Fréttablaðið - 05.12.2009, Qupperneq 66
5. desember 2009 LAUGARDAGUR4
Ágústa Dröfn Sigmarsdóttir
geislafræðingur byrjar að hlakka
til jólanna strax í lok sumars og
er ávallt búin að kaupa allar jóla-
gjafirnar fyrir fyrsta desember.
Desembermánuði eyðir hún svo í
að baka, skreyta og njóta aðvent-
unnar með eiginmanni sínum og
börnum. Beðin um að benda á jóla-
skraut í uppáhaldi nefnir hún hvíta
fjaðurengla sem hún bjó til ásamt
öðrum foreldrum barna á Waldorf-
leikskólanum Sólstöfum fyrir jóla-
basar leikskólans í fyrra. „Þeir eru
bæði ódýrir og einfaldir að gerð
en vekja mikla lukku hjá börnum
jafnt sem fullorðnum. Silfruðu
girni er vafið utan um endann á
hvítri fjöður, lím sett á endann og
girnið þrætt í gegnum trékúlu. Á
hana er síðan festur annað hvort
gylltur eða silfraður geislabaug-
ur,“ lýsir Ágústa. Englana heng-
ir hún í ljósakrónuna sem trón-
ir yfir borðstofuborðinu og horfa
börnin hugfangin á þá bærast til
og frá. Hún segir einnig fallegt að
hengja þá í kórulus-grein eins og
sést í stofuglugganum en þær fást
í flestöllum föndurverslunum.
Ágústa heldur nú jólin heima
með litlu fjölskyldunni sinni annað
árið í röð en áður varði hún þeim
í foreldrahúsum. „Þetta er nú ekki
komið í mjög fastar skorður hjá
okkur en við erum hægt og bít-
andi að skapa okkar eigin hefðir.“
Ágústa sér um að skreyta matar-
borðið og að þessu sinni valdi hún
fjólubláar tauservíettur með silki-
böndum og fjólublá kerti í stíl. „Ég
var líka búin að dreifa silfurkúl-
um yfir borðið,“ segir Ágústa sem
skreytti borðið kvöldið áður en
hún átti von á ljósmyndaranum í
hús. Þær eru þó hvergi sjáanleg-
ar. „Skýringin á því er sú að leik-
skólaprinsinn á heimilinu vaknaði
á undan mér morguninn eftir og
dundaði sér við að tína kúlurnar
af borðinu og hengja þær á dótið
sitt inni í herberginu sínu. Ég átt-
aði mig ekki á því fyrr en eftir að
ljósmyndarinn var farinn enda enn
í hálfgerðri brjóstaþoku,“ segir
Ágústa þar sem hún situr með sjö
mánaða dóttur sína í fanginu. „Við
erum ekki lítið búin að hlæja að
þessu síðan.“
vera@frettabladid.is
Hefðirnar verða til
Á notalegu heimili í Kleppsholtinu er allt að verða til fyrir jólin en
húsmóðirin er mikið jólabarn og lýkur öllum gjafakaupum löngu fyr-
ir jól. Desember notar hún svo til að skreyta og njóta aðventunnar.
Ágústa heldur mikið upp á hreindýr frá
Himneskum herskörum. Jólatréð keypti
hún í Jólahúsinu á Akrureyri.
Stellið er úr Líf og list í Smáralind og
hnífapörin og glösin úr Kokku.
Ásta Dísa Hlynsdóttir horfir hugfangin á
englana, sem mamma hennar föndraði,
bærast til og frá.
Ágústa heldur jólin heima með litlu fjölskyldunni sinni annað árið í röð og er hún
hægt og bítandi að skapa eigin jólahefðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Risamarkaður verður haldinn í
KR-heimilinu, Frostaskjóli 35, frá
klukkan 12 til 17 í dag.
Eins og verið hefur er öllum vel-
komið að koma með það sem
þeim dettur í hug að selja, hvort
sem það eru smákökur, sultur eða
föt úr geymslunni, prjónavörur
eða annað.
2.000 krónur kostar að leigja borð
en fólk getur komið með eigin
borð og slár og fær plássið frítt.
Ungmennaráð Vesturbæjar
verður með jólapappír og jólakort
til sölu. Hægt verður að kaupa
veitingar og unglingar í Frosta sjá
um kakósölu.
Flóamarkaður í KR
ÖLLUM ER VELKOMIÐ AÐ KOMA OG
SELJA ALLT MILLI HIMINS OG JARÐ-
AR Á FLÓAMARKAÐI Í KR-HEIMILINU
Í DAG.
Allt skal seljast.
Strandgötu 43 | Hafnarfirði | Sími 565 5454
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opnunartímar:
mán.-föstud. 10-18
laugardaga 11-18
FATAEFNI
NÝ SEND
ING!!
ULLAREF
NI, JERSE
Y, FLAUEL
, SAMKVÆ
MISEFNI
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
Opið virka daga 10–18 og laugardaga 11–16
Skeifunni 3j · Sími 553 8282 · www.heilsudrekinn.is
Jafnvægi fyrir líkama og sál
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf