Fréttablaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 98

Fréttablaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 98
66 5. desember 2009 LAUGARDAGUR Jólin koma í Sæborg Jólin nálgast óðfluga og krakkarnir í leikskólanum Sæborg á Ægisíðunni eru farnir að hlakka til. Föndurstundirnar bera keim af komandi hátíð, krakkarnir búa til skreytingar og gjafir handa mömmu og pabba. Krakkarnir spá í jólasveininn, Grýlu og svo auðvitað gjafirnar. Dr. Gunni og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari litu við. VATNSLITAÐ Í MÁNAKOTI Þuríður Þöll gerir brúnan kassa en Eva María snjókarl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA RIDDARA-PLAYMO Gylfi veit hvað hann vill. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GRÝLA EÐA LÍNA LANGSOKKUR? Brynja Karítas með ljómandi fallega klippimynd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EKKERT HRÆDD VIÐ GRÝLU Jón Kristján og Sigríður teikna og teikna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EKKERT JÓLA JÓLA HÉR Sólarkots-strákarnir í tónmennt vilja bara nýbylgjurokk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Brynja Karítas, Jón Kristján og Sigríður eru að teikna á næst elstu deildinni, Sólarkoti. „Mig langar helst í rugguhest til að rugga upp á,“ segir Jón Kristán, fjögurra ára. Hann segist vera að teikna Spiderman með jólasveinahúfu. Eða engil. „Ég er búinn að velja risaeðluvélmenni handa mömmu minni,“ segir hann. „Mamma mín heitir Elín. Ég á líka bróðir sem heitir Ísak.“ Ertu búinn að sjá einhverja jólasveina í ár? „Nei.“ Hvar heldurðu að þeir séu? „Upp í fjöllum.“ Sigríður gefur ekkert uppi um það hvað henni langar í jóla- gjöf en Brynju langar „bara í allskonar.“ Hvað þá helst? „Í bók.“ Hvernig bók? „Um dýrin.“ Ert þú búinn að sjá einhvern jólasvein? „Já. Á ég að segja þér hvern ég hitti fyrst?“ Já, endilega. „Ég sá Stekkjastaur.“ Varstu nokkuð hrædd við hann? „Nei. Ég er ekki heldur hrædd við Grýlu heldur. Hún kemur aldrei í bæinn.“ „Nei, hún kemur aldrei í bæinn,“ staðfestir Jón Kristján. „Mamma mín lesti um hana í jólabók sem ég fékk á jólasafn- inu um alla jólasveinana. Grýla kemur aldrei í bæinn. Það stendur. Og hún leyfir jólasveinunum aldrei að fara út nema á jólunum. Þá koma þeir til krakkanna.“ Tónmenntakennarinn Anik Todd er með gríðarlega töffara úr Sólarkoti í tíma. Það er þó enginn jólahugur kominn í mannskapinn ennþá og ekkert jólagutl sem verið er að syngja inn á forláta fartölvu. Nei, hér er það nýbylgjurokkið sem ræður ríkjum og strák- arnir eru að syngja inn lagið Cars eftir hinn glerharða kuldarokkara Gary Numan. „Here in my car / I feel safest of all / I can lock all my doors / It’s the only way to live / In cars,“ syngja strákarnir á ensku eins og ekkert sé sjálfsagðara. Þeir stilla sér upp í rokkaragír en svo mega þeir ekki vera að því lengur að blanda geði við blaða- snápa. Rokkið gengur fyrir. Eva María á Mánakoti er að vatnslita snjókarl. Er hún búin að ákveða hvað hún vill í jólagjöf? „Bókina um Lubba. Það er búið að vera að lesa hana hér.“ Þuríður Þöll er hins vegar að vatnslita brúnan pappakassa og gefur ekkert uppi, hvorki um það hvað er innan í brúna kass- anum, né hvað henni langar helst í í jólagjöf. Gylfi í Mánakoti er að teikna og klippa út jólamyndir. Er hann farinn að hlakka til jólanna? „Já. Það er kominn desember.“ Ertu búinn að ákveða hvað þú vilt fá í jólagjöf? „Já, Playmo. Riddara-playmo.“ Þú ert með jólasveinahúfu – ert þú nokkuð jólasveinn? „Ne-hei, þetta er nú bara jólasveinahúfa. Ég er enginn jólasveinn!“ GRÝLA KEMUR ALDREI Í BÆINN GARY NUMAN Á SÓLARKOTI ÞETTA ER NÚ BARA JÓLASVEINAHÚFA PAPPAKASSI OG SNJÓKARL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.