Fréttablaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 5. desember 2009 3
Gömlu hrekkjóttu jólasveinarnir
heimsækja Árbæjarsafn á morg-
un en auk þess verður margt
skemmtilegt í boði á jólasýningu
Árbæjarsafns.
Nú er tækifæri til þess að sýna
börnunum hvernig jólaundirbún-
ingurinn og jólin voru í gamla
daga en hin árlega jólasýning
Árbæjarsafns hefst nú á sunnudag-
inn. „Á jólasýningunni gefst fólki
færi á að rölta á milli húsanna á
safninu og fylgjast með undir-
búningi jólanna eins og hann var
í gamla daga,“ segir Guðbrand-
ur Benediktsson, sagnfræðingur
á Árbæjarsafni. „Margt mun án
efa rifja upp góðar minningar hjá
eldri kynslóðinni og vekja athygli
þeirra yngri eins og matargerð og
matarhefðir. Þá verður handverks-
fólk við vinnu, svo sem við útskurð
á jólaskrauti, kertasteypu og gerð
jólakorta. Loks má nefna sérsýn-
inguna „Af grænni grein“ þar sem
sjá má jólaskraut frá um 1950,“
segir Guðbrandur.
En gestir fá ekki bara að horfa,
þeir geta líka tekið þátt. „Gest-
um jólasýningarinnar gefst kost-
ur á að föndra en umsjón með því
hefur Krambúðin sem verður að
sjálfssögðu opin og í Dillonshúsi
verða til sölu ljúffengar veiting-
ar og meðlæti.Í gömlu torfkirkj-
unni verður guðsþjónusta klukk-
an 14 og jólatrésskemmtun verður
síðan á torginu klukkan 15, þar
sem gengið verður í kringum jóla-
tréð, dansað og sungin jólalög. Þá
eru ónefndir gestirnir sem börnin
hlakka mörg hver mest til að hitta
en það eru gömlu jólasveinarnir.
Þeir eru pínulítið hrekkjóttir en
samt góðir.“
Jólasýningar Árbæjarsafns
verða sunnudagana 6., 13. og 20.
desember. - uhj
Jólin í Árbæjarsafni
Kertagerð er eitt af því sem sýnt er á jólasýningu Árbæjarsafnsins en einnig er þar
matargerð og föndur ásamt jólaskemmtun og guðþjónustu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Með tilkomu stafrænna myndavéla varð nokk-
uð tilgangslaust að framkalla myndir
dýrum dómum eins og í gamla daga fyrst
hægt var að skoða þær í tölvu. Óneitan-
lega er tölvuskjár ekki jafn rómantískur
og útprentuð mynd og myndamappan á
harða disknum ekki jafn áþreifanleg og sú
gamla uppi í hillu. Ljósmynda- og prent-
fyrirtæki hafa þó fundið tóm í þessum
bransa sem þurfti greinilega að fylla því
margt annað stendur nú til boða en hefð-
bundin framköllun. Vert er að minnast á
möguleikana.
Maður getur búið til sína eigin ljós-
myndabók. Fyrirtæki eins og Oddi,
Hans-Petersen, Samskipti og fleiri
bjóða upp á slíka þjónustu á heimasíð-
um sínum. Uppsetning ljósmyndabókar er
á flestra færi sem hafa einhvern tíma kom-
ist í kast við tölvu. Í raun er þetta eins og að
raða myndum í gamaldags ljósmyndamöppu
nema allt fer þetta fram í rafreikninum. Svo
er bókin prentuð út og verður hún ekkert síðri
að gæðum en gengur og gerist með ljósmynda-
bækur almennt.
Á sama hátt getur maður hannað sitt eigið
tækifæriskort til að senda ástvinum. Á sér-
sniðið dagatal má velja eina mynd fyrir hvern
mánuð ársins og hengja upp á vegg. Og sé ein-
hver orðinn leiður á veggspjöldum af rokk-
stjörnum er hægt að búa til sitt eigið og gera
rokkstjörnu úr mömmu sinni. Virkilega veg-
legt væri líka að prenta afa sinn á striga og hengja
ættföðurinn upp á vegg um ókomin ár.
Eru nú upptaldir vænlegustu kostirnir en
það má halda áfram að telja upp fyndna
hluti sem hægt er að prenta á eins og spila-
stokka, segulmottur, músamottur, púsl og
bolla. Ljósmyndatómið sem fylltist sýnir
glögglega að tæknin leysir ekki aðeins af
hólmi gamlar hefðir heldur skapar um leið
nýjar. niels@frettabladid.is
Myndaalbúm eru
yfirleitt vegleg og
með harðspjöldum.
Ljósmyndir öðlast nýtt
líf utan tölvunnar
Margt er hægt að gera við stafrænar ljósmyndir svo hægt sé að þreifa á þeim og horfa. Útprentun er
ekki dauð úr öllum æðum þótt tölvuskjáir séu nú vinsælustu myndamöppur samtímans.
Persónuleg
dagatöl eru
skemmtilegar
jólagjafir.
Ljósmynda-
bók er
nýlegur
kostur sem
vert er að
kynna
sér.
Þeir sem skrá sig á síðuna
facebook.com/Drangey.Napoli
og verða í tengslaneti okkar
geta dottið í lukkupottinn.
Heppinn vinur gæti hreppt
gjafabréf fyrir kr. 40.000.
Dregið verður laugardagskvöld 5. des.
Opið til kl. 10 í kvöld
Jól í Napoli
Fallegir skór og töskur frá
Ítölsk gæði
Smáralind - 557 1414