Veðrið - 01.04.1977, Blaðsíða 11
Norðmenn hófu tilraunir með veðurathugunardufl (Met-dufl) árið 1960 og
liafa notað athuganir frá þeim við gerð veðurspáa frá 1967 með góðum árangri.
Þeir hafa ennfremur gert tilraunir með aðrar gerðir sjálfvirkra dufla, t. d. veður-
og sjómælingadufla (BS-dufl), sem auk svipaðs útbúnaðar og Met-duflið liefur
einnig fest í legufæri tæki til mælinga á sjávarseltu og straumhraða. Dufl þessi
hala mun meiri sendihraða og senda auk þess 36 skeytaorð, þannig að það þarf
talsvert flóknari sjálfvirkan tækjabúnað í landi til að taka á móti skeytum þeirra.
Auk Jressara tveggja fyrrnefndu dufla, Jrá liafa Norðmenn gert tilraunir með
litlar sjálfvirkar stöðvar, eins konar perulaga hylki, en þau hafa aðallega verið
notuð á rekísnum á Svalbarðasvæðinu. Þeim er jafnan varpað úr flugvélum úr
lítilli hæð. Móttaka skeyta frá þeim er um gervitungl. Unnt er að fá frá Jteim
allt að 12 athuganir á sólarhring og má staðsetja duflin með 3—5 km nákvæmni
út frá liljóðmerkjum þeirra, og þar með er liægt að fylgjast með stefnu og hraða
rekíssins. Dufl Jjessi senda einnig upplýsingar um loftþrýsting og lofthita. Þau
geta flotið í sjó og gefa jjá upplýsingar um hafstrauma og vinda.
Þrátt fyrir Jiað, að veðurduflið sendir nokkuð takmarkaðar upplýsingar um
veðurjjætti, Jtá verður að telja Jtær mjög svo nytsantar við gerð veðurspáa.
Fyrir nokkrum árum var veðurskipum fækkað nokkuð á Norður-Atlantshafi,
t. d. hurfu veðurskipin Alfa og Bravo, en Jtau máttu heita eins konar framverðir
okkar gegn óveðrum, en oltast berast Jtau til íslands úr suðvestri. Segja má að
duflið geti að sumu leyti tekið við hlutverki þessarra veðurskipa.
Æskilegt væri að liafa a. m. k. 3 dufl starfandi samtímis umhverfis landið, t. d.
eitt á Grænlandssundi, annað fyrir Norðausturlandi og það Jtriðja á núverandi
stað. Þar sem duflum er mikil hætta búin vegna hafiss á tveimur fyrrnefndu
stöðunum, yrði óheppilegt að starfrækja Jtau Jrar allt árið, en ef til vill mætti
koma þeim J>ar fyrir þá mánuði, sem sízt væri von von ísa, t. d. júlí til nóvem-
ber.
ÁHUGAMENN UM VEÐURATHUGANIR
Félagi fslenskra veðurfræðinga barst fyrir skömmu bréf frá ungum Belga, áhuga-
manni um veðurathuganir. Hann hefur stundað veðurathuganir síðan í janúar
1974, í fyrstu með frumstæðum áhöldum, en hefur síðan komið sér upp fullkomn-
um búnaði. Hann skiptist á athugunum við áhugamenn í Þýskalandi, Hollandi,
Danmörku og Svíjtjóð, og bréfið skrifar hann í þeirri von að einhver fslending-
ur vilji taka þátt í að mynda veðurstöðvanet áhugamanna í Evrópu. Erindi hans
er hér með komið á framfæri við lesendur Veðursins, og þeim Itent á að skrifa til:
Centre d’Observ. Amateur
D. Janssens
Chaussée de Waore, 1549
1160 Bruxelles
Belgique
VEÐRIÐ — 1 ]