Fréttablaðið - 02.12.2009, Page 62
46 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. framagosi, 6. eftir hádegi, 8. skjög-
ur, 9. garðshorn, 11. mun, 12. kraum,
14. yfirstéttar, 16. rás, 17. skref, 18.
kvabb, 20. sjó, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. viðartegund, 3. fyrir hönd, 4.
vandræði, 5. svelg, 7. holdlaus, 10.
hestaskítur, 13. kóf, 15. tísku, 16.
espa, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. uppi, 6. eh, 8. rið, 9. kot,
11. ku, 12. krakk, 14. aðals, 16. æð,
17. fet, 18. suð, 20. sæ, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. tekk, 3. pr, 4. pikkles, 5.
iðu, 7. horaður, 10. tað, 13. kaf, 15.
stæl, 16. æsa, 19. ðð.
„Þegar ég er í myndatökum þá
er það nýja remix-platan með
Steed Lord og svo Gus Gus. Þeg-
ar ég er heima að vinna er það
Fever ray, The xx, Rachmaninov
og Daníel Bjarnason.“
Saga Sigurðardóttir ljósmyndari.
„Þetta er erótískt vetrarljóð sem
gerist í burstabæ og er ort út frá
sjónarhóli heimasætunnar sem
sér krókinn hans Ketkróks síga
niður úr reykháfnum að hlóðunum
og hugsar sér gott til glóðarinn-
ar. Hún ákveður að grípa krókinn
og festir hann næst við sjálfa sig,“
útskýrir rithöfundurinn Gerður
Kristný. Hún orti kvæði sem fylgir
jólaóróa sem seldur er til styrktar
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra,
en óróann hannaði Hrafnkell Birg-
isson.
Jólasveinninn sem Gerður Kristný og Hrafn-
kell túlka er enginn annar en Ketkrókur og seg-
ist Gerður Kristný hafa ort ljóðið um hásum-
ar. Aðspurð segir hún að henni hafi ekki reynst
erfitt að komast í jólaskap um mitt sumar. „Það
eru alltaf jólin þannig mér þótti ekki erfitt að
koma mér í rétta andann. Erfiðast
var fyrir enska þýðandann að þýða
ljóðið yfir á sína tungu því fyrir-
bærið niðursetningur er ekki til á
enskri tungu og það sama má segja
um orðin klukka og kot, þetta eru
allt ákaflega íslensk heiti. Ég ræddi
þetta meðal annars á snjáldursíðu
minni og frændi minn stakk upp á
því að niðursetningur yrði þýtt sem
„downloader“,“ segir hún og hlær.
En ljóðið fylgir gripnum bæði á
ensku og íslensku.
Þetta er ekki fyrsta jólaljóðið sem
Gerður Kristný yrkir því í ljóðabókinni Högg-
stað, sem kom út í hittifyrra, er einnig að finna
ljóð um jólin.
Jólaóróinn verður seldur í verslunum Epal,
Kraum, Casa, auk annarra og verður fáanlegur
frá 5. desember til 19. desember. - sm
Erótískt vetrarljóð í burstabæ
EKKI ERFITT AÐ FINNA JÓLAANDANN Gerður Kristný
orti kvæði sem fylgir jólaóróa Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þá berst brölt af sperru,
spyrnt er í háfinn.
Krókur sígur
niður úr kófinu,
glampandi öngull
í myrkurhyl.
Sterklegar greipar
ljúkast um færið.
KETKRÓKUR
KEMST Í FEITT
„Við vorum mjög góð við hann en
það endaði með því að við urðum að
láta svæfa greyið,“ segir tónlistar-
maðurinn Gylfi Ægisson.
Hann og Jóhanna kærastan hans
hafa að undanförnu misst tvo kett-
linga sem voru báðir nefndir í höf-
uðið á Sólmundi Hólm Sólmund-
arsyni, ævisöguritara Gylfa. Sá
síðari, Sólmundur Hólm II. var
svæfður vegna þess að hann var
sérlega geðillur og klóraði fólk upp
úr þurru en sá fyrri, Sólmundur
Hólm Jr., varð fyrir bíl í Keflavík
þar sem Gylfi á íbúð.
„Jóhönnu langaði í kisu og vant-
aði nafn á hana. Þá segi ég við
hana: „Af hverju gerirðu ekki eins
og indíánarnir og lítur út um glugg-
ann og nefnir köttinn í höfuðið á því
fyrsta sem þú sérð?““ segir Gylfi.
„Þannig að hún leit út um eldhús-
gluggann og það fyrsta sem hún
sá var sólin. En af því að þetta var
strákur gat hún ekki nefnt hann
Sól. Þá datt henni í hug, af því að
Sóli var að skrifa bókina, að skíra
hann Sóla. Þar með varð þetta Sól-
mundur Hólm Jr.“
Gylfi og Jóhanna létu ekki deig-
an síga þrátt fyrir dauða kattanna
tveggja því sá þriðji, Sólmundur
Hólm III. er nú kominn á heimilið
og er ljúfur sem lamb.
Ævisöguritarinn Sólmundur
Hólm hefur þó enn ekki hitt nafna
sinn, ekki frekar en hina tvo. Spil-
ar það inn í að hann er með kattaof-
næmi og reynir hvað hann getur að
halda sig fjarri kattarkyninu. Gylfi
segir það engu máli skipta: „Hann
skal sko fá að halda á þessum, hann
er svo góður.“ - fb
Varð að svæfa Sólmund Hólm
GYLFI OG SÓLMUNDUR HÓLM Gylfi
Ægisson ásamt ævisöguritara sínum,
Sólmundi Hólm Sólmundarsyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leiðir Bubba Morthens og Hafdís-
ar Huldar lágu saman á tónleikum
Fuglabúrsins á Rósenberg í haust.
Þótt ólík séu tókust með þeim góð
kynni. Eins og kunnugt er – og sást
í Fangavaktinni – heldur Bubbi
Morthens árlega tónleika á Litla-
Hrauni á aðfangadag. Næst ætlar
hann að taka Hafdísi
með sér. Fangarnir
verða eflaust í
góðu stuði fyrir
krúttlegt popp
Hafdísar Huldar,
enda hefur það
skorað hátt á vin-
sældalistunum í allt
haust.
Og meira tengt Fangavaktinni, því
Kenneth Máni, uppáhaldsfangi
íslenskra sjónvarpsáhorfenda, hefur
öðlast sjálfstætt líf. Þessu hugar-
fóstri Björns Thors var flogið út til
Kaupmannahafnar þar sem hann
heimsótti birgðastöð UNICEF. Að
sjálfsögðu þekktu hinir fjölmörgu
Íslendingar sem áttu leið um Kast-
rup Kenneth um leið og
þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Björn
lætur persónu öðlast
eigið líf. Hann var jú
einn af fylgdarsvein-
um Silvíu Nætur í
Eurovision-
ævintýrinu,
sællar
minning-
ar.
Aðdáendur Loga Geirssonar,
handboltamanns með Lemgo,
supu hveljur þegar þeir hugðust
leita frétta af honum á hinni
sívinsælu bloggsíðu hans því þýsk
viðvörunarorð birtust efst í horninu
þar sem lesendum var tilkynnt um
að þessi síða lægi niðri.
Logi hefur engu síður
lofað aðdáendum
sínum að bloggið
verði komið fljótlega
aftur í loftið þótt
ekki liggi fyrir
nákvæm-
lega hve-
nær það
verði.
- drg/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sjónvarpsþáttaröð um ólíkinda-
tólið og sjónvarpsmanninn Frí-
mann Gunnarsson hefur verið
seld til danska ríkissjónvarpsins
og verður væntanlega sýnd á DR
2 þegar fram líða stundir. Þetta
staðfesti skapari Frímanns, Gunn-
ar Hansson, í samtali við Frétta-
blaðið. Gunnar segir aðrar stöðv-
ar á Norðurlöndunum fylgjast
grannt með gangi mála, þær séu í
það minnsta spenntar fyrir þessu
sérstaka verkefni. „Þetta lítur allt
saman vel út og við höfum heyrt af
því að þeim þyki þetta vera mjög
spennandi,“ segir Gunnar.
Það sem gerir þetta enn merki-
legra er að þáttaröðin er ekki tilbú-
in sem gefur kannski ágætis mynd
af því hversu spennandi þetta
verkefni er. Gunnar og leikstjóri
þáttanna, Ragnar Hansson, heim-
sóttu til að mynda Frank Hvam í
Danmörku fyrir tveimur vikum en
þetta var í annað sinn sem svona
„undirbúningsfundur“ er haldinn.
Fyrsti fundurinn var haldinn í maí.
Eiginlegar tökur á þeim kafla hefj-
ast nefnilega ekki fyrr en í janúar.
„Við vildum ná honum á sviði með
áhorfendum í sal og fórum að sjá
alveg frábæra uppistandssýningu í
Hortense á Jótlandi,“ segir Gunnar
og bætir því við að hann hafi hleg-
ið sig máttlausan yfir inngangi að
flestum bröndurum Franks. „En
svo kom „punch-línan“ og allir
hlógu nema ég. Mjög sérstakt,“
segir Gunnar og veit ekki alveg
hvernig hann á lýsa þessari til-
finningu. Hann var þó ákaflega
ánægður með þennan fund. „Við
vorum svona aðeins að þreifa á
hvor öðrum. Því þótt þetta sé alveg
fyrirfram ákveðið þá er þetta líka
spuni og við vorum svona aðeins
að fikra okkur áfram,“ útskýrir
Gunnar sem á varla nógu sterk orð
til að lýsa því hversu mikill húmor-
isti Frank sé. „Hann er bara algjör
snillingur.“
Og Gunnar segist hafa áttað sig
á því hversu stór stjarna Frank er
í Danmörku þegar þeir fóru á smá
pöbbarölt eftir sýninguna. „Fólk
sneri sig næstum úr hálsliðnum
þegar hann gekk inn og þótt þetta
hafi verið stutt heimsókn þá var
hún alveg skelfilega skemmtileg.“
freyrgigja@frettabladid.is
GUNNAR HANSSON: Á PÖBBARÖLTI MEÐ FRANK HVAM
FRÍMANN SELDUR TIL DR 2
SPÉFUGLAR Frímann Gunnarsson og Frank Hvam eru skemmtilegt par. Gunnar Hansson, skapari Frímanns, lýsir Frank sem
miklum snillingi. Gunnar heimsótti Frank fyrir skemmstu, sá uppistandssýninguna hans á Jótlandi og fór á smá pöbbarölt í Hor-
tense.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Humar 2.000 kr/kg
Skatan er komin!
Vestfi rsk Hnoðmör
Stór, pilluð Eldeyjar-rækja