Fréttablaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 60
4 matur
Í E L D H Ú S K R Ó K N U M
FAGURSKREYTT KÖKUBOX
eru órjúfanlegur hluti af jól-
unum. Börnin horfa hug-
fangin á myndirnar og láta
sig dreyma um innihald-
ið. Stundum er þeim
leyft að lauma hendinni
ofan í og fá sér lúku af
góðgæti áður en jólin
koma. Í Duka fást þrjú
misstór box skreytt snjó-
flyksum á 4.950 krónur.
ÞESSI SILÍKONMÓT eru sérstök fyrir þær sakir
að þau eru gerð eftir tvö hundruð ára gömlum
koparmótum frá tímum Ernests Augustus Hann-
over konungs. Með þeim er hægt að búa til kon-
unglega jólaköku,
nú eða jólaís.
Tvær gerðir
fást í Bús-
áhöldum í
Kringlunni
og kosta
báðar 2.495
krónur.
DESERTSKÁLAR
má vitanlega
nota undir ís og
aðra eftirrétti en
þær geta allt eins
nýst sem nammi,
hnetu- og konfekt-
skálar og þannig verið
hið fínasta punt. Duka,
verð 3.600 krónur.
Hún nefnist Íslenskur uppá-haldsmatur en auk upp-skrifta, prýða hana myndir
frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
„Reyndar kom hugmyndin að bók-
inni til vegna þess að andrúms-
loftið í þessum gömlu ljósmyndum
heillaði mig og mig langaði að koma
þeim á framfæri,“ segir Guðleif
Fríður Sigurjónsdóttir, sem kveðst
ekki vera nein listakona í eldhús-
inu. „Uppskriftirnar eru með blárri
handskrift á línustrikuðum blað-
síðum og er ljósmynd við hverja en
eiginmaðurinn Ólafur Ólafsson á
heiðurinn að umbrotinu.“
Í bókinni eru meðal annars upp-
skriftir að fiskibollum, pönnukök-
um og laufabrauði. „Hún er gefin
Skipar heiðursess
Guðleif vann lengi á bókasafni og þegar
hún hætti ákvað hún að gefa út bók!
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
250 g harðar makka-
rónukökur (einnig
hægt að nota mjúkar
makkarónukökur eða
ladyfingers)
2 epli
125 g döðlur
100 g dökkt suðu-
súkkulaði
jarðarber
vínber
bláber
hindber
Myljið makkarónurnar
með kökukefli, skerið
eplið í litla bita, sem
og döðlur og súkku-
laði og jafnið öllu vel
saman. Ekki er verra
að vökva blönduna
aðeins með líkjör eða
góðum appelsínusafa.
Þessi blanda er notuð
til þess að þekja botn
á grunnu fati sem þolir
frost.
Því næst er berjun-
um raðað yfir og er
fallegt að raða saman
steinlausum vínberjum
sem búið er að kljúfa í
tvennt ásamt jarðar-
berjum, bláberjum og
hindberjum. Athugið
að berin eiga að þekja
alveg botnlagið.
Þegar kakan er tilbú-
in er hún sett í frysti
þar sem hægt er að
geyma hana í nokkrar
vikur. Hún er tekin úr
frystinum um það
bil tveimur tímum
áður en hún er
borin fram.
Þegar frostið er farið
úr kökunni og aðeins
þunnt hvítt frostlag
þekur hana þá er hún
tilbúin og mjög falleg.
Kakan er borin fram
með þeyttum rjóma
eða vanilluís.
ÁVAXTAKAKA AÐ HÆTTI GUÐLEIFAR
út á íslensku, ensku, dönsku og svo
á þýsku en Coletta Bürling sá um
þýsku þýðinguna,“ segir Guðleif,
en þau Ólafur hafa gert allt sjálf
frá upphafi til enda. „Prentvélin er
í stofunni en við prentum eftir eft-
irspurn. Ég veit samt ekki hvort ég
muni koma jólatrénu fyrir en það
lýtur þá í lægra haldi fyrir prent-
vélinni og ég skreyti hana bara
með nokkrum kúlum,“ segir hún
hlæjandi. Ávaxtakakan sem Guð-
leif gefur uppskrift að er í bók-
inni. „Ég fékk hana hjá vinkonu
minni fyrir tuttugu árum, sem bjó
kökuna til handa frænku sinni sem
átti engan bakaraofn, en það er nóg
að setja hana í frost. Ég hef kökuna
á aðfangadagskvöld en bý hana til í
nóvember. Hún hefur alltaf skipað
heiðurssess hér á heimilinu.“ - uhj
Hún er gómsæt og holl ávaxtatertan hennar
Guðleifar og mjög einfalt að gera hana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
E
Þegar Guðleif Sigurjónsdóttir lauk störfum á bókasafninu í Kvennaskólanum í vor,
settist hún aldeilis ekki í helgan stein heldur ákvað að gefa út matreiðslubók.
S N E R T I N G
„Við erum í sífellu að snerta hluti sem á vegi okkar verða.
Manneskjan skilur eftir sig slóð af fingraförum í gegnum lífið.
Við snertum fólk og það okkur.
Snerting er notuð í lækninga- og líknarskyni.
Við tökum upp hluti, réttum þá öðrum, búum til hluti,
breytum hlutum.
Immanuel Kant sagði að hendurnar væru
hinn ytri heili mannsins.“
Hre inn Fr ið f innsson
Sölut ímabi l 5. – 19. desember
Söluaðilar:
Epal - Skeifunni og Leifsstöð · Kokka - Laugavegi
Kúnígúnd - Kringlunni · Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind · Hafnarborg - Hafnarfirði
Blóma - og gjafabúðin - Sauðárkróki
Blómaturninn - Ísafirði · Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum · Valrós - Akureyri
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þeirra þágu.
Útgefandi er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Auglýsingasími
– Mest lesið