og væntan-
lega þá í dag – þurfum við
„á sömu samstöðunni að
halda og forfeður okkar sýndu í upphafi
síðustu aldar“. Þá, sem lesið hafa söguna,
rekur nefnilega í rogastans þegar sú sam-
staða er dásömuð.
FULLVELDIÐ sem náðist 1. desember
1918 var nefnilega fráleitt niðurstaða
glæstrar baráttu samhentrar þjóðar þar
sem allir gengu í takt. Trauðla finnst
mál sem meiri deilur voru um en einmitt
sjálfstæðisbaráttan. Alla 19. öldina var
deilt um stöðu landsins í konungsveldinu
og nægir að nefna tillöguflutning Bene-
dikts Sveinssonar á seinni hluta aldarinn-
ar, en þá flutti hann ár eftir ár tillögu í
stjórnarskrármálinu.
VALTÝSKAN og deilur um heimastjórn
skiptu mönnum í tvær fylkingar í upphafi
aldarinnar og þjóðin var klofin í afstöðu
til uppkastsins. Það var kannski helst
fyrri heimsstyrjöldin sem varð til þess að
menn sáu að úr því sem komið var væri
líklega best að skella á eins og einu full-
veldi. Slík var samstaðan sem forfeður
okkar sýndu og v-leysingjarnir vísa í.
LEGGJUM af þjóðernissinnaða söguskoð-
un um einhuga þjóð í frelsisbaráttu með
eitt markmið í huga; sjálfstæði. Það er
nefnilega ljótt að ljúga og sagan á ekki að
vera gunnfáni mismunandi skoðana.
Að þekkja söguna
10. HVERVINNUR!
VILTU
MIÐA?
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
JÓLAMYNDIN Í ÁR
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
FULLT AF
AUKAVIN
NINGUM
TÖLVULE
IKIR · DVD
MYNDIR
· PEPSI M
AX
OG MARG
T FLEIRA!
SENDU SM
S SKEYTIÐ
ESL ART Á
NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆ
TIR
UNNIÐ MIÐ
A!
FRUMSÝN
D 4. DESE
MBER