Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 86

Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 86
10 matur Unnur Dóra Einarsdóttir fór ásamt vin- konum sínum úr flóknum konfektupp- skriftum í einfaldari. „Við vinkonurnar erum í sauma- klúbb og á hverju ári höldum við jólasaumaklúbb þar sem við búum til konfekt, skiptumst á pökkum og fáum okkur eitthvað gott að borða. Þetta eru okkar litlu-jól. Við byrj- uðum á því að búa til konfekt eftir flóknum uppskriftum í anda Moz- art-kúlna, en það gekk illa,“ segir Unnur Dóra og hlær. „Við vorum farnar að reyta hár okkar því ekk- ert gekk upp og konfektið ekkert í líkingu við fallegu myndirnar sem fylgdu uppskriftunum. Þetta voru oft langir og strangir vinnudagar og jólaandinn sveif ekki beinlínis yfir vötnum. Við ákváðum því að einfalda konfektgerðina og njóta samvistanna betur við hver aðra,“ segir Unnur Dóra. „Konfektgerð- in er nú ekki bara auðveldari held- ur er líka miklu skemmtilegra að gera það og litlu-jólin ánægjulegri og afslappaðri en á Mozart-tíma- bilinu! Mér finnst konfektið heldur ekkert síðra á bragðið.“ Það finnst börnum Unnar Dóru ekki heldur. Þau Einar Freyr, 10 ára, Arna Ýr, 7 ára og Þórður Andri, 2 ára, gátu varla beðið eftir að smakka á konfektinu. „Jólastemn- ing kemur oft með börnunum, sem eru farin að hlakka til jólanna, enda taka þau virkan þátt í undirbún- ingnum á heimilinu,“ segir mamm- an en hann byrjar um mánaðamótin nóvember/desember. En hvað með jólasveinana, gefa þeir konfekt í skóinn? „Nei, þeir gera nú ekki mikið af því þótt krökkunum þyki konfektið gott,“ segir Unnur Dóra og hlær. „En ef til vill fær hvert barn að setja smá bita í gluggann sinn, svona til þess að múta honum.“ - uhj Einfalt og gott Unnur Dóra ásamt börnum sínum en öll njóta þau aðventunnar og það sem hún hefur upp á að bjóða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÖKKT SÚKKULAÐIKON- FEKT með hnetum og sultuðum engifer dökkt súkkulaði blanda af ósöltuðum hnet- um, saxað missmátt sultaður engifer, saxaður mjög smátt örlítið af salti Bræðið gott, dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði. Á meðan súkk- ulaðið bráðnar undir- búið það sem fara á í það. Brjótið hnetublönduna mis smátt og saxið sultaðan engifer mjög smátt. Þegar súkkul- aðið er alveg bráðið hellið því þá á smjörpappír. Gott er að strá örlitlu af sjávarsalti yfir og svo er hnetunum og engi- ferinu dreift yfir súkkulaðið. Unni Dóru finnst bæði fallegra og betra að hafa súkkulaðið ekki of þunnt og svo meira af góðgæti en minna. Setjið konfektið í ísskáp eða frysti í smástund og njótið svo kræs- inganna. DÖKKT SÚKKULAÐIKON- FEKT með graskers fræjum og heslihnetum dökkt súkkulaði heslihnetur graskersfræ örlítið af salti Sama aðferð og að ofan. Unnur Dóra mælir með því að fólk láti hugmyndaflugið ráða og noti til dæmis raspaðan appelsínubörk, rúsínur, fræ eða jafnvel smátt skorið chilli til að fá hita í kroppinn. Þá bendir hún á að þetta geti verið skemmtileg lítil tækifærisgjöf sem maður getur pakkað í sellófon eða smjör pappír og skellt fallegri slaufu á og glatt einhvern sem manni þykir vænt um. KONFEKT AÐ HÆTTI UNNAR DÓRU Fljótlega og einfalda konfektið. Konfektið hentar vel í tækifærisgjöf að sögn Unnar Dóru. Því má til að mynda pakka inn í sellofón og skella á slaufu. Nammi namm! Sítrónufrómas er frábær eftirrétt- ur með frísklegu bragði. Gerð- ur á sama hátt og aðrir frómasar en rifinn sítrónubörkur og safi notað- ir sem bragðefni. Þeir sem kaupa sítr- ónur mörgum dögum fyrir notkun þeirra ættu að pakka þeim inn í álpappír og koma þeim fyrir í ís- skápnum svo þær haldist lengur ferskar og safaríkar. Það á þó aðeins við um heilar sítrónur en ekki skornar því safinn úr þeim getur leyst upp álþynnuna. Hið sama gildir um skorna tómata og rauðrófur. FRÓMAS FRÁBÆR EFTIRRÉTTUR Unnur Dóra Einarsdóttir hefur fyrir venju að útbúa konfekt ásamt vinkonum sínum fyrir jól. Einfaldleikinn er þar hafður að leiðarljósi og útkoman bæði falleg og góð. Ómótstæðilega góð! Grímur kokkur mælir með: Gott er að bæta út í steiktum humarhölum eftir að búið er að hita súpuna upp. Gott ráð til að gera góða súpu enn betri. 500 ml. Gríms humarsúpa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.